Morgunblaðið - 17.04.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019
Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta
Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda
og hagræða málin fyrir húsfélög
Traust - Samstaða - Hagkvæmni
eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005
Ráðgjöf
Veitum faglega ráðgjöf
til húsfélaga
Bókhald
Höfum umsjón með
bókhaldi fyrir húsfélög
Þjónusta
Veitum persónulega þjónustu
sem er sérsniðin að hverju
og einu húsfélagi
Efling-stéttarfélag • Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík • Sími 510 7500
Dagskrá:
- Venjuleg aðalfundarstörf
- Önnur mál
Endurskoðaðir reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofu Eflingar
Guðrúnartúni 1, frá og með 23. apríl nk.
Félagar mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Eflingar-stéttarfélags
Aðalfundur Eflingar 2019 verður haldinn mánudaginn
29. apríl kl. 20:00 í Austurbæ, Snorrabraut 37.
Aðalfundur
Eflingar–stéttarfélags
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Mér er alltaf hlýtt til staðarins
enda fæddur heima á Grundarstíg
4 og bjó á Flateyri til ársins 1990
og finnst gott að koma og vera þar.
Gaman er að sýna öðrum hvernig
þar var umhorfs fyrir snjóflóð.
Staðurinn er mikið breyttur. Svo
er skemmtilegt að fá sögur ennþá
eldra fólks af lífi og starfi á Flat-
eyri fyrr á árum,“ segir Bjarni
Sveinn Bendiktsson, sölumaður og
Flateyringur, sem hefur verið að
„dunda“ sér við að teikna upp í þrí-
vídd húsin á eyrinni á Flateyri eins
og þau voru fyrir snjóflóðið sem
féll 1995 og olli miklum mannskaða
og eyðileggingu mannvirkja.
Þótt Bjarni hafi flutt frá Flat-
eyri ber hann enn miklar taugar til
staðarins. Hann keypti sér íbúð
þar fyrir þremur árum og fór að
leika sér að teikna sinn hluta húss-
ins og síðan húsið í heild. „Fiktið
hélt áfram. Ég fór að teikna upp
húsið sem ég ólst upp í. Þá fór ég
að heyra í ungu fólki sem þarna
býr og þekkir ekki bæinn eins og
hann var fyrir snjóflóð. Því fannst
vanta upplýsingar um húsin sem
eyðilögðust í flóðinu,“ segir Bjarni
um tildrög þess að hann hélt
áfram.
Hann segist hafa ákveðið að
teikna upp alla húsaþyrpinguna
sem fór í flóðinu, 18 eða 19 hús, og
síðan einstök önnur hús sem eru
farin og loks öll hús á eyrinni, bæði
íbúðar- og atvinnuhús.
Fær sögur frá eldra fólki
Hann áætlar að búið sé að teikna
upp 120 hús og um það bil 20 til 25
hús séu eftir. Húsin setur hann
einnig upp í stóra mynd af þorpinu
en tekur fram að þótt búið sé að
setja húsin inn í myndina sé mikið
verk eftir, svo sem að laga götur
og samsetningar á lóðum og leið-
rétta hæðarpunkta. „Mig langar til
að gera myndina þannig úr garði
að hægt verði að skoða Flateyri
miðað við einhver ártöl, til dæmis
1990 og 2018 og einnig fyrr, til
dæmis 1960 og jafnvel 1930-1940,
til þess að hægt sé að skoða þróun-
ina,“ segir Bjarni.
Bjarni notar teikniforrit við
áhugamálið. Segist aðeins hafa
notað það við endurskipulagningu
á fiskvinnslum en hann vann lengi
sem fiskiðnaðarmaður.
Hann fær upplýsingar frá fyrri
eigendum húsanna og nær sér í
teikningar hjá Ísafjarðarbæ. Eng-
ar teikningar eru til af sumum
eldri húsanna. Þá notast hann við
ljósmyndir ef til eru og gróf ytri
mál húsanna en verðum stundum
að skálda í eyðurnar. Hann sýnir
hólfun húsanna í grófum dráttum
og innréttingar þegar upplýsingar
liggja fyrir um þær. Lengst hefur
hann gengið með húsið sem hann
fæddist og ólst upp í. Þar eru kom-
in húsgögn og myndir upp á veggi.
Bjarni er duglegur að birta af-
rakstur tómstundaiðjunnar í hópi
Flateyrar og Flateyringa á Face-
book. „Ég var viðbúinn því að ekki
yrðu allir ánægðir. Snjóflóðin
vekja enn sterkar tilfinningar hjá
Flateyringum. En það sem ég hef
heyrt, er allt jákvætt,“ segir
Bjarni.
Hann segist hafa fengið við-
bótarsögur frá eldra fólki, um það
hvernig húsin voru og hverjir
bjuggu þar. „Það er gaman að
tengja sögurnar saman við teikn-
ingarnar,“ segir hann.
Breyttur bær
Gríðarlegar breytingar hafa orð-
ið á Flateyri á þeim tæpu þrjátíu
árum sem liðin eru frá því Bjarni
flutti í burtu. Hann rifjar upp að á
Flateyri hafi búið yfir 500 manns
og þar hafi verið margar verslanir.
„Mér finnst gaman að sýna öðrum
hvernig var umhorfs þar á þeim
tíma,“ segir Bjarni.
Teiknar þrívíðar myndir af Flateyri
Bjarni Sveinn
Benediktsson
varðveitir heim-
ildir um sinn
gamla heimabæ
eins og hann var
fyrir snjóflóðið ár-
ið 1995 Flateyri
hefur breyst mikið
frá þeim tíma
Tölvuteikning/Bjarni S. Benediksson
Snjóflóðaþyrpingin Flateyri lifnar við í tölvunni, eins og hún var um 1990. Hér sést yfir snjóflóðahúsin við Hafnarstræti, Tjarnargötu og Unnarstíg.
Morgunblaðið/Hari
Áhugamál Bjarni Sveinn Benediktsson hugsar heim til Flateyrar og „dund-
ar“ sér við að teikna. Á skjánum er verkefni dagsins, hús við Grundarstíg.
Morgunblaðið/RAX
Unnarstígur Húsin eyðilögðust, meðal annars Unnarstígur 1 en ris þess barst langa leið með flóðinu. Myndin til
vinstri var tekin skömmu eftir flóðin en á þeirri til hægri hefur útlit hússins verið endurgert í tölvu.
Tölvuteikning/Bjarni S. Benediktsson