Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Page 14
14 5. apríl 2019FRÉTTIR an. Ég borðaði fullt af betablokkurum, sem eru hjartapillur, lenti á sjúkra- húsi og var vart hugað líf. Lögreglan sótti mömmu í forgangsakstri upp á Flúðir þar sem þetta átti bara að vera búið þarna. Ég hef nokkrum sinnum reynt sjálfsvíg, flest skiptin voru ákall um hjálp en í tvö skipti var mér virki- lega alvara og ég endaði í öndunar- vél. Í fyrra skiptið var ákveðið eftir einn og hálfan sólarhring að taka mig úr öndunarvélinni þar sem þeir töldu mig anda sjálfan og ekki ástæða til að hafa mig áfram í vélinni. Ég tók hins vegar vel við mótefnum og var vaknaður um kvöldið,“ segir Unnar og bætir við að honum hafi hlýnað um hjartað að sjá hversu margir vinir og ætt- ingjar voru tilbúnir til að koma upp á spítala meðan hann barðist fyrir lífi sínu. „En á sama tíma hugsaði ég að nú ætti ég enga kærustu til að hætta með mér svo ég gæti gert þetta aftur. Ég varð því bara að setja upp grímuna og halda áfram og ég held að ég hafi verið kominn á fyll- erí strax seinna um kvöldið.“ Óskrifaðar reglur gilda í undirheimunum Aðspurður hvernig afbrot hann stundaði á neyslutímanum seg- ist Unnar ekkert geta logið til um það, þar sem afbrot hans eru skráð í opin berum gögnum. Hann á að baki dóma fyrir ofbeldisbrot og hefur setið í fangelsi, bæði á Kvía- bryggju og Litla-Hrauni. „Mér finnst oft erfitt að segja fólki að ég skilji ofbeldi í þeim heimi sem neyslan er og fólki finnst oft erfitt að skilja það. Þetta er harður heim- ur og þeir sem koma nýir inn í hann semja ekki reglurnar. Neysla og undirheimar snúast um óskrif- aðar reglur og þær eru strangar. Ég hef lagt mikið á mig frá því að ég varð edrú til að skilja af hverju ég gerði ákveðna hluti, af hverju ég kom mér ekki út úr ákveðnum aðstæðum og hvernig ég get bætt fyrir þetta í dag. Þetta er ógeðsleg- ur heimur og maður verður sjálf- hverfur og neyðist til þess að vera það, þetta er bara hver fyrir sig, þótt þú sért í vinahópi þá verður þú að passa upp á þig og passa að þú lifir af næsta dag. Lært siðleysi er líklega lýsingin sem ég myndi nota, eins og maður hættir að kippa sér upp við að vinir manns deyi: „Æ, leiðinlegt það hefði verið gaman ef hann hefði náð sér á strik“.“ Fjöl- margir vinir Unnars hafa fallið frá vegna neyslu. Árið 2012 afplánaði Unnar dóm á Litla-Hrauni í þrjá mánuði og seinna fór hann á Kvíabryggju. Hann er gagnrýninn á stöðu fang- elsismála og segir að markmiðið eigi að vera að skila föngum aftur út í samfélagið sem bættum og betri einstaklingum, sú sé þó ekki raunin. „Ég hafði þá trú að kerf- ið væri þannig að ég færi þar inn og fengi öll verkfæri til að bæta mig. Litla-Hraun er best hvað það varðar, ef þú vilt bæta þig þá ferðu þangað, þar er skóli, vinna, þar eldar þú sjálfur og allir eru í matar- klúbbum. Fyrst þegar ég kom þar inn fannst mér það einstak- lega lúðalegt, allir í matarklúbb- um að elda saman,“ segir Unn- ar. „En samveran, eldamennskan og ábyrgðin gefur svo mikið, það er Margréti Frímann, sem kom þessu á, að þakka. Margrét er upp- hafið að björgunarlífinu mínu. Á annan í jólum átti ég að losna út og Magga gerði sér ferð austur til að hitta mig. Hún sagðist vilja hafa mig lengur inni, ég væri ekki til- búinn til að fara. Ég sagði hana hins vegar engu ráða um það, ég væri farinn á fyllerí og ég var dott- inn í það áður en ég kom út fyrir hliðið.“ Kvíabryggju segir Unnar hins vegar aðeins vera geymslu, þar sé ekkert við að vera, og æðislegt starfsfólk og nærsamfélag sem sé allt af vilja gert til að gera föng- um lífið bærilegt, en geti þar engu breytt um, því miður. „Það var barist fyrir því að þar væri skóli og hann var starfræktur þegar ég var þar, en svo lagður niður stuttu eft- ir að ég fór þaðan. Á Litla-Hrauni er skólastofa og þú getur stundað nám þar á eigin hraða, hvort sem þú tekur áfanga á einni viku eða einu ári.“ Á sama hátt gagnrýnir Unn- ar hvað bíður fanga eftir að þeir hafa afplánað sína fangavist. „Ég hef ekki enn hitt neinn sem vill ekki fá afbrotamenn betri út í sam félagið, en við erum að skila reiðum einstaklingum út. Þú ert frelsissviptur og í seinni tíð hefur það setið í mér. Ég veit að ég var að borga fyrir það sem ég gerði. Hins vegar, þegar ég kem út, þá er mér bara hent út í samfélagið, ég nýtti mér allt sem ég gat og ég vann hörðum höndum í að bæta mig, kem svo út og það er ekkert.“ Brennur fyrir stjórnmál og bætt samfélag Unnar Þór er í dag í sjálfboðastarfi sem gjaldkeri Pírata og prókúru- hafi, og hefur setið tvisvar í stjórn Pírata í Reykjavík. „Þeir gáfu mér tækifæri til að sýna hvað í mér býr, treystu mér fyrir trúnaðarstöðu og veittu mér ábyrgð að bera. Þetta er samfélagshlutinn sem gaf mér nýtt líf, þetta er svo gefandi og mér þykir vænt um flokkinn minn og fólkið í honum.“ Hann brennur fyrir stjórnmál- in og segist eiga sér það markmið að komast einn daginn á þing. „Ég hef alltaf haft brennandi áhuga á stjórnmálum, en var löngu búinn að ákveða að þau væru eitthvað sem ég væri búinn að skemma fyrir mér,“ segir Unnar, sem barð- ist ötullega fyrir því árið 2016 að lítill drengur færi ekki í fóstur til vandalausra. Málinu lauk með því að drengurinn flutti til föður síns í Danmörku, sem fékk fullt forræði yfir syni sínum. „Þarna sá ég að ég gat haft áhrif, ég bjargaði litlu barni. Ég ákvað strax í upphafi að fela ekki fortíð mína, bæði af því að hún er hluti af mér og eðlilega, í pólitík, verður hún skotspónn. Ég hef eitthvað fram að færa og ég ætla ekki að hlusta á fýlupokana sem vilja bara skemma fyrir mér með fortíð minni. Ég ætla að nota hana, frekar en láta hana og alla eymdina úr henni verða til einsk- is.“ „Ég ætla ekki að horfa á eftir börnunum mínum í kistuna“ Geðheilbrigðis-, vímuefna-, með- ferðar- og fangelsismál eru málin sem Unnar telur sig geta haft áhrif á. „Ég hef veigrað mér við að taka þátt í umræðunni um neyslu, vímuefni, lögleiðingu, afglæpa- væðingu, regluvæðingu eða hvað sem fólk vill kalla það. Mér hefur ekki fundist ég gjaldgengur í þessa umræðu og skammast mín fyrir að ætla að segja fólki til eins og ég viti betur. En fólkið sem er að setja reglur og smíða ramma veit oft ekki um hvað það er að tala um. Okkur finnst eðlilegt að eiga sam- ráð við fatlað fólk um þeirra mál- efni, foreldra um málefni barna, aðilar máls eðlilega ættu að fá að vera hluti af ferlinu, annað er svo gömul hugsun. Ég hef heilmikið fram að færa á þessu sviði, ég er með 10 ára reynslu úr neyslu og meðferðum. Viltu frekar einhvern sem hefur aldrei kynnst þessu? Því lengur sem við hundsum þetta, því fleiri börn okkar deyja. Mig langar til að nýta þessa við- bjóðslegu þekkingu sem ég er með, ég vil ekki að börnin mín eða barnabörnin verði í sömu sporum og ég var. Við þurfum að breyta samfélaginu og bjarga eins mörg- um og við getum. Við erum með þekkinguna, eymdina, gleðina, öll tæki og tól, við þurfum bara að hætta að ýta þessu á undan okkur og fara að framkvæma,“ segir Unn- ar, en móðursystir hans jarðaði dóttur sína, sem var á sama aldri og Unnar. Hún svipti sig lífi eftir langvarandi neyslu. „Fjölskyldan mun aldrei bera þess bætur. Ég ætla ekki að horfa á eftir börnun- um mínum í kistuna, það á enginn að þurfa að jarða barnið sitt.“ „Fortíðin minnir mig á hvert ég er kominn“ Sjálfur hefur Unnar farið í fjölda meðferða og flestar á Vogi. „Flest- ir fara í 20–30 meðferðir, sú fyrsta setur af stað ákveðið ferli. Ég er oft spurður ráða um hvaða ár- angri meðferð muni skila þegar börn vina minna eða kunningja eru komin í meðferð og ég svara hreint út að þau skuli ekki gera ráð fyrir sjáanlegum árangri í þeirri fyrstu eða fyrstu tíu. Það sem ger- ist er hins vegar að það fer ferli af stað í höfðinu á barninu, þekking og verkfæri sem það lærir að nýta. Fortíðin er alltaf að bíta mig í rassinn, en um leið og einhver minnir mig á fortíð mína þá er hann á sama tíma að minna mig á hversu langt ég er kominn,“ segir Unnar. „Ég er kannski ekki meðvit- aður um allan skaðann sem ég olli á þeim tíma sem ég var í neyslu, en ég reyni á hverjum degi að gera eitthvað gott til að bæta fyrir það, sem er kannski klisjukennt en engu að síður staðreynd. Síðustu þrjú ár hafa verið bestu ár ævi minnar. Ég hef feng- ið að mynda einstakt samband við börnin mín, dóttur mína og börnin tvö sem konan mín átti fyrir, konuna mína, móður mína. Hvernig gat ég eytt öllum þessum árum í kjaftæði þar sem allt sner- ist um eyðileggingu, tortímingu á sjálfum mér, þar sem hver dagur snerist um að finna ástæðu til að slútta þessu,“ segir Unnar. „Í dag reyni ég að vera einlæg- ur og æðrulaus, gera vel og betur á hverjum degi, passa upp á börn- in mín. Ég gæti ekki átt fallegra líf eins og ég átti ógeðslegt líf áður. Ég styrkist í þeirri sannfæringu minni á hverjum degi að það er von fyrir alla, ég er lifandi sönnun þess.“ n   Farðu inn á www.youtube.com og sláðu inn: Þá sérðu Microlift video Sjón er sögu ríkari Lithium Rafhlaða Aðeins 3 kg 2 ára ábyrgð Leiser skornir gaflar eru sterkir og sniðnir til að fara auðveldlega inn og út úr bretti.Tekur innan við mínútu að skipta um rafhlöðu. ETNA ehf. Til sýnis hjá Pmt, Krókhálsi 1. Upplýsingar og fyrirspurnir í síma 698 1539 - email: siggi@pmt.is cPx7PPYvNUM Rafdrifin lyfting og keyrsla Með einu handtaki er tjakki breytt úr rafmagnstjakki í handtjakk. UK/PG stórnbúnaður. Hágæðamótor. Traust drifhjól.    ET20MH-P 2,0t ET15MH-P 1,5t   ET15MH 1,5t ET20MH 2,0t                                                               ­ €   ‚      ­  ƒ   „…­   †       „†‡€ó­ ˆ „…­  ­        ­   „ €€‚  ˆ „…­€  ­ ˆ  †     „­‰Š ­       ­          „Ég er með 10 ára reynslu úr neyslu og meðferðum Helflúraður Unnar segist fá stundum athugasemdir vegna flúrsins og telja margir að það sé frá afbrotaferlinum. Staðreyndin er sú að stærstan hluta fékk hann eftir að hann varð edrú.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.