Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 25
Námskeið 2019 5. apríl 2019 KYNNINGARBLAÐ Sumarbúðirnar Ástjörn í Kelduhverfi á Norðausturlandi eru fyrir drengi og stúlkur á aldrinum 6–12 ára og 13–15 ára unglinga og hafa verið reknar sem kristilegar sumarbúðir síðan 1946. „Það er mjög algengt að börnin sem koma til okkar eigi foreldra eða afa sem voru í sumar búðunum hjá okkur á sínum tíma og okkur þykir mjög vænt um það,“ segir Árni Hilmarsson forstöðumaður. Börnin koma alls staðar að af landinu og mjög oft koma systkini saman. Flest börnin dvelja í einn flokk, en sum lengur. Flokkarnir eru 7, 8 eða 10 sólarhringar. Friðsæl tjörn, umlukin þéttum birkiskógi Ástjörn, með öllum sínum árabátum, kajökum, kanóum, hjólabátum og seglskútum, hefur alltaf mjög mikið aðdráttarafl fyrir börnin og er sívinsæl, og ekki síst vegna hornsílanna sem börnin veiða í háfana sína. Einnig eru svokallaðir sökkvibátar mjög spennandi því það eru sérstakir bátar sem má sökkva þegar synt er í tjörninni á góðviðris- dögum. Einnig er margt annað um að vera svo sem knattspyrna, körfubolti, föndur, alls kyns leikir og keppnir, kvöldvökur, Biblíusögur og söngur. Íþróttahús er í næsta nágrenni sem hægt er að nota þegar sólin lætur ekki sjá sig og þar er einnig sundlaug. Á góð viðrisdögum er fjöruferð alltaf vinsæl og hestaleigan Active North (activenorth.is) í Ásbyrgi stendur þeim til boða sem vilja borga fyrir hana. „Föndurherbergið okkar er mjög vinsælt og börnin virkilega njóta þess að sitja þar í næði og föndra að vild og það er alltaf jafn gaman að sjá hvað börnin geta verið frjó og frumleg í sköpun sinni,“ segir Árni. „Það gleður okkur alltaf jafn mikið að heyra að börnin fari ánægð heim,“ segja starfsmenn Ástjarnar. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að kenna börnunum að ganga vel um náttúruna. Sumar búðirnar Ástjörn eru þær einu á landinu sem eru í þjóðgarði. Margir foreldrar eru ánægðir með að börnin noti hvorki farsíma né tölvuspil við Ástjörn. Ástjörn hefur m.a. þá sérstöðu að þvottahús er á staðnum þar sem allt er þvegið af börnunum, mörgum foreldrum til mikillar ánægju. Í nágrenni Ástjarnar eru sannkall- aðar náttúruperlur og athyglisverðir staðir sem upplagt er fyrir Íslendinga almennt að skoða betur, t.d. Ás- byrgi, Hljóðaklettar, Hólmatungur, Grettisbæli, Jökulsárgljúfur, Dettifoss og Hafragilsfoss. Fyrir þau börn sem koma með flugi frá Reykjavík til Akureyrar þá á Ástjörn frátekin flugsæti, sjá nánar astjorn.is/flug. Fylgdarmaður frá Ástjörn eða flugfélaginu fylgir börnunum í flugvélinni og á Akureyrarflugvelli taka starfsmenn Ástjarnar á móti börnunum. Síðan er ekið til Ástjarnar og tekur það um tvær klukkustundir, rútuferðin er innifalin í dvalargjaldinu. Nánari upplýsingar og skráning í síma 462-3980, á heimasíðunni astjorn.is og einnig á facebook.com/astjorn þar sem hægt er að sjá fleiri myndir, og sömuleiðis myndbönd á youtube.com/astjorn Netfang: astjorn@astjorn.is Kostnaður við sumarbúðadvölina er innan við 6.500 kr. á sólarhring. 10% systkinaafsláttur fyrir bæði systkini og meiri afsláttur fyrir fleiri systkini. Laugardaginn 29. júní verður opið hús. Allir eru velkomnir í heimsókn að skoða staðinn og alveg sérstaklega Ástirningar, foreldrar þeirra, starfs- fólk, vinir og velunnarar. Nánar auglýst síðar. Flokkar og verð: Fyrir 6–12 ára börn (10 eða 8 sólarhringar): 1. flokkur: 18.–28. júní (þriðjud.–föstud.) 61.900 kr. 2. flokkur: 3.–11. júlí (miðvikud.–fimmtud.) 51.900 kr. 3. flokkur: 16.–26. júlí (þriðjud.–föstud.) 61.900 kr. Unglingavika: 13–15 ára (rúmlega 7 sólarhringar): 4. flokkur: 30. júlí–6. ágúst (þriðjud.–þriðjud.) 42.900 kr. Ummæli ánægðra foreldra: „Dóttir mín er ótrúlega spennt að komast í sumar og er búin að spyrja mik- ið hvort að hún fengi ekki að vera lengur en s.l. sumar. Henni líkaði dvölin hjá ykkur rosalega vel.“ „Sonur minn var mjög ánægður með dvölina í fyrra og þegar hann talar um Ástjörn kemur alveg sérstakur glampi í augun og allt sem sagt er frá hefur yfir sér ævintýraljóma. Sem sagt alveg frábærar sumarbúðir.“ „Dætur mínar eru svo ákveðnar að koma aftur í sumar, enda koma þær alltaf himinsælar heim frá Ástjörn. Þær hlakka mikið til og það gleður mig líka “ „Halló, sonur okkar ætlar að koma á Ástjörn þriðja sumarið í röð. Ekkert sum- arfrí án Ástjarnar.“ „Drengurinn minn kom í fyrsta skipti til ykkar í fyrra. Hann fékk smá heimþrá en ekki alvarlegri en svo að hann bað um að fá að fara aftur daginn eftir að hann kom heim. Nú hefur ekkert annað komið til greina hjá honum en að vera eins lengi og hægt er. Bestu kveðjur og takk fyrir okkur“ „Krakkarnir voru svo ánægð með dvölina síðasta sumar þannig að þau heimta að koma aftur“ Sumarbúðirnar Ástjörn - Sumardvöl í sól og sælu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.