Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 18
18 5. apríl 2019FRÉTTIR H lín Einarsdóttir og Malín Brand sendu tvö fjárkúg­ unarbréf til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, í maí 2015 og og kröfðust þess að hann greiddi þeim nokkrar millj­ ónir króna ella myndu viðkvæm­ ar upplýsingar um hann verða gerðar opinberar. Upplýsingarn­ ar voru sagðar varða meinta að­ komu Sigmundar Davíðs að sölu DV í lok árs 2014. Hlín setti fyrra bréfið inn um bréfalúgu á heimili aðstoðar­ manns Sigmundar Davíðs. Seinna bréfið var stílað á eigin­ konu Sigmundar og bars inn um lúgu á heimili þeirra hjóna. Í seinna bréfinu voru einnig nákvæmar leiðbeiningar um af­ hendingarstað peninganna við Krísuvíkurveg. Systurnar voru síðan handteknar á þeim stað þegar þær komu að sækja pakka sem þær töldu innihalda pening­ ana. Eftir að málið kom upp lagði Helgi Jean Claessen, fyrrverandi samstarfsmaður Hlínar, fram kæru á hendur systrunum fyrir að hafa haft af honum 700 þús­ und krónur, ella yrði hann kærð­ ur fyrir að nauðga Hlín. Í viðtali við Vísi í júní 2015 sagðist Malín ekki hafa kom­ ið að því að skipuleggja fjárkúg­ unina. Sagðist hún hafa verið „blinduð af fjölskyldutengslum.“ Hlín ræddi hins vegar við DV og sagði þetta ekki rétt: Malín hefði haft jafn mikla aðkomu og hún að bæði bréfasendingunni og fjárkúguninni. Í apríl 2017 voru systurnar dæmdar í 12 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir fyr ir fjár kúg un og til raun til fjár­ kúg un ar. Níu mánuðir af dómn­ um voru skilorðsbundnir. Malín steig fram í viðtali við DV í janúar síðastliðnum og ræddi meðal annars erfið bernskuár og baráttu hennar við Parkisonsjúkdóminn. Stuttu síð­ ar kom hún fram í viðtali í Íslandi í dag. „Ég hef sagt, og það var nú gert grín að því í áramótaskaup­ inu, að ég hafi verið blinduð því þetta var fjölskyldan mín, en meðvirkni er fyrirbæri sem er til og ég bara hugsaði ekki skýrt. Ég var þarna með systur minni og var ekki að hugsa um einhvern ávinning fjárhagslega. Þetta er bara svo fjarri mér, svo inni­ lega fjarri mér. Ég var með henni og það eru mín mistök. Ég tek mjög heimskulegar ákvarðanir að drulla mér ekki í burtu þegar ég hefði getað það,“ sagði Malín í viðtalinu. Þá kom fram að þær systur ættu ekki í neinum sam­ skiptum í dag. K völd eitt í júní 2017 hringdi Ingibjörg Eva Löve sí­ endurtekið í fyrrverandi kærasta sinn þar sem hann var staddur í heimahúsi í Norður­ mýri ásamt þremur vinum sínum og einni konu. Kærastinn fyrrver­ andi svaraði ekki símanum, en í eitt skiptið lét hann konuna gera það. Ingibjörg Eva brást við með því að skella á. Skömmu síðar bank­ aði hún upp á hjá sínum fyrrver­ andi, grímuklædd í fylgd með öðrum manni. Hún var undir áhrifum fjölda fíkniefna. Fyrrverandi kærasti Ingi­ bjargar kom til dyra og sló hún hann þá í höfuðið með hafna­ boltakylfu, og svo aftur á höndina. Átök brutust út á milli þeirra sem enduðu með því að Ingibjörg stakk manninn í brjóst­ kassann. Vitni að málinu lýsti því síðar að hann hefði heyrt öskur úr húsinu og tvo karlmenn koma þaðan út en báðir hafi verið blóð­ ugir. Sagðist vitnið hafa heyrt ein­ hvern segja: „Hún stakk hann, hún stakk hann!“. Þá sagðist hann hafa heyrt Ingibjörgu Evu segja við samverkamann sinn: „Hvar er hnífurinn minn, hvar er kylfan mín?“ Þegar lögregla mætti á svæðið fundust blóðugur hnífur og blóð­ ug kylfa í garðinum fyrir utan húsið. Þegar Ingibjörg var yfirheyrð hjá lögreglu kom hún með nokkr­ ar mismunandi útgáfur af atburð­ um kvöldsins. Þá sagðist hún ekki hafa ætlað að drepa sinn fyrr­ verandi, heldur einungis hræða hann. Sagðist hún hafa rifist við konuna sem svaraði í símann þetta kvöld og að konan hefði haft í hótunum við hana. Ingi­ björg sagðist hafa orðið „ógeðs­ lega reið“ og hún kannaðist við að hafa tekið með sér hafnabolta­ kylfu og raflostbyssu, en kannað­ ist ekki við hníf. Árásin þótti afar heiftarleg og taldi dómurinn að Ingibjörgu hefði mátt vera fullljóst að hún hefði getað banað sínum fyrr­ verandi með þessari atlögu. Í nóvember 2017 hlaut hún fimm ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps. Á seinustu árum hafa kom­ ið upp tvö mál hér á landi þar sem konur hafa verið fundnar sekar um alvarlegt ofbeldi gegn börnum. Í september 2016 var fimm barna móðir dæmd í 18 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavík­ ur fyrir hrottalegt ofbeldi gegn börnum sínum. Ofbeldið var bæði andlegt og líkamlegt og stóð yfir í langan tíma. Börn konunnar eru fædd á árunum 2004 til 2013 en það var árið 2005 að tilkynningar fóru að berast til barnaverndar um ofbeldi móðurinnar gegn þeim. Konan var sakfelld fyrir að hafa ítrekað beitt börn sín andlegum og líkamlegum refsingum, haft í hótunum við þau, ógnað þeim, sýnt þeim vanvirðandi háttsemi og sýnt þeim yfirgang, ruddalegt athæfi, sært þau og móðgað, líkt og fram kemur í dómnum. Fram kemur að hún hafi sparkað í þrjú yngri börn sín, slegið í þau, hrint þeim og togað í hár þeirra. Þá tók hún þau kverkataki, kastaði í þau hlutum og læsti þau fyrir utan heimili þeirra. Henni var einnig gefið að sök að hafa slegið þeim utan í veggi, klipið þau og hótað að drepa þau. Sagði hún að hún „ vildi að þau væru dauð, hún hataði þau og að hún óskaði þess að þau hefðu aldrei fæðst. Þá kall­ aði hún börnin „hóruunga“, „hálf­ vita“, „mother fuckera hórur“ og „mellur“. Faðir barnanna bar vitni og sagði það kraftaverk að ekkert þeirra væri dáið vegna ofbeldisins. Móðirin krafðist sýknu fyrir dómi og bar fyrir sig að hún hefði átt við geðræna erfiðleika að stríða frá árinu 1998. Ásakaði hún barns­ föður sinn um að heilaþvo börnin. Í mars á seinasta ári var dag­ móðir á höfuðborgarsvæðinu sak­ felld fyrir líkamsárás á 20 mánaða stúlku sem hafði verið í hennar umsjá ásamt þremur öðrum börn­ um. Í október 2016 var litla stúlkan flutt á bráðamóttöku með tals­ verða áverka. Hélt dagmóðirin því fram að hún hefði komið að stúlk­ unni liggjandi á gólfinu fyrir aftan IKEA­barnastól í eldhúsinu. Vakthafandi læknir taldi hins vegar að áverkarnir á stúlkunni væru ekki í samræmi við þá frá­ sögn, en barnið var meðal annars með mar á andliti og hálsi. Málið var tilkynnt til lögreglu. Erlendir réttarmeinafræðingar sem kallaðir voru til við rannsókn málsins sögðu að ekki væri hægt að útskýra áverkana með einu falli heldur benti flest til þess að litla stúlkan hefði orðið fyrir ofbeld­ isverknaði líkt og löðrungum og höggum. Dagmóðirin neitaði alfarið sök í málinu. Þegar málið kom upp hafði hún starfað sem dagforeldri í átta ár og ekki hafði áður borist kvörtun vegna starfa hennar. Konan var dæmd í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi og þar að auki gert að greiða hálfa milljón króna í miskabætur. H inn dæmigerði glæpa­ maður í huga okkar er ungur karlmaður enda er sú raunin í flestum til­ vikum. Samkvæmt opinber­ um skýrslum bæði hér á landi og erlendis eru konur í miklum minnihluta af þeim sem brjóta af sér. Hlutdeild kvenna er þó ólík eftir brotaflokkum. Að jafnaði fremja þær ekki nema 10–30 pró­ sent af öllum hegningarlagabrot­ um. Brot kvenna tengjast yfirleitt minniháttar auðgunarbrotum, hnupli og þjófnaði, skjalafalsi, vændi og neyslu fíkniefna. Alvar­ legir ofbeldisglæpir, meiriháttar auðgunar­ og fíkniefnabrot, við­ skipta­ og pólitískir glæpir, eru mun oftar framdir af körlum. En konur fremja líka alvar­ leg brot en bara í minna mæli en karlar. Yfir 80 prósent mann­ drápa á Íslandi eru framin af körlum, mestmegnis dráp á öðr­ um körlum. Konur drepa, en yfir­ leitt einhvern karl sem þær eru í tilfinningasambandi við, stund­ um í sjálfsvörn, eða sem við­ brögð við langvarandi ofbeldi. Afar fátítt er að þeir sem dæmdir eru fyrir manndráp fremji ann­ að dráp. Hér á landi hefur þó ein kona verið dæmd fyrir tvö mann­ dráp og konur dæmdar fyrir dráp á afkvæmum sínum. Konur og karlar í fangelsi Fangelsistölur eru mjög lýsandi veruleiki fyrir þann mun sem er á glæpum kynjanna. Sem dæmi má nefna að hér á landi eru kon­ ur að jafnaði innan við tíu í fang­ elsi á móti um 160 körlum. Hlut­ föllin eru ekki ósvipuð erlendis. Ítarlegri greining eftir Helga Gunnlaugsson verður birt í næsta tölublaði DV. Helgi Gunnlaugsson Prófessor í félagsfræði við H.Í. DRAUMASAMFÉLAG EF KARLAR MYNDU HEGÐA SÉR EINS OG KONUR? Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur og pró- fessor í félagsfræði við HÍ HLÍN OG MALÍN OG FJÁRKÚGUNARMÁLIÐ „HÚN STAKK HANN, HÚN STAKK HANN!“ HÓTAÐI AÐ DREPA BÖRNIN SÍN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.