Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 22
Námskeið 2019 5. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ Í yfir áratug var Silja Úlfars fljótasta kona Íslands. Hún æfði bæði hand- og fótbolta þegar hún var yngri, og þegar faðir Gylfa Sig- urðssonar fékk hana á sínum tíma til þess að aðstoða Gylfa við að þjálfa upp aukinn hraða og snerpu, þá upp götvaði hún hvað henni þótti þjálfarastarfið skemmtilegt og gefandi. „Ég fór út í þetta fyrir slysni en síðan árið 2008 hef ég þjálfað afreksmenn og hjálpað þeim að bæta snerpu og hraða. Ég hef þjálfað meistaraflokka, t.d. FH í bæði hand- og fótbolta og fleiri lið. Einnig hef ég unnið við að hjálpa unglingum, leikmönnum og afreks mönnum við að bæta hraða og auka styrk,“ segir Silja Úlfars. Sumarnámskeið fyrir afreksung- linga Silja er með unglinganámskeiðin sín á sumrin og veturna. „Námskeiðin í vetur gengu gífurlega vel og er ég stolt af öllum mínum íþróttamönnum. Sumir hverjir náðu alveg ótrúlegum árangri, og það var fullt á öll nám- skeiðin,“ segir Silja. Í sumar verður Silja áfram með unglinganámskeiðin sín. „Námskeiðið er fyrir unglinga á aldrinum 10–18 ára og þar hjálpa ég ungum íþróttamönnum að bæta hraða, snerpu og hlaupastíl. Margir sem leita til mín eru að æfa fótbolta eða hand- bolta og langar að bæta sig.“ Í júní verða fjögur námskeið, hvert er vika í senn og þrjár æfingar á viku. Æfingarnar verða á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum. Það geta allir bætt sig! Silja segir námskeiðin henta öllum sem vilja auka hraða og bæta sig, það séu margir sem beita sér illa og það geti leitt til meiðsla. „Það sem ég geri á námskeiðinu er að fara yfir öll atriði eins og hlaupastíl, snerpu, hliðarhreyfingar, hvernig á að hoppa og lenda, auk þess sem áhersla er lögð á liðleika. Það er mikilvægt að hlaupa rétt til þess að hægt sé að bæta sig og ná árangri. Svo gef ég leiðbeiningar um hvað megi betur fara. Ég hef boðið upp á námskeiðið í mörg ár og séð að það eru margir sem hlaupa rangt. Sumir hlaupa á þann hátt að þeir stoppa sig í hverju skrefi. Ég hjálpa nemendunum að laga hlaupastílinn. Allir sem mæta eru að koma til að gera sitt besta. Aldur og geta skiptir ekki máli því það geta allir bætt sig. Eftir hverja viku fá nemendurnir pdf-skjal með helstu æfingunum sem við gerðum, svo þeir geti æft sig áfram. Myndband fylgir einnig með öllum æfingum. Ég vil ekki bara vera kennarinn þeirra á námskeiðinu, heldur kenna þeim æfingarnar svo þau geti haldið áfram að bæta sig og hjálpað sér sjálf. Þeir sem koma til mín eru metnaðarfullir íþróttamenn sem vilja ná lengra. Þú kemur til mín til að bæta þig.“ Allar upplýsingar má fá á heima- síðu Silju: www.siljaulfars.is eða Facebook: siljaulfars.is Netpóstur: siljaulfars.is@gmail.com SUMARNÁMSKEIÐ SILJU ÚLFARS: Ótrúlegur munur í hraða og snerpu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.