Morgunblaðið - 17.04.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.04.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019 Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 FRÁBÆR TILBOÐ TIL PÁSK A PÁSKA TILBOÐ Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is RVK Studios, kvikmyndafyrirtæki Baltasars Kormáks, hefur á þessu ári fengið tæplega 350 milljónir króna endurgreiddar úr ríkissjóði vegna gerðar sjónvarpsefnis. Það er að meginhluta til vegna annars hluta framhaldsþáttanna Ófærðar. Þetta er hæsta endurgreiðsla vegna kvik- myndagerðar frá 2016 þegar True- North fékk tæpar 509 milljónir króna fyrir kvikmyndina Fast and the Furious 8. Upplýsingar um end- urgreiðslurnar er að finna á vef Kvikmyndamiðstöðvar Íslands sem Atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytið hefur falið umsjón þeirra með sérstökum samningi. Endurgreiðslan til Rvk Studios er annars vegar vegna Ófærðar, um 335 millónir, og hins vegar vegna þáttanna Hálendisvaktin, um 14 milljónir króna. Framleiðendur kvikmynda eða sjónvarpsefnis á Íslandi eiga lögum samkvæmt kost á endurgreiðslum á allt að 25% af framleiðslukostnaði sem fellur til hér á landi. Skilyrði er að viðkomandi framleiðsla sé til þess fallin að koma íslenskri menningu á framfæri, kynna sögu lands eða náttúru eða að viðkomandi fram- leiðsla sé til þess fallin að stuðla að aukinni reynslu, þekkingu á listræn- um metnaði þeirra sem að fram- leiðslunni standa. Næsthæstu endurgreiðsluna á þessu ári hefur Kvikmyndafélag Ís- lands fengið fyrir framleiðslu mynd- arinnar Lof mér að falla, um 67 milljónir króna. Sagafilm hefur fengið um 22 milljónir fyrir þrjá sjónvarpsþætti og Skot Productions fengið rúmar 11 milljónir fyrir þætt- ina Með Loga sem sýndir eru í Sjón- varpi Símans. Fjórir aðrir kvikmyndaframleið- endur, Nýjar hendur, Kvikmynda- sögur, Hreyfimyndasmiðjan og Trabant, hafa samtals fengið endur- greiðslur að fjárhæð rúmar 20 millj- ónir króna. 350 milljónir vegna Ófærðar Kvikmyndagerð Spennumyndaflokkurinn Ófærð var framleiddur af RVK Studios, sem Baltasar Kormákur rekur, og sýndur á RÚV.  Endurgreiðsla til RVK Studios Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Síðasta umferð Reykjavíkurskák- mótsins var tefld í Hörpu í gær og endaði svo að átta skákmenn deildu sigri á mótinu. Þeir voru Rúmenarn- ir Lupulescu og Parilgras, Englend- ingurinn Gawain Jones ásamt Grandelius frá Svíþjóð, Firouzja frá Íran, Petrosjan frá Armeníu, Tari frá Noregi og Gupta frá Indlandi. „Það er mjög óvenjulegt. Þetta er reyndar ekki einsdæmi, það voru 11 sigurvegarar eitt árið en þú þarft að fara tuttugu ár aftur í tímann eða jafnvel lengra,“ segir Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, um þá staðreynd að átta deildu sigrinum á mótinu. Eftir stigaútreikning var Rúmeninn Lupulescu hins vegar úrskurðaður sigurvegari Reykjavíkurskákmóts- ins. Spurður um þennan stigaút- reikning segir Gunnar það vera kerfi sem gengur út á að leggja vinninga andstæðinga saman til að finna út hver tefldi við sterkustu einstak- lingana. „Þannig að hann [Lupu- lescu] fær örlítið hærri verðlaun en hinir,“ segir Gunnar. Fyrir síðustu umferðina voru Rúmenarnir Lupu- lescu og Parligras efstir ásamt Eng- lendingnum Gawain Jones. Rúmenarnir tefldu innbyrðis og sömdu fljótlega jafntefli eftir rólega skák. Jones hafði þar með möguleika á að sigra á mótinu ynni hann Hol- lendinginn l’Ami Erwin. Jones fékk ágætisstöðu eftir byrjunina en Hol- lendingurinn bætti stöðu sína og stóð mun betur um tíma. Jones kom til baka og jafntefli niðurstaðan eftir langa skák. Ollu þessi úrslit því að átta skákmenn voru jafnir að lokum. Hannes Hlífar Stefánsson varð efstur Íslendinga með sex og hálfan vinning. Hannes vann Guðmund Kjartansson í síðustu umferðinni. Guðmundur, Hjörvar Steinn Grét- arsson og Jóhann Hjartarson end- uðu með sex vinninga. Jóhann tefldi langa og mjög spennandi skák við ír- anska ungstirnið Alireza Firouzja sem er ekki orðinn 16 ára gamall en nálgast 2.700 skákstigin. Degi Ragn- arssyni, sem átti möguleika á að verða alþjóðlegur meistari í gær, mistókst ætlunarverk sitt eftir tap gegn hollenska skákmanninum Kevlishvili. Dagur komst þó yfir 2.400 stig á mótinu. Deila sigri á Reykjavíkurskákmótinu  Átta skákmenn deildu sigri á Reykjavíkurskákmótinu  Mjög óvenjulegt en ekki einsdæmi, segir forseti Skáksambands Íslands  Rúmeninn Lupulescu úrskurðaður sigurvegari eftir stigaútreikning Reykjavíkurskákmótið » Átta deildu sigrinum saman. » Rúmeninn Lupulescu fékk hæsta verðlaunaféð eftir stiga- útreikning. » Hannes Hlífar Stefánsson varð efstur Íslendinga með sex og hálfan vinning. » Hjörvar Steinn Grétarsson og Jóhann Hjartarson enduðu með sex vinninga. Morgunblaðið/Eggert Keppendur í ham Á Reykjavíkurskákmótinu 2019 tefldu alls 240 keppendur frá yfir 30 þjóðum. Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, segir að skipulagning mótsins í ár hafi gengið vel frá A til Ö. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosamargrett@gmail.com Umsóknum um alþjóðlega vernd hefur fjölgað á árinu frá sama tíma í fyrra, samkvæmt tölum Útlendinga- stofnunar. Á vefsíðu stofnunarinnar kemur fram að 223 einstaklingar hafi sótt um alþjóðlega vernd það sem af er ári. Í lok apríl í fyrra voru um- sóknirnar 181 talsins. Í nýliðnum mars bárust 77 um- sóknir um alþjóðlega vernd en í mars í fyrra voru slíkar umsóknir 43. Í jan- úar í ár voru umsóknirnar 73 en 53 í fyrra, og í febrúar í ár sóttu 73 um vernd en 42 í febrúar á síðasta ári. Flestir þeirra sem hafa sótt um vernd á þessu ári eru frá Írak, 30, Afghanistan, 22 og Moldóvu, 18. Ljóst er að fjölgun hefur orðið á um- sóknum frá síðastnefndu löndunum tveimur en í lok apríl í fyrra höfðu 9 sótt um frá Afganistan og 3 frá Mol- dóvu en 34 frá Írak. Útlendingastofnun tilkynnti í jan- úar á þessu ári að Moldóva hefði ver- ið fært á lista stofnunarinnar yfir lönd sem teldust örugg. Lítið hægt að segja um stöðuna Þórhildur Hagalín, upplýsinga- fulltrúi Útlendingastofnunar, segir að mikill stöðugleiki hafi fylgt tölum um alþjóðlega vernd á árinu þó að tölurnar nú í byrjun árs séu hærri en á síðasta ári. Hún segist þó ekki vilja lesa of mikið í þær á þessum tíma- punkti. Á síðasta ári hafi fjöldi um- sækjenda þegar upp var staðið verið svipaður og árið á undan og því sé ekki beinlínis hægt að tala um fjölg- un á undanförnum mánuðum. „Það eru alltaf sveiflur innan árs- ins þannig að það getur verið erfitt að geta sér til út frá þessu. Það eina sem við sjáum er að árið fer af stað með hærri tölum en síðasta ár en hvað það þýðir getum við lítið sagt til um,“ segir Þórhildur. Umsóknum um vernd fjölgar  233 hafa sótt um alþjóðlega vernd Vorboðinn er kominn til Vestmanna- eyja. Lundinn er byrjaður að setjast upp. Sigurður Bragason sá töluvert af lunda í Stórhöfða í fyrrakvöld og á vefnum eyjar.net er sagt frá því að fuglaáhugamaður hafi séð lunda við Kaplagjótu við Dalfjall á sunnudags- kvöld. „Það er greinilega komið sumar,“ segir Sigurður. Raunar hef- ur verið strekkingur í Vestmanna- eyjum síðustu daga og ekki góðar aðstæður fyrir lundann til að setjast upp. Á undan fyrir norðan Lundinn er nokkuð á venjulegum tíma í Vestmannaeyjum í ár. Erpur Snær Hansen, líffræðingur hjá Náttúrustofu Suðurlands, segir að það sé aðeins breytilegt eftir árum en meðaltalið frá árinu 1953 sé um 18. apríl. Á síðasta ári urðu Eyja- menn fyrst varir við lundann 19. apr- íl og 16. apríl fyrir tveimur árum. Lundinn sest fyrr upp á Norður- og Austurlandi. Erpur segir að Aust- urland og Steingrímsfjörður á Ströndum séu fyrst í röðinni, síðan Norðurland, þá Vesturland en lundin setjist síðast upp á Suðurlandi. Sama eigi við um varpið, það hefjist fyrr fyrir austan og norðan. helgi@mbl.is Lundinn kominn til Eyja „Það er greinilega komið sumar,“ segir Sigurður Bragason Morgunblaðið/Eggert Stórhöfði Töluvert sést af lunda í Eyjum þótt aðstæður séu ekki góðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.