Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Side 14
14 5. apríl 2019FRÉTTIR
an. Ég borðaði fullt
af betablokkurum,
sem eru hjartapillur, lenti á sjúkra-
húsi og var vart hugað líf. Lögreglan
sótti mömmu í forgangsakstri upp
á Flúðir þar sem þetta átti bara að
vera búið þarna.
Ég hef nokkrum sinnum reynt
sjálfsvíg, flest skiptin voru ákall um
hjálp en í tvö skipti var mér virki-
lega alvara og ég endaði í öndunar-
vél. Í fyrra skiptið var ákveðið eftir
einn og hálfan sólarhring að taka
mig úr öndunarvélinni þar sem
þeir töldu mig anda sjálfan og
ekki ástæða til að hafa mig áfram
í vélinni. Ég tók hins vegar vel við
mótefnum og var vaknaður um
kvöldið,“ segir Unnar og bætir við
að honum hafi hlýnað um hjartað
að sjá hversu margir vinir og ætt-
ingjar voru tilbúnir til að koma upp
á spítala meðan hann barðist fyrir
lífi sínu. „En á sama tíma hugsaði
ég að nú ætti ég enga kærustu til
að hætta með mér svo ég gæti gert
þetta aftur. Ég varð því bara að setja
upp grímuna og halda áfram og ég
held að ég hafi verið kominn á fyll-
erí strax seinna um kvöldið.“
Óskrifaðar reglur gilda í
undirheimunum
Aðspurður hvernig afbrot hann
stundaði á neyslutímanum seg-
ist Unnar ekkert geta logið til um
það, þar sem afbrot hans eru skráð
í opin berum gögnum. Hann á að
baki dóma fyrir ofbeldisbrot og
hefur setið í fangelsi, bæði á Kvía-
bryggju og Litla-Hrauni. „Mér
finnst oft erfitt að segja fólki að
ég skilji ofbeldi í þeim heimi sem
neyslan er og fólki finnst oft erfitt
að skilja það. Þetta er harður heim-
ur og þeir sem koma nýir inn í
hann semja ekki reglurnar. Neysla
og undirheimar snúast um óskrif-
aðar reglur og þær eru strangar.
Ég hef lagt mikið á mig frá því að
ég varð edrú til að skilja af hverju
ég gerði ákveðna hluti, af hverju
ég kom mér ekki út úr ákveðnum
aðstæðum og hvernig ég get bætt
fyrir þetta í dag. Þetta er ógeðsleg-
ur heimur og maður verður sjálf-
hverfur og neyðist til þess að vera
það, þetta er bara hver fyrir sig,
þótt þú sért í vinahópi þá verður þú
að passa upp á þig og passa að þú
lifir af næsta dag. Lært siðleysi er
líklega lýsingin sem ég myndi nota,
eins og maður hættir að kippa sér
upp við að vinir manns deyi: „Æ,
leiðinlegt það hefði verið gaman
ef hann hefði náð sér á strik“.“ Fjöl-
margir vinir Unnars hafa fallið frá
vegna neyslu.
Árið 2012 afplánaði Unnar
dóm á Litla-Hrauni í þrjá mánuði
og seinna fór hann á Kvíabryggju.
Hann er gagnrýninn á stöðu fang-
elsismála og segir að markmiðið
eigi að vera að skila föngum aftur
út í samfélagið sem bættum og
betri einstaklingum, sú sé þó ekki
raunin. „Ég hafði þá trú að kerf-
ið væri þannig að ég færi þar inn
og fengi öll verkfæri til að bæta
mig. Litla-Hraun er best hvað það
varðar, ef þú vilt bæta þig þá ferðu
þangað, þar er skóli, vinna, þar
eldar þú sjálfur og allir eru í matar-
klúbbum. Fyrst þegar ég kom
þar inn fannst mér það einstak-
lega lúðalegt, allir í matarklúbb-
um að elda saman,“ segir Unn-
ar. „En samveran, eldamennskan
og ábyrgðin gefur svo mikið, það
er Margréti Frímann, sem kom
þessu á, að þakka. Margrét er upp-
hafið að björgunarlífinu mínu. Á
annan í jólum átti ég að losna út
og Magga gerði sér ferð austur til
að hitta mig. Hún sagðist vilja hafa
mig lengur inni, ég væri ekki til-
búinn til að fara. Ég sagði hana
hins vegar engu ráða um það, ég
væri farinn á fyllerí og ég var dott-
inn í það áður en ég kom út fyrir
hliðið.“
Kvíabryggju segir Unnar hins
vegar aðeins vera geymslu, þar
sé ekkert við að vera, og æðislegt
starfsfólk og nærsamfélag sem sé
allt af vilja gert til að gera föng-
um lífið bærilegt, en geti þar engu
breytt um, því miður. „Það var
barist fyrir því að þar væri skóli og
hann var starfræktur þegar ég var
þar, en svo lagður niður stuttu eft-
ir að ég fór þaðan. Á Litla-Hrauni
er skólastofa og þú getur stundað
nám þar á eigin hraða, hvort sem
þú tekur áfanga á einni viku eða
einu ári.“
Á sama hátt gagnrýnir Unn-
ar hvað bíður fanga eftir að þeir
hafa afplánað sína fangavist. „Ég
hef ekki enn hitt neinn sem vill
ekki fá afbrotamenn betri út í
sam félagið, en við erum að skila
reiðum einstaklingum út. Þú ert
frelsissviptur og í seinni tíð hefur
það setið í mér. Ég veit að ég var að
borga fyrir það sem ég gerði. Hins
vegar, þegar ég kem út, þá er mér
bara hent út í samfélagið, ég nýtti
mér allt sem ég gat og ég vann
hörðum höndum í að bæta mig,
kem svo út og það er ekkert.“
Brennur fyrir stjórnmál og bætt
samfélag
Unnar Þór er í dag í sjálfboðastarfi
sem gjaldkeri Pírata og prókúru-
hafi, og hefur setið tvisvar í stjórn
Pírata í Reykjavík. „Þeir gáfu mér
tækifæri til að sýna hvað í mér býr,
treystu mér fyrir trúnaðarstöðu og
veittu mér ábyrgð að bera. Þetta
er samfélagshlutinn sem gaf mér
nýtt líf, þetta er svo gefandi og mér
þykir vænt um flokkinn minn og
fólkið í honum.“
Hann brennur fyrir stjórnmál-
in og segist eiga sér það markmið
að komast einn daginn á þing. „Ég
hef alltaf haft brennandi áhuga á
stjórnmálum, en var löngu búinn
að ákveða að þau væru eitthvað
sem ég væri búinn að skemma
fyrir mér,“ segir Unnar, sem barð-
ist ötullega fyrir því árið 2016 að
lítill drengur færi ekki í fóstur til
vandalausra. Málinu lauk með því
að drengurinn flutti til föður síns í
Danmörku, sem fékk fullt forræði
yfir syni sínum. „Þarna sá ég að
ég gat haft áhrif, ég bjargaði litlu
barni.
Ég ákvað strax í upphafi að fela
ekki fortíð mína, bæði af því að
hún er hluti af mér og eðlilega, í
pólitík, verður hún skotspónn. Ég
hef eitthvað fram að færa og ég
ætla ekki að hlusta á fýlupokana
sem vilja bara skemma fyrir mér
með fortíð minni. Ég ætla að nota
hana, frekar en láta hana og alla
eymdina úr henni verða til einsk-
is.“
„Ég ætla ekki að horfa á eftir
börnunum mínum í kistuna“
Geðheilbrigðis-, vímuefna-, með-
ferðar- og fangelsismál eru málin
sem Unnar telur sig geta haft áhrif
á.
„Ég hef veigrað mér við að taka
þátt í umræðunni um neyslu,
vímuefni, lögleiðingu, afglæpa-
væðingu, regluvæðingu eða hvað
sem fólk vill kalla það. Mér hefur
ekki fundist ég gjaldgengur í þessa
umræðu og skammast mín fyrir
að ætla að segja fólki til eins og ég
viti betur. En fólkið sem er að setja
reglur og smíða ramma veit oft
ekki um hvað það er að tala um.
Okkur finnst eðlilegt að eiga sam-
ráð við fatlað fólk um þeirra mál-
efni, foreldra um málefni barna,
aðilar máls eðlilega ættu að fá að
vera hluti af ferlinu, annað er svo
gömul hugsun. Ég hef heilmikið
fram að færa á þessu sviði, ég er
með 10 ára reynslu úr neyslu og
meðferðum. Viltu frekar einhvern
sem hefur aldrei kynnst þessu?
Því lengur sem við hundsum
þetta, því fleiri börn okkar deyja.
Mig langar til að nýta þessa við-
bjóðslegu þekkingu sem ég er
með, ég vil ekki að börnin mín eða
barnabörnin verði í sömu sporum
og ég var. Við þurfum að breyta
samfélaginu og bjarga eins mörg-
um og við getum. Við erum með
þekkinguna, eymdina, gleðina,
öll tæki og tól, við þurfum bara að
hætta að ýta þessu á undan okkur
og fara að framkvæma,“ segir Unn-
ar, en móðursystir hans jarðaði
dóttur sína, sem var á sama aldri
og Unnar. Hún svipti sig lífi eftir
langvarandi neyslu. „Fjölskyldan
mun aldrei bera þess bætur. Ég
ætla ekki að horfa á eftir börnun-
um mínum í kistuna, það á enginn
að þurfa að jarða barnið sitt.“
„Fortíðin minnir mig á hvert ég
er kominn“
Sjálfur hefur Unnar farið í fjölda
meðferða og flestar á Vogi. „Flest-
ir fara í 20–30 meðferðir, sú fyrsta
setur af stað ákveðið ferli. Ég er
oft spurður ráða um hvaða ár-
angri meðferð muni skila þegar
börn vina minna eða kunningja
eru komin í meðferð og ég svara
hreint út að þau skuli ekki gera ráð
fyrir sjáanlegum árangri í þeirri
fyrstu eða fyrstu tíu. Það sem ger-
ist er hins vegar að það fer ferli af
stað í höfðinu á barninu, þekking
og verkfæri sem það lærir að nýta.
Fortíðin er alltaf að bíta mig
í rassinn, en um leið og einhver
minnir mig á fortíð mína þá er
hann á sama tíma að minna mig
á hversu langt ég er kominn,“ segir
Unnar. „Ég er kannski ekki meðvit-
aður um allan skaðann sem ég olli
á þeim tíma sem ég var í neyslu,
en ég reyni á hverjum degi að gera
eitthvað gott til að bæta fyrir það,
sem er kannski klisjukennt en
engu að síður staðreynd.
Síðustu þrjú ár hafa verið
bestu ár ævi minnar. Ég hef feng-
ið að mynda einstakt samband
við börnin mín, dóttur mína og
börnin tvö sem konan mín átti
fyrir, konuna mína, móður mína.
Hvernig gat ég eytt öllum þessum
árum í kjaftæði þar sem allt sner-
ist um eyðileggingu, tortímingu á
sjálfum mér, þar sem hver dagur
snerist um að finna ástæðu til að
slútta þessu,“ segir Unnar.
„Í dag reyni ég að vera einlæg-
ur og æðrulaus, gera vel og betur
á hverjum degi, passa upp á börn-
in mín. Ég gæti ekki átt fallegra líf
eins og ég átti ógeðslegt líf áður. Ég
styrkist í þeirri sannfæringu minni
á hverjum degi að það er von fyrir
alla, ég er lifandi sönnun þess.“ n
Farðu inn á
www.youtube.com
og sláðu inn:
Þá sérðu Microlift video
Sjón er sögu ríkari
Lithium
Rafhlaða
Aðeins 3 kg
2 ára ábyrgð
Leiser skornir gaflar
eru sterkir og sniðnir
til að fara auðveldlega
inn og út úr bretti.Tekur innan við mínútu
að skipta um rafhlöðu.
ETNA ehf. Til sýnis hjá Pmt, Krókhálsi 1. Upplýsingar og fyrirspurnir í síma 698 1539 - email: siggi@pmt.is
cPx7PPYvNUM
Rafdrifin lyfting
og keyrsla
Með einu handtaki
er tjakki breytt úr
rafmagnstjakki í
handtjakk.
UK/PG stórnbúnaður.
Hágæðamótor.
Traust drifhjól.
ET20MH-P 2,0t
ET15MH-P 1,5t
ET15MH 1,5t
ET20MH 2,0t
ó
„Ég er
með 10
ára reynslu
úr neyslu og
meðferðum
Helflúraður Unnar
segist fá stundum
athugasemdir vegna
flúrsins og telja
margir að það sé frá
afbrotaferlinum.
Staðreyndin er sú að
stærstan hluta fékk
hann eftir að hann
varð edrú.