Morgunblaðið - 17.04.2019, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 17.04.2019, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019 OPNUNARHÁT ÍÐ CANDY FLOSS HOPPU KASTALI LÖÐRU RELLUR POPP KORN ANDLITS MÁLUN 25. APRÍL KL.1 2 - FJÖLDI OPN UNARTILBOÐA ÓTRÚLEG LEIKFÖNG TILBOÐ MÖGNUÐ I 500ÞÚ SÞÚGÆT IR UNN IÐ GJAFA BRÉF Í FACE BOOK LEIKN UMOK KAR FJÖLD I VINN INGA Kids C oolsho p Icela nd ungu tala um það. Það getur valdið óöryggi barna og ungmenna þegar foreldrar segja hluti á skjön við það sem þau gera. Að taka utan um þá sem við elskum er einnig mikilvægt. Hlýtt faðmlag segir meira en mörg orð. Það skortir svolítið á nánd við unga fólkið okk- ar í dag. Að það fái þessa tilfinn- ingu að fólki þyki vænt um það.“ Þó að Sigurður vinni í kröfu- hörðu umhverfi þá segir hann marga foreldra með óþarfa kvíða út af unglingunum sínum. ,,Við þurfum að muna hvernig var að vera á þessum aldri sjálf. Þegar handleggirnir voru svo langir að þeir gerðu skurði í kringum veg- ina. Skórnir líktust meira skíðum en skóm og nefið var úr hlutföllum við andlitið. Við höfum öll verið á þessum stað og megum ekki gleyma því að við vorum einu sinni unglingar. Manstu hvað var óþol- andi þegar sagt var við okkur hvað allt hefði verið betra hér á árum áður? Sú orðræða á heldur ekki við í dag. Mér er minnistætt eitt sinn þegar ég var að tala við son minn um hvenær ég fæddist og hann spurði mig snöggur upp á lagið: Var það ekki sama ár og Jesús fæddist?“ Sigurður segir að hlutverk ráð- gjafa sé oft að starfa sem lífsþjálf- ari fyrir aðra. ,,Við gefum áfram og kennum það sem við höfum lært. Við fáum oft stór og falleg orð sem lýsa þakklæti til okkar. Mér finnst ekki síður mikilvægt að minna fólk á að sigurinn sé þeirra. Það er ekki hægt að kenna fólki neitt nema að það sé á staðnum.“ Fær kitl í magann á leiðinni heim Sigurður er í góðu hjónabandi með eiginmanni sínum Ragnari Kristinssyni og segist fá kitl í mag- ann í hvert skipti sem hann keyrir heim úr vinnunni og hitti eigin- manninn. „Punkturinn yfir i-ið er ástin í lífinu að mínu mati. Fyrstu tvö árin má allt vera bara gaman, en svo er þetta eins og að reka lítið fyrirtæki. Að viðhalda neistanum og vinna í að það virki.“ Hvaða ráð áttu til þeirra sem langar að upplifa meiri hamingju í samböndum? „Við Raggi erum duglegir að tala saman og segja hvor öðrum það sem okkur finnst. Við reynum ekki að breyta hvor öðrum, heldur reynum að elska það sem er ein- kennandi fyrir hvorn okkar. Ég sem dæmi skil alltaf fötin mín eftir óhrein við rúmið á meðan maður- inn minn skilur alltaf skápana eftir opna. Í staðinn fyrir að ég pirri mig á skápunum, þá bara loka ég þeim, líkt og hann hendir fötunum mínum bara í óhreint. Það er kúnst að geta elskað bæði styrkleika hvor annars og bresti. Að kunna að meta maka sinn fyrir hvernig hann er í staðinn fyrir að pirra sig á honum stöðugt. Þetta heitir sam- kvæmt mínum bókum að elska án skilyrða og grunnvinnan sem mað- ur þarf að fara í til að geta elskað frá þeim stað er að elska sjálfan sig þannig. Maður þarf að vera tilbúinn að treysta og leyfa sér að upplifa. Að vera sterkur með þeim sem maður elskar jafnt sem að fá að vera lítill og kúra. Að vera sannur og maður sjálfur er það sem virkar alltaf best.“ Hvaða ráð áttu fyrir þá sem eru með höfuðið fullt af ónýtum hug- myndum um páskana? „Notaðu föstudaginn langa til að skrifa niður það sem býr innra með þér. Hausinn á okkur er eins og harður diskur í tölvu. Það þarf að hreinsa út úr honum reglulega svo ekkert láti undan. Að skrifa lítið bréf til þeirra sem við erum að hugsa um. Að vinna með upplýs- ingarnar sem búa innra með okkur er mikilvægt. Eins er gott að kom- ast út úr því að eiga bágt, vita hver staðan er og vinna sig upp þaðan.“ Sannur vinur í raun Að lokum segir Sigurður að til Hamingja Sigurður að njóta lífsins í útlöndum. Það er enginn annar en þú að fara að gera þig hamingjusaman. að upplifa hamingju um páskana sé mikilvægt að gera upp fortíðina. Það gengur ekki upp að fara úr sambandi í samband. Ef þú gerir ekki upp þitt síðasta samband, þá tekur þú með þér gamla hluti inn í nýja sambandið. Ef þú treystir ekki fyrrverandi maka þínum, muntu eiga erfitt með að treysta þeim sem þú ert með núna. Það er enginn annar að fara að gera okk- ur hamingjusöm, við verðum að gera það sjálf fyrir okkur. Eins vil ég mæla með því við alla að velja sér maka en láta ekki velja sig. Meðvirkir í samböndum vita oft ekki af hverju þeir eru í sínum samböndum og finna síðan ekki leiðina út. Þörfin okkar fyrir að vera elskuð og að vera með annarri manneskju getur oft verið ofar þeirri þörf að taka ábyrgð á okkur sjálfum. Ég er ekki þakklátur fyrir að maki minn sé með mér, heldur er ég þakklátur fyrir tímann okkar saman. Við höfum átt margar stundir saman, unnið saman og gert hluti hlið við hlið. Síðan höfum við upplifað meiri fjarlægð þegar hann hefur unnið fjær heimilinu og það sem það gerir er að skerpa á ástinni og auka á tilfinningarnar. Manni hitnar í hjartanu og fær þetta kitl í magann þegar maður fær tækifæri til að sakna líka.“ Hvernig getur fólk vitað að það er með hinum/ hinni einu réttu? „Með því að vita að þú sért hin/ hinn eina/eini rétti í þessu sam- bandi. Ef þú ert þú og færð að vera sá /sú sem þú ert þá ertu í góðum málum.“ Hvað með foreldra sem þrá að tengjast börnum sínum betur yfir hátíðina? ,,Farðu stundum úr því að vera foreldri í að vera vinur. Að eiga traust barnsins síns þannig að það geti talað við mann um allt er dýr- mætt. Vinátta er oft meira virði en orðin pabbi og mamma.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.