Morgunblaðið - 17.04.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019
Fylgist með á facebook • Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
FISLÉTTIR JAKKAR
Flottir í ferðalögin
Gallabuxur
/strechbuxur
frá 9.900 kr
Frá 19.900 kr.
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14
Haldari með áföstu þunnu
teyjanlegu efni yfir sem
kemur ótrúlega vel út
undir fatnaði
Misty
Dekraðu
við línurnar
Skálastærðir: 70-95 E-G
Verð 7.990 kr.
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Str.
38-58
Flott föt, fyrir flottar konur
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Robell buxur
Kr. 7.900
Str. 36-52 • Margir litir
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sala á kindakjöti hefur heldur dregist
saman undanfarna mánuði á sama
tíma og sala á öðrum tegundum kjöts
úr innlendri framleiðslu hefur aukist.
Mesta aukningin er í sölu á naut-
gripakjöti, 13% undanfarna þrjá
mánuði, miðað við sama tímabil á síð-
asta ári.
Í lok mars voru til í birgðum hjá
sláturleyfishöfum 3.170 tonn af
kindakjöti, þar af 2.840 tonn af dilka-
kjöti. Samsvarar það rúmlega 5 mán-
aða sölu, ef miðað er við meðalsölu
kjöts á heilu ári. Samkvæmt því ættu
sláturleyfishafar að eiga birgðir af
kjöti út ágústmánuð. Þá eru ótaldar
birgðir sem kunna að vera til úti á
markaðnum.
Birgðirnar eru mun minni en á
þessum tíma fyrir tveimur árum þeg-
ar yfir 4.800 tonn voru til.
Mættu vera meiri birgðir
Ágúst Torfi Hauksson, fram-
kvæmdastjóri Norðlenska og for-
maður Landssamtaka sláturleyfis-
hafa, segir að birgðir dilkakjöts
mættu að ósekju vera örlítið meiri en
raunin er. Hann telur þó óvarlegt að
tala um að það stefni í almennan kjöt-
skort síðsumars. Bendir hann á að
hægt verði að bjóða upp á kjöt af ný-
slátruðu í ágústmánuði
Hinsvegar getur komið til þess að
skortur verði á einstökum skrokk-
hlutum, sérstaklega hryggjum þegar
líður á sumarið. Það er hins vegar
ekki sundurliðað í upplýsingum bún-
aðarstofu Mast um framleiðslu, sölu
og birgðir kjötafurða. Ágúst Torfi
segir að í staðinn verði hægt að bjóða
aðra skrokkhluta þannig að ekki
verði skortur á kindakjöti.
Ef litið er til síðustu tólf mánaða
hefur sala á kindakjöti dregist saman
um 1%. Ágúst Torfi segir að þetta
rími við þær upplýsingar sem komi
frá smásölunni. „Það hafa verið mín-
ustölur nokkuð lengi og þarf ekki að
koma á óvart. Sú þróun hefur verið
að ganga yfir í löndunum í kringum
okkur. Við erum mun tryggari
lambakjötinu en þær þjóðir sem við
berum okkur helst saman við en
neyslan breytist hægt og rólega,“
segir Ágúst. Hann lýsir þeirri skoðun
sinni að þeir sem hafi unnið að mark-
aðssetningu kindakjöts á undan-
förnum árum og áratugum hafi staðið
sig vel.
Innflutningur heldur
niðri verði
Sala á innlendu nautgripakjöti hef-
ur aukist um 10% síðustu tólf mánuði,
miðað við sama tímabil ári fyrr, sala á
svínakjöti hefur aukist um 7,5% og
alifuglakjöti um 2%. Einnig er mikið
flutt inn af kjöti af þessum tegundum
en tölur um það liggja ekki fyrir.
Ágúst Torfi segir athyglisvert að
sjá þróunina í nautgripakjöti. Inn-
flutningur hafi haldist stöðugur en
framleiðslan innanlands aukist mikið.
„Íslenskir frumframleiðendur hafa
staðið sig mjög vel við að anna auk-
inni eftirspurn eftir nautakjöti,“ segir
hann en tekur fram að lítil tollvernd
geri það að verkum að innflutt kjöt
haldi verðinu á markaðnum niðri.
Bændur fái ekki nógu hátt verð fyrir
afurðirnar.
Morgunblaðið/Eggert
Hryggur Ekki er víst að hægt verði að kaupa hryggi þegar líður á sumar.
Gæti vantað hryggi í sumar
Hlutdeild
» Alifuglakjöt er vinsælasta
kjötið á markaðnum, miðað við
innlenda framleiðslu. Hlutdeild
þess er 33,2%.
» Kindakjötið er enn í öðru
sæti með 24,1% hlutdeild.
Skammt á eftir kemur svína-
kjötið með 23,5% markaðs-
hlutdeild.
» Nautgripakjötið er með
16,9% markaðarins og hrossa-
kjöt með 2,3%.
Minni birgðir hjá sláturleyfishöfum en oft áður Aukin sala á nautgripakjöti
Upplestur í Hallgríms-
kirkju hefst kl. 13 á
föstudaginn langa
Ranglega var farið með tímasetn-
ingu í umfjöllun blaðsins sl. mánu-
dag um upplestur Passíusálmanna í
Hallgrímskirkju á föstudaginn
langa. Lestur sjö leikkvenna hefst
kl. 13, en ekki 13:30. Beðist er vel-
virðingar á þessu.
LEIÐRÉTT