Morgunblaðið - 17.04.2019, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Auglýst var eftir listamönnumtil að taka þátt í verkefninuí Kringlumýri og var eftir-spurnin mikil. Alls komu
hátt í 90 umsóknir hvaðanæva úr
heiminum og úr þeim hópi voru valdir
13 listamenn. Listrænn stjórnandi
sýningarinnar er Jón Adólf Steinólfs-
son myndhöggvari, sem einnig á verk
á sýningunni.
Aðrir listamenn eru Jacquies
Vesery og Charles J. Rosenthal frá
Bandaríkjunum, Jérémy Pailler og
Nathalie Groeneweg frá Frakklandi,
Pavel Khatsilouski frá Hvíta-Rúss-
landi, Louise Thomas, Breti sem býr í
Berlín, Anees Maani frá Jórdaníu,
Ercan Bilir frá Tyrklandi, Plácido
Rodríguez Bonníu frá Spáni, Eva
Hodinková frá Tékklandi, Zilvinas
Balkevicius, Lithái sem býr í Kópa-
vogi, og íslensku trélistamennirnir
Sigurður Petersen og Anna Lilja
Jónsdóttir.
Kakalaskáli er við bæinn
Kringlumýri í Blönduhlíð en þar búa
hjónin Sigurður Hansen og María
Guðmundsdóttir. Þau hafa byggt skál-
ann upp, þar sem áður voru útihús og
minkahús á bænum. Innréttaður var
hlýlegur timburklæddur salur sem
hýst hefur ýmsa listviðburði, málþing
og önnur mannamót.
Framkvæmdir við skálann hóf-
ust árið 2011 og bætt hefur verið við
öðru rými, um 100 fermetrum, þar
sem sýningin verður sett upp. Lista-
mennirnir hafa unnið alls 30 listaverk,
saman eða sitt í hverju lagi, sem verða
til sýnis. Boðið verður upp á hljóð-
leiðsögn um 30 sögupunkta í sýning-
unni; á íslensku, ensku, þýsku og
norsku, auk þess sem tyrknesk útgáfa
er til fyrir tilstilli Ercan Bilir frá Tyrk-
landi.
Sviðsetti Hauganesbardaga
Úti fyrir hefur Sigurður sviðsett
einn fjölmennasta og mannskæðasta
bardaga Íslandssögunnar, Hauganes-
bardaga, þar sem Ásbirningar og
Sturlungar bárust á banaspjót árið
1246. Þar hafði Þórður kakali sigur í
orrustunni við Brand Kolbeinsson
unga. Ríflega 1.300 steinum var raðað
upp á Haugsgrundum, neðan við
Haugsnes, samkvæmt tilgátu Sig-
urðar, þar af tákna yfir 700 steinar lið
Ásbirninga og um 600 úr liði Sturl-
unga. Róðukross, minnisvarði um
Brand, stendur í landi Syðstu-
Grundar en Jón Adólf gerði krossinn.
Þaðan er hægt að ganga stuttan spöl
að steinunum og enda í Kakalaskála
hjá Sigurði og Maríu á Kringlumýri.
Einnig er hægt að byrja ferðina í skál-
anum og ganga þaðan út á grund-
irnar, vettvang bardagans. Þar hefur
Sigurður veitt leiðsögn en hann hefur
lengi haft mikinn áhuga á því sem
gerðist á sturlungaöldinni svonefndu,
og haft sérstakan áhuga á sögu Þórð-
ar kakala. Þannig er hugmyndin að
skálanum til komin.
Spurður hvernig verkefnið með
listamönnunum kom til, segir Sig-
urður í samtali við Morgunblaðið að
eitt hafi leitt af öðru.
„Þetta hófst upphaflega með því
að ég setti fram tilgátu um hvernig
Hauganesbardaga hefði borið að, því
ég fékk hann ekki til að ganga upp í
landslaginu. Það leiddi til þess að ég
sviðsetti bardagann. Síðan fór að
koma fólk sem ég þurfti að segja sög-
ur, aðdragandann að bardaganum og
afleiðingarnar. Þá vantaði mig skjól til
að tala við fólkið, þannig kviknaði hug-
myndin um skálann. Ég vildi í upphafi
gera þetta í þremur áföngum og þessi
sýning átti alltaf að vera lokaáfang-
inn,“ segir Sigurður, og bætir við:
„Síðan kynntist ég Jóni Adólf
myndhöggvara, sem gerði fyrir okkur
róðukrossinn. Ég held að við höfum
spilað hvor annan upp í því að fá er-
lenda listamenn í þetta verk, til að
skapa fjölbreytni. Við fengum mikil og
góð viðbrögð við umsóknunum og
hópurinn dreifist vel um heiminn.
Sumir þessara listamanna eru mjög
vel þekktir og hafa sýnt verk sín um
heim allan.“
Sigurður segir vinnuna hafa tek-
ist mjög vel, hópurinn hafi náð vel
saman og sum listaverkin orðið til í
samvinnu. Flestir höfðu reynslu af
hópvinnu en engir unnið með sagn-
fræðilegt þema, líkt og Sturlungana.
„Fólk kvaddist með tárin í aug-
unum af söknuði en vonandi geta sem
flestir verið viðstaddir opnun sýning-
arinnar,“ segir Sigurður en tímasetn-
ing á opnun hefur ekki verið ákveðin
endanlega. Um stórt og kostnaðar-
samt verkefni er að ræða. Þannig hef-
ur fjársöfnun verið í gangi á vefnum
Karolina Fund. Að sögn Sigurðar hafa
safnast um 40% áætlaðrar upphæðar
og vonast hann til að lokatakmarkið
náist með góðra manna hjálp.
Listamenn á söguslóð Þórðar kakala
Ljósmyndir/Kakalaskáli
Bessastaðir Dvöl listamannanna lauk með heimsókn til Guðna Th. Jóhannessonar á Bessastöðum. Fannst þeim mikið til koma að fá fund með forsetanum.
Listasmiðja Einn listamannanna 14
að störfum í Kakalaskála.
Fjölþjóðlegur hópur 14 listamanna hefur að undan-
förnu verið að störfum í Kakalaskála í Kringlumýri í
Skagafirði og unnið þar listaverk sem túlka eiga sögu
Þórðar kakala Sighvatssonar, oddvita Sturlunga-
ættarinnar. Sýningin „Á söguslóð Þórðar kakala“
verður sýnd í skálanum í sumar en hægt hefur verið
að fylgjast með listamönnunum að störfum þrjá síð-
ustu laugardaga og sjá hvernig verkin hafa orðið til.
Til að fjármagna sýninguna stendur yfir söfnun á
Karolina Fund. Sigurður Hansen í Kringlumýri segir
verkefnið hafa tekist vel en að mörg handtök séu eftir.
Listaverk Á sýningunni í sumar verða sýnd 30 listaverk, m.a. þessi.
Hjón María Guðmundsdóttir og Sig-
urður Hansen reka Kakalaskála.
Hann fékk fálkaorðuna árið 2015.