Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 2
2 5. apríl 2019FRÉTTIR
1946 – Sovéski herinn bindur endi á
árslanga hersetu sína á dönsku eynni
Borgundarhólmi.
1986 – Þrjár manneskjur bíða bana í
sprengjutilræði á diskótekinu La Belle
í Vestur-Berlín í Þýskalandi. Diskótekið
var vinsæll viðkomustaður bandarískra
hermanna á þeim tíma.
1992 – Friðarsinnarnir Suada Dilber-
ovic og Olga Sucic eru skotnir til bana á
Vrbanja-brúnni í Sarajevo, höfuðborg
Bosníu og Hersegóvínu. Þau eru talin
fyrstu fórnarlömb Bosníustríðsins.
Á þessum degi,
5. apríl
1792 – George Washington Banda-
ríkjaforseti beitir neitunarvaldi og er það
í fyrsta skipti sem því er beitt þar í landi.
Síðustu orðin
„Ég sé svart ljós.“
– Rithöfundurinn Victor Hugo
(1802–1885)
V
íðines er töluvert afskekkt,
í nálægð við Álfsnes þar
sem Sorpa er með endur
vinnslustöð, og í góðri fjar
lægð frá Mosfellsheiði og Esju
melum. En heimilismenn kvarta
ekki undan staðsetningunni. Fáir
þeirra eiga bíl en akstur er í boði
tvisvar á dag og allir hjálpast að
varðandi vistir og útréttingar.
Svanur Elíasson er á meðal
þekktustu íbúa Víðiness en hann
bjó um tíma í tjaldi í Laugardaln
um. Svanur er ekki síst þakklátur
fyrir vistina í Víðinesi vegna þess
að þar getur hann verið með
hundana sína. Svanur á tvær blíð
lyndar blendingstíkur sem tóku
blaðamanni og ljósmyndara DV af
mikilli gestrisni. Þess á milli börð
ust þær um athygli eiganda síns og
eru báðar dálítið afbrýðisamar, að
hans sögn. „Þær eru eins og börn,
hvað þetta snertir,“ segir Svanur,
en tíkurnar eru mæðgur sem heita
Kleó og Jana.
Margir heimilismenn voru
heima við þegar DV bar að garði
og verður að segjast að það virð
ist ríkja góður andi á staðnum.
Einn starfsmaður er í húsinu og er
hann með fasta búsetu. „Hér ríkir
góður andi og samhjálp er ríkjandi
meðal okkar,“ segir Svanur. Flestir
íbúanna eru miðaldra eða síðmið
aldra karlmenn. Einn er í vinnu
en aðrir eru öryrkjar. Húsaleigan
er 50 þúsund krónur á mánuði en
flestir íbúanna eru með ráðstöf
unartekjur um 200 þúsund krónur,
sumir minna og aðrir meira.
„Maður kemst af með því að lifa
spart,“ segir Sveinn og kvartar ekki.
Vistarverur eru þokkalegar
í Víðinesi og íbúar hafa ágæta
eldunaraðstöðu í eldhúsum. Bað
herbergi og eldunaraðstaða eru
sameiginleg og hvort tveggja er
með ágætum.
Íbúarnir án leigusamnings og
framtíðin í fullkominni óvissu
„Það er fínt að vera hérna en það
sem við hérna í húsinu erum
óánægð með er skortur á fram
tíðarlausn og óvissa um fram
tíðina. Þetta átti bara að vera til
skamms tíma en sumir hafa verið
hérna í eitt og hálft ár og enginn
veit hvað tekur við. Hingað koma
fulltrúar frá velferðarsviði einu
sinni í viku en hafa engar fréttir að
færa okkur heldur segja okkur að
við séum í rauninni að gefa þeim
upplýsingar,“ segir Svanur.
Leigjendurnir skrifuðu flestir
undir tveggja mánaða samning á
sínum tíma en eru í dag án leigu
samnings. Áform um framtíð Víði
ness virðast í lausu lofti, sem og
framtíð íbúanna, sem eru uggandi
um sinn hag.
„Það hefur verið talað um að
einkaaðili taki yfir reksturinn á
þessu. Þá veit ég ekki hvað verð
ur um okkur,“ segir Sigurjón Ás
mundsson, öryrki sem bjó áður
í gistiskýli. „Þetta er miklu betra
en gistiskýlið,“ segir Sigurjón sem
er sáttur við að búa í Víðinesi – en
ósáttur við óvissuna.
„Við óttumst framtíðina,“ segir
Sigurjón.
Svanur tekur undir þetta. „Við
erum gleymdir hér og óttumst
framtíðina,“ segir hann.
„Það hefði líka verið gott að fá
lengri leigusamning svo við ætt
um möguleika á húsaleigubótum,“
segir Sigurjón og Svanur er sam
mála því.
Velferðarsvið staðfestir
óvissuna
DV sendi fyrirspurn á Regínu
Ásvaldsdóttur, sviðsstjóra vel
ferðarsviðs Reykjavíkur, um málið
og barst svar um hæl:
„Upphaflega var Víðines hugs
að sem hálfgert neyðarúrræði,
sem við settum á laggirnar til að
bjóða þeim sem voru á tjaldsvæð
inu í Laugardal húsaskjól. Víði
nes stóð þá tómt og við mátum
það betra en að fólk byggi í tjöld
um og húsbílum, að minnsta kosti
hlýtt og vistlegt. Markmiðið var
að það yrði unnið áfram með við
komandi einstaklingum í því að
finna varanlegt húsnæði. Mörg
um leið hins vegar vel í Víðinesi,
húsnæðið er í eigu borgarinnar og
því var ákveðið að framlengja dvöl
einstaklinganna enda löng bið í
félagslegt húsnæði á vegum borg
arinnar og annarra sveitarfélaga.
Velferðarráð hefur hins vegar ver
ið í stefnumótun varðandi málefni
heimilislauss fólks og einstaklinga
í vímuefnavanda og er von á tillög
um á fundi ráðsins þann 17. apríl
næstkomandi. Ein af tillögunum
er að auglýsa eftir rekstrar aðila að
Víðinesi og vera þar með áfanga
heimili sem er þá fyrir fólk sem
hefur lokið áfengismeðferð.
Velferðarsvið mun vinna með
hverjum og einum einstaklingi
sem er í Víðinesi í dag að fram
tíðarlausn, einhverjir gætu hugs
anlega verið áfram og einhverjir
fara í annað húsnæði.“
Þegar DV benti í svarpósti við
þessu svari á að íbúarnir óttuð
ust um sinn hag, þakkaði hún fyrir
upplýsingarnar og skrifaði jafn
framt:
„Við þurfum greinilega að
bæta upplýsingagjöfina.“ Undir
þetta tekur Hrafnhildur Ósk
Ólafsdóttir, geðhjúkrunarfræðing
ur og deildarstjóri á velferðarsviði.
„Við munum bæta upplýsingagjöf
ina. Þeir einstaklingar sem fengu
boð um að flytja upp í Víðines á
sínum tíma voru ekki með mikl
ar og flóknar þjónustuþarfir. Þrátt
fyrir það höfum við lagt mikið
upp úr því að þeim standi stuðn
ingur til boða ef þeir þurfa. Því er
umsjónarmaður búsettur í Víði
nesi. Auk þess hefur vettvangs og
ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar
(VoR) komið og hitt íbúa í Víði
nesi að lágmarki einu sinni í viku. Í
tengslum við mögulegt útboð hafa
ráðgjafar af þjónustumiðstöðvum
lagt áherslu á að vera í virku sam
bandi við hvern íbúa til stuðnings
og ráðgjafar um framtíðarlausn
ir ef til breytinga kemur. Við erum
að bíða eftir tillögum um framtíð
Víði ness. Þegar þær upplýsingar
liggja fyrir verður öllum málum
fundinn farvegur óski íbúar eftir
því.“ n
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustb@dv.is
VIÐ ERUM GLEYMDIR HÉR
OG ÓTTUMST FRAMTÍÐINA
Snemma árs 2018 hóf
Reykjavíkurborg að
bjóða heimilislausu fólki
herbergi til leigu í hús-
næði í Víðinesi. Fólk sem
hafði vakið athygli fyrir
að búa í tjöldum, meðal
annars í Laugardal, var
á meðal leigutaka. Í dag
búa 11 manns í Víðinesi
og ræddi DV við tvo
þeirra á sólbjörtum degi í
byrjun apríl.
MYNDIR: HANNA/DV
Svanur (t.v.) og Sigurjón