Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Page 29
FÓKUS 2. ágúst 201929 K ona á þrítugsaldri breytti bílskúr við heimili foreldra sinna í íbúð fyrir sig með góðri aðstoð foreldranna og eru 20 fermetrar nú orðnir að hlý- legu og fallegu heimili. „Við leigðum gám og byrjuð- um á að rífa allt út úr bílskúrnum og henda í gáminn. Það þurfti að þrífa allt hátt og lágt, byrja á því að teipa herbergi og mæla fyrir öllu,“ segir íbúðareigandinn, en verkið í heild tók þrjá mánuði. „Það var rosalega mikið sem tók tíma af minni hálfu þar sem ég er mjög óþolinmóð,“ svarar hún að- spurð hvað hafi verið erfiðast við verkið. „Grunnvinnan og undir- búningurinn og öll þrifin voru tímafrek. Síðan verð ég að taka fram að það að sparsla og pússa og sparsla og pússa er klárlega leiðin- legasta og tímafrekasta verkefnið.“ Pípari kom og lagði fyrir sturt- unni, en baðherbergið er innst í rýminu. „Við létum líka gera túðu í sturtunni sem er alltaf í gangi svo að loftflæðið sé í lagi.“ Einn gluggi er í heildarrýminu, við annan end- ann þar sem komið er inn, þannig að loftflæði þarf að vera gott svo ekki myndist mikill raki eða hiti inni. Hvað var dýrast við fram­ kvæmdirnar? „Kostnaðarsamasti hlutinn var þegar við þurftum að leita aðstoð- ar hjá iðnaðarmönnum, en við eig- um gott fólk að og var vinur pabba, sem er smiður, með okkur í öllu ferlinu og fær hann tíu í einkunn fyrir þolinmæði og fagleg vinnu- brögð.“ Frændi hennar kom síðan og tengdi fyrir rafmagninu. Íbúðareigandinn mælir með því við slíkar breytingar að vera vakandi fyrir tilboðum og afslátt- um. „Við vorum helvíti heppin með mikið af hlutum, eldhúsinn- réttingin var til dæmis á 40 pró- sent afslætti í IKEA því þeir voru að skipta út svarta litnum.“ Hvað kom á óvart í breytingunum? „Hvað lofthæðin er góð, rýmið er í góðri „funksjón“ og hvað pabbi minn er helvíti duglegur.“ Hvað var skemmtilegast? „Að sjá grámyglulegan bílskúr verða að fallegu litlu heimili, sjá hvernig hlutirnir koma heim og saman. En verkefnið sjálft var mjög skemmtilegt, ég verð að taka fram hvað ég á góða foreldra sem eiga stórt „high five“ og faðmlag skilið, fyrir að leyfa mér að njóta góðs af þeim á meðan ég safna fyrir íbúð. En auðvitað var þetta einn lærdómur sem fer klárlega í reynslubankann.“ Bílskúr breytt í íbúð Allt til alls á 20 fermetrum Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is Bílskúrinn Stærðin er 25,5 fermetrar í heild. Myndir: Eyþór Árnason Eldhúsið Þvottavél er í innréttingunni sem var á afslætti í IKEA. Heildarmynd Í litlu rými þarf hver hlutur að fá að njóta sín. Notalegt Fallegir smáhlutir skapa heildarmyndina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.