Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2019, Qupperneq 29
FÓKUS 2. ágúst 201929
K
ona á þrítugsaldri breytti
bílskúr við heimili foreldra
sinna í íbúð fyrir sig með
góðri aðstoð foreldranna og
eru 20 fermetrar nú orðnir að hlý-
legu og fallegu heimili.
„Við leigðum gám og byrjuð-
um á að rífa allt út úr bílskúrnum
og henda í gáminn. Það þurfti að
þrífa allt hátt og lágt, byrja á því að
teipa herbergi og mæla fyrir öllu,“
segir íbúðareigandinn, en verkið í
heild tók þrjá mánuði.
„Það var rosalega mikið sem tók
tíma af minni hálfu þar sem ég er
mjög óþolinmóð,“ svarar hún að-
spurð hvað hafi verið erfiðast við
verkið. „Grunnvinnan og undir-
búningurinn og öll þrifin voru
tímafrek. Síðan verð ég að taka
fram að það að sparsla og pússa og
sparsla og pússa er klárlega leiðin-
legasta og tímafrekasta verkefnið.“
Pípari kom og lagði fyrir sturt-
unni, en baðherbergið er innst í
rýminu. „Við létum líka gera túðu
í sturtunni sem er alltaf í gangi svo
að loftflæðið sé í lagi.“ Einn gluggi
er í heildarrýminu, við annan end-
ann þar sem komið er inn, þannig
að loftflæði þarf að vera gott svo
ekki myndist mikill raki eða hiti
inni.
Hvað var dýrast við fram
kvæmdirnar?
„Kostnaðarsamasti hlutinn var
þegar við þurftum að leita aðstoð-
ar hjá iðnaðarmönnum, en við eig-
um gott fólk að og var vinur pabba,
sem er smiður, með okkur í öllu
ferlinu og fær hann tíu í einkunn
fyrir þolinmæði og fagleg vinnu-
brögð.“ Frændi hennar kom síðan
og tengdi fyrir rafmagninu.
Íbúðareigandinn mælir með
því við slíkar breytingar að vera
vakandi fyrir tilboðum og afslátt-
um. „Við vorum helvíti heppin
með mikið af hlutum, eldhúsinn-
réttingin var til dæmis á 40 pró-
sent afslætti í IKEA því þeir voru
að skipta út svarta litnum.“
Hvað kom á óvart í
breytingunum?
„Hvað lofthæðin er góð, rýmið er
í góðri „funksjón“ og hvað pabbi
minn er helvíti duglegur.“
Hvað var skemmtilegast?
„Að sjá grámyglulegan bílskúr
verða að fallegu litlu heimili, sjá
hvernig hlutirnir koma heim og
saman. En verkefnið sjálft var
mjög skemmtilegt, ég verð að taka
fram hvað ég á góða foreldra sem
eiga stórt „high five“ og faðmlag
skilið, fyrir að leyfa mér að njóta
góðs af þeim á meðan ég safna
fyrir íbúð. En auðvitað var þetta
einn lærdómur sem fer klárlega í
reynslubankann.“
Bílskúr breytt í íbúð
Allt til alls á 20 fermetrum
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Bílskúrinn
Stærðin er 25,5
fermetrar í heild.
Myndir: Eyþór Árnason
Eldhúsið Þvottavél er í innréttingunni
sem var á afslætti í IKEA.
Heildarmynd
Í litlu rými þarf hver
hlutur að fá að njóta sín.
Notalegt Fallegir smáhlutir
skapa heildarmyndina.