Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 4
4 5. apríl 2019FRÉTTIR
Hjúskaparstaða og börn?
Ég er kvæntur Guðrúnu S. Gísladóttur
leikara. Hún átti fyrir soninn Gísla Galdur
sem hefur nú fært oss tvö barnabörn. Við
eigum svo saman börnin Veru sem vinnur
hjá Ríkisútvarpinu og Ísleif Eld sem er
nýorðinn stúdent.
Leiðinlegasta húsverkið?
Ég veit ekki hvort það flokkast undir
húsverk, en það allra leiðinlegasta sem
ég geri er að raka mig. Mér finnst það svo
brjálæðislega leiðinlegt að ég get látið það
vaxa mér í augum dögum saman að þurfa
að grípa í sköfuna. Sem betur fer hef ég
fjarska litla skeggrót svo ég þarf ekki að
vinna þetta leiðindaverk mjög oft.
Fyrsti bíllinn?
Þegar ég tók bílpróf átti konan mín Fiat
Pöndu, sem var sem sagt fyrsti bíllinn
sem ég ók. Svo keyptum við nokkru seinna
gamlan Peugeot 504 sem var unaðslegur
bíll.
Trúir þú á líf eftir dauðann?
Mér finnst það mjög fyndin hugmynd, en
nei, það er ekkert til í henni.
Ertu A eða B maður?
A er sá sem vaknar snemma og B sá sem
sofnar seint, er það ekki? Ef það er rétt, þá
var ég eiginlega AB-maður þegar ég var
ungur og knár en er núna svona A,5
líklega.
Besta bók sem
þú hefur lesið?
Í mörg ár nefndi ég
alltaf Hundrað
ára einsemd
eftir Márquez þegar ég var spurður að
þessu. Ég las hana á hverju ári í 15 ár og
fannst hún alltaf jafn frábær. Svo lagði ég
hana á hilluna í aldarfjórðung, þangað til nú
í fyrra. Þá las ég hana aftur og komst að því
að hún er miklu, miklu betri en
mig minnti.
Uppáhalds-
íþróttalið á
Íslandi?
Ekkert sérstakt. Meðan
sonur minn æfði fót-
bolta með Val hélt
ég náttúrlega með
Val í hans flokki, en
það var ástríðulítið.
Mannkostir
þínir?
Æ, ég veit ekki. Svona
spurning snýst í
rauninni ekki um mína
meintu mannkosti,
heldur um einlægni
og sjálfsmynd og ég
held ég segi bara
pass.
En lestir?
Þeir eru nú ýmsir. Það hefur oft komið sér
illa að ég hef tilhneigingu til að láta hlutina
danka.
Fyrsta minningin þín?
Ég lá á teppi fyrir utan glugga á heimili afa
og ömmu á Reynimel 23 og horfði á kött
sem virti fyrir sér þvottahússglugga sem
vírnet var fyrir. Það gerðist ekkert. Ég hef
sterkan grun um að ég hafi verið mjög lítill,
nánast nýfæddur.
Ert þú góður söngvari?
Maður hefur gengið undir
manns hönd við að
sannfæra mig um
að reyna ekki
að syngja. Ég
vildi gjarnan
að hér væri
um að ræða
samsæri
öfundar-
manna
en hef því
miður grun
um að
við komandi
hafi eitt-
hvað fyrir
sér.
Leikhús
eða bíó?
Erfitt að
segja. En
þegar leikhús er virkilega, virkilega gott,
þá er það náttúrlega galdur sem flöktandi
myndir á skjá eða tjaldi geta hvergi nálgast.
Fallegasti staður á landinu?
Kolgrafarvík? Hornvík? Skálin í Hafursfell?
Eitthvert gil sem ég man ekki hvað heitir á
leiðinni inn í Þórsmörk? Steindautt grjótið
við Þórisvatn? Ég bara veit það ekki.
Heldur þú með Tomma eða
Jenna?
Ég verð nú að viðurkenna að ég hef litlar
tilfinningar til þeirra. Ætli ég myndi ekki
nefna Tomma, hinn er svoddan hroka-
gikkur, er það ekki?
Hefur þú æft íþróttir?
Nei. Þegar ég var í 8 ára bekk fórum við í
handbolta í leikfimi úti á Seltjarnarnesi
og ég fékk boltann. Því miður vissi ég ekki
hverjir voru með mér í liði og stóð alveg
frosinn þegar allir öskruðu á mig að henda
til sín. Að lokum dæmdi leikfimikennarinn
á mig „tíma“ sem er regla sem ég hef aldrei
heyrt um annars. En eftir þetta þorði ég
ekki út á íþróttavöll.
Fyrsta utanlandsferðin?
Þegar ég var 6 ára fór fjölskyldan til
Grikklands og bjó þar einn vetur. Það var
stórfengleg reynsla. Pabbi lýsti ferðalaginu
í bókinni Dagbók frá Díafani, sem ég mæli
eindregið með.
Besta ráð sem þú hefur fengið?
Það hljómar líklega einkennilega hrokafullt
en ég man ekki eftir neinu sem hér gæti
átt við.
Eitthvað að lokum?
Nei, þakka þér fyrir, ómögulega.
Eru íslenskir karlar þeir heiðarlegustu í Evrópu?
Ú
t er komin ný skýrsla
frá hinum háu herrum í
Evrópuráðinu, hin svo-
kallaða SPACE-skýrsla.
Svarthöfði er einkar ánægður með
nafngiftina. Ýmislegt athyglisvert
er í skýrslunni að finna sem lýtur
að fangelsis málum á Íslandi í
samanburði við önnur Evrópuríki.
Kemur þar fram að hvergi séu
hlutfallslega færri fangar en á Ís-
landi. 47 af hverjum 100 þúsund
íbúum voru í fangelsi þann 31.
janúar 2018. Til samanburðar má
nefna að í Danmörku er hlutfall-
ið 63 og í Evrópu 103 á hverja 100
þúsund íbúa.
Einnig kemur fram að 10
prósent fanga á Íslandi eru
konur, en það er hæsta hlutfall-
ið í Evrópu. Á eftir kemur Rúss-
land með 8 prósent en
í Evrópu allri er hlut-
fallið 5 prósent.
Hvaða sannleik
er hægt að finna í
öllum þessum tölum?
Eru Íslendingar
heiðarlegasta
þjóð Evrópu en
konurnar okkar þær
óheiðarlegustu? Eru
íslenskir karlmenn þá
svona ljúfir og góðir?
Standa þétt saman,
sumir á bomsum.
Nei, ætli það. Áður en við ís-
lenskir karlmenn förum að berja
okkur á brjóst og stríða systrum
okkar og mæðrum þá skulum við
halda því til haga að fangelsis-
mál hér á landi hafa verið í mikl-
um ólestri lengi. Ástæðan fyrir því
að einhver hafi ekki verið fangelsi
þennan tiltekna dag gæti allt
eins verið sú að hann hafi verið
að bíða eftir að komast í afplán-
un. Pláss leysið er slíkt að menn
hafa þurft að bíða mánuðum eða
jafnvel árum saman í limbói eft-
ir að komast inn og gera upp sína
skuld við samfélagið. Sumir jafn-
vel búnir að snúa baki við fyrri
lífsstíl.
Önnur ástæða gæti verið sú að
dómar á Íslandi eru skammar-
lega vægir í ofbeldis- og
kynferðisbrotamálum.
Við tökum burðardýr og
dópistagrey og skellum
þeim óhikað inn á meðan
alvöru glæpamenn,
það eru ofbeldismenn,
nauðgarar og barnaníð-
ingar, fá hér skammar-
lega stutta dóma. Dóma
sem þeir afplána ekki
einu sinni að fullu.
Þessir brotamenn eru
í langflestum tilfellum
karlmenn.
Nei, við skulum ekki lesa
of mikið í þessar tölur. Hér er
úrtakið lítið og á næsta ári gæti
hlutfall kvenna allt eins verið
það lægsta í Evrópu, þó að hlut-
fall kvenna í fangelsum hér sé þó
aðeins tíu prósent. Fyrir hverja
konu eru níu karlmenn fangelsi.
n
Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Fram að 18. öld borðuðu Íslendingar af
tré- og tindiskum, þá tók askurinn við.
Öflugasta eldfjall sólkerfisins er Loki
Patera á Íó, einu fylgitungla Júpíters.
Grameðlur þjáðust af þvagsýrugigt.
Uppáhaldsbíómynd Hitlers var King
Kong.
Meðgöngutími íslensku tófunnar er
52 dagar og gýtur hún jafnan fimm
eða sex yrðlingum.
Hver er
hann
n Starfaði um tíma
í verksmiðju Volvo í
Gautaborg.
n Var í litlu hlut-
verki í kvikmyndinni
Blossi/810551.
n Á dóttur sem varð heimsmeistari
í módelfitness.
n Hefur ekki gaman af tónlist.
n Frumsýndi nýverið leikritið Súper
í Þjóðleikhúsinu.
SVAR: JÓN GNARR
Illugi Jökulsson hefur frá unga aldri fengist við
ritstörf, blaðamennsku, þýðingar, dagskrárgerð
og fleira. Hann er beittur samfélagsrýnir og sat í
stjórnlagaráði árið 2011. DV tók Illuga í yfirheyrslu.
YFIRHEYRSLAN
Illugi
Jökulsson
472822