Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 30
30 FÓKUS - VIÐTAL 5. apríl 2019 ÚÍA. En hugurinn hneigðist sífellt meira að lyftingunum.“ Magnús hóf að keppa á Íslands- mótum í lyftingum og gekk vel. Rúmlega tvítugur flutti hann til Reykjavíkur og hóf vélvirkjunar- nám í Iðnskólanum. Óskar var þá einnig fluttur aftur suður og hafði ásamt fleirum opnað lyftingaað- stöðu í Engihjallanum og Magnús æfði hjá honum. Sú stöð tók við af hinu gamla Jakabóli í Laugar- dalnum. Um tíma höfðu krafta- menn einnig aðstöðu við Smiðju- veg skammt frá þeim stað þar sem hið nýja Jakaból stendur nú. Mikil gróska var í kraftlyftingunum á þessum árum. Skúli Óskarsson hafði sett heimsmet og Jón Páll Sig- marsson var kominn fram sem ný stjarna. „Ég man eftir að hafa séð Jón Pál standa á pallinum og kallað þessa frægu línu: „Ekkert mál fyrir Jón Pál!“ Þá sagði ég við félaga mína sem horfðu á þetta með mér: „Bíð- ið bara, þarna verð ég einn daginn.“ Þeim fannst þetta voða fyndið. En hlógu ekki að þessu nokkrum árum síðar,“ segir Magnús og glottir. Magnús leit mjög upp til Jóns Páls á þessum tíma. Hann átti þó einnig fyrirmyndir úti í heimi, Bandaríkjamennina Ed Coan og Bill Kazmaier. Leiðir Magnúsar og Kazmaier áttu eftir að liggja saman síðar. Ekki heppni Magnús segir sína gæfu hafa verið fólgna í því að taka mjög vel við þjálfun. „Ég var að gera nákvæmlega sömu æfingar og margir aðrir en ég bætti mig meira. Margir undruðust á því hversu vel líkaminn aðlagaðist þjálfuninni. Ég setti unglingamet og Íslandsmet. Síðan fór ég út og varð Evrópumeistari og vann stiga- keppnina, sem var mjög óvenjulegt fyrir mann í þyngri flokk, 125 kíló- gramma. Yfirleitt voru það 60 kílóa mennirnir sem unnu það.“ Hann fór einnig að fikta við aflraunir á þessum tíma. Fyrsta stóra mótið var á Húsavík og hljóp Magnús þá í skarðið fyrir Jón Pál sem var meiddur. Einnig keppti hann á aflraunamótum í Skotlandi og í Kanada. Gekk Magnúsi svo vel að hann fékk boð um að vera vara- maður í keppninni Sterkasti maður heims árið 1991 á Tenerife. Sá hann þá einnig um að prófa greinarn- ar fyrir sjónvarpsmyndavélarnar. Fimm vikum fyrir keppnina fékk Magnús símhringingu þar sem honum var sagt að Jón Páll hefði rifið upphandlegginn og þeir vildu að hann hlypi í skarðið. Þetta voru stórir skór til að stíga í? „Já, Jón Páll var ríkjandi meist- ari og hafði unnið fjórum sinnum. Mér fannst mikill heiður að fá að keppa fyrir Íslands hönd. Auðvitað var þetta samt pressa. Við Jón Páll vorum búnir að vera mjög jafnir á aflraunamótunum um sumarið. Ég var í mjög góðu formi og tilbúinn í allt. En þegar ég hitti hina kepp- endurna á flugvellinum í London fannst mér ég vera pínulítill.“ Þarna voru meðal annarra mættir hinn 213 sentimetra hái Hollendingur Ted Van Der Parre og Austurríkismaðurinn Manfred Höberl með sína tröllvöxnu upp- handleggi. Þrátt fyrir þetta vann Magnús keppnina með töluverð- um yfirburðum. Hann var svo langt á undan að í síðustu greininni þurfti hann ekkert að leggja á sig. „Eftir keppnina var byrjað að skvaldra um að þetta hefði verið heppni. Minnt var á að hvorki Jón Páll né Jamie Reeves, tveir síðustu meistarar, hefði verið þarna. Til þess að sanna að þetta hefði ekki verið heppni hélt ég áfram,“ segir Magnús. Annar sigurinn sætastur Árið eftir var keppnin haldin á Ís- landi. Magnús var þar grátlega ná- lægt sigri en hafnaði í öðru sæti á eftir Van Der Parre með aðeins eins stigs mun. „Ég gerði afdrifarík mistök með Húsavatnshelluna í síðustu grein. Ég lyfti henni allt of hátt því mér fannst hún svo létt en sá ekki hvert ég var að ganga. Auk þess lagðist hún á brjóstkassann og hefti öndunina. Þegar ég reyndi að láta hana síga missti ég hana. Þetta kostaði mig titilinn.“ Var þetta mesta eftirsjáin á ferl- inum? „Já, ég átti að vinna þetta. Ég var með sigurinn í höndunum. Auk þess var ég á heimavelli.“ Aftur hafnaði Magnús í öðru sæti árið 1993 í Frakklandi. En sú keppni var háð skömmu eftir svip- legt fráfall Jóns Páls. Hafði það mikið að segja fyrir Magnús. „Hausinn á mér var ekki á rétt- um stað. Eftir þá keppni áttaði ég mig samt á því að ef ég hefði unnið mína heimavinnu hefði ég sigr- að. Þetta hvatti mig til að æfa stífar og undirbúa mig betur. Keppnin árið 1994 í Suður-Afríku var mjög hörð og Manfred Höberl hafði ver- ið hálfósigrandi þá um sumarið. Þetta endaði í einvígi með stein- ana á milli mín og hans og ég hafði betur. Þetta var mín stærsta stund á ferlinum og jafnframt erfiðasta mótið. Ég var svo úrvinda að ég neitaði að taka flugið heim daginn eftir. Ég kláraði mig alveg og ætlaði ekki að halda áfram. Svo gleymdi ég því auðvitað,“ segir Magnús og hlær. Tvö næstu mót, á Bahama- eyjum og Máritíus, vann Magn- ús nokkuð örugglega. Aðeins hann og Bill Kazmaier hafa unnið keppnina þrisvar sinnum í röð. Gaf Kazmaier olnbogaskot eftir svindl Hverjir voru þínir helstu styrkleik- ar? „Ég var sagður hraður, úthalds- góður og gripsterkur. En mér gekk alveg jafn vel í greinum sem gengu út á hrátt afl. Minn styrkur var að vera jafn góður í öllu. Það er hægt að vinna svona mót án þess að vinna eina einustu grein, það er ef þú ert annar í þeim öllum. Ég vildi aldrei vera of þungur, yfir- leitt létti ég mig fyrir keppni til að verða hreyfanlegri og hafa betra úthald. Flestir aðrir þyngdu sig fyrir mótin.“ Magnús keppti á fjölmörgum öðrum aflraunamótum, þar á meðal í liðakeppni með Hjalta Úrsus Árnasyni á Pure Strength. Árið 1989 lentu þeir í óvæntri upp- ákomu gegn ameríska liðinu sem samanstóð af Bill Kazmaier og O.D. Wilson heitnum. „Við vorum að hlaupa með tunnur eftir ákveðinni leið. Við þurftum að hlaupa í gegnum göng og það var ekki mikið pláss inni í þeim. Kazmaier var það sem kall- ast mætti „dirty player“,“ segir Magnús og hlær. „Sérstakur karl og virtist þrífast á því ef hann gat komist upp með eitthvert svindl. Hann var búinn að vera að ýta á mig inni í göngunum en ég lét það ekki á mig fá. Síðan gerðist það að Wilson réð ekki við sína tunnu og missti hana yfir vegg ofan af brú. Hann þurfti síðan að sækja hana undir brúna. Kazmaier sá hvað kom fyrir félaga sinn og vildi tefja mig á meðan Wilson sótti tunnuna. Þá ýtti hann við mér svo að ég Frost í kortunum? Ekki láta kuldann koma þér í vandræði Komdu við og láttu mæla rafgeyminn þinn! TUDOR Alltaf öruggt start eftir kaldar nætur MIKIÐ ÚRVAL, TRAUST OG FAGLEG ÞJÓNUSTA Bíldshöfða 12 / S. 577 1515 / skorri.is Við mælum rafgeyma og skiptum um Hr að þjónusta „Á þessum tíma voru kýrnar hand- mjólkaðar og ég fékk alltaf glas af ylvolgri mjólk eftir mjaltir MYND: HANNA/DV Sterkasti maður heims Magnús heldur hér tveimur bifreiðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.