Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Page 30
30 FÓKUS - VIÐTAL 5. apríl 2019
ÚÍA. En hugurinn hneigðist sífellt
meira að lyftingunum.“
Magnús hóf að keppa á Íslands-
mótum í lyftingum og gekk vel.
Rúmlega tvítugur flutti hann til
Reykjavíkur og hóf vélvirkjunar-
nám í Iðnskólanum. Óskar var þá
einnig fluttur aftur suður og hafði
ásamt fleirum opnað lyftingaað-
stöðu í Engihjallanum og Magnús
æfði hjá honum. Sú stöð tók við
af hinu gamla Jakabóli í Laugar-
dalnum. Um tíma höfðu krafta-
menn einnig aðstöðu við Smiðju-
veg skammt frá þeim stað þar sem
hið nýja Jakaból stendur nú. Mikil
gróska var í kraftlyftingunum á
þessum árum. Skúli Óskarsson
hafði sett heimsmet og Jón Páll Sig-
marsson var kominn fram sem ný
stjarna.
„Ég man eftir að hafa séð Jón Pál
standa á pallinum og kallað þessa
frægu línu: „Ekkert mál fyrir Jón
Pál!“ Þá sagði ég við félaga mína
sem horfðu á þetta með mér: „Bíð-
ið bara, þarna verð ég einn daginn.“
Þeim fannst þetta voða fyndið. En
hlógu ekki að þessu nokkrum árum
síðar,“ segir Magnús og glottir.
Magnús leit mjög upp til Jóns
Páls á þessum tíma. Hann átti þó
einnig fyrirmyndir úti í heimi,
Bandaríkjamennina Ed Coan og
Bill Kazmaier. Leiðir Magnúsar og
Kazmaier áttu eftir að liggja saman
síðar.
Ekki heppni
Magnús segir sína gæfu hafa verið
fólgna í því að taka mjög vel við
þjálfun.
„Ég var að gera nákvæmlega
sömu æfingar og margir aðrir en ég
bætti mig meira. Margir undruðust
á því hversu vel líkaminn aðlagaðist
þjálfuninni. Ég setti unglingamet
og Íslandsmet. Síðan fór ég út og
varð Evrópumeistari og vann stiga-
keppnina, sem var mjög óvenjulegt
fyrir mann í þyngri flokk, 125 kíló-
gramma. Yfirleitt voru það 60 kílóa
mennirnir sem unnu það.“
Hann fór einnig að fikta við
aflraunir á þessum tíma. Fyrsta
stóra mótið var á Húsavík og hljóp
Magnús þá í skarðið fyrir Jón Pál
sem var meiddur. Einnig keppti
hann á aflraunamótum í Skotlandi
og í Kanada. Gekk Magnúsi svo vel
að hann fékk boð um að vera vara-
maður í keppninni Sterkasti maður
heims árið 1991 á Tenerife. Sá hann
þá einnig um að prófa greinarn-
ar fyrir sjónvarpsmyndavélarnar.
Fimm vikum fyrir keppnina fékk
Magnús símhringingu þar sem
honum var sagt að Jón Páll hefði
rifið upphandlegginn og þeir vildu
að hann hlypi í skarðið.
Þetta voru stórir skór til að stíga í?
„Já, Jón Páll var ríkjandi meist-
ari og hafði unnið fjórum sinnum.
Mér fannst mikill heiður að fá að
keppa fyrir Íslands hönd. Auðvitað
var þetta samt pressa. Við Jón Páll
vorum búnir að vera mjög jafnir á
aflraunamótunum um sumarið. Ég
var í mjög góðu formi og tilbúinn
í allt. En þegar ég hitti hina kepp-
endurna á flugvellinum í London
fannst mér ég vera pínulítill.“
Þarna voru meðal annarra
mættir hinn 213 sentimetra hái
Hollendingur Ted Van Der Parre
og Austurríkismaðurinn Manfred
Höberl með sína tröllvöxnu upp-
handleggi. Þrátt fyrir þetta vann
Magnús keppnina með töluverð-
um yfirburðum. Hann var svo langt
á undan að í síðustu greininni
þurfti hann ekkert að leggja á sig.
„Eftir keppnina var byrjað að
skvaldra um að þetta hefði verið
heppni. Minnt var á að hvorki Jón
Páll né Jamie Reeves, tveir síðustu
meistarar, hefði verið þarna. Til
þess að sanna að þetta hefði ekki
verið heppni hélt ég áfram,“ segir
Magnús.
Annar sigurinn sætastur
Árið eftir var keppnin haldin á Ís-
landi. Magnús var þar grátlega ná-
lægt sigri en hafnaði í öðru sæti á
eftir Van Der Parre með aðeins eins
stigs mun.
„Ég gerði afdrifarík mistök
með Húsavatnshelluna í síðustu
grein. Ég lyfti henni allt of hátt því
mér fannst hún svo létt en sá ekki
hvert ég var að ganga. Auk þess
lagðist hún á brjóstkassann og
hefti öndunina. Þegar ég reyndi að
láta hana síga missti ég hana. Þetta
kostaði mig titilinn.“
Var þetta mesta eftirsjáin á ferl-
inum?
„Já, ég átti að vinna þetta. Ég var
með sigurinn í höndunum. Auk
þess var ég á heimavelli.“
Aftur hafnaði Magnús í öðru
sæti árið 1993 í Frakklandi. En sú
keppni var háð skömmu eftir svip-
legt fráfall Jóns Páls. Hafði það
mikið að segja fyrir Magnús.
„Hausinn á mér var ekki á rétt-
um stað. Eftir þá keppni áttaði ég
mig samt á því að ef ég hefði unnið
mína heimavinnu hefði ég sigr-
að. Þetta hvatti mig til að æfa stífar
og undirbúa mig betur. Keppnin
árið 1994 í Suður-Afríku var mjög
hörð og Manfred Höberl hafði ver-
ið hálfósigrandi þá um sumarið.
Þetta endaði í einvígi með stein-
ana á milli mín og hans og ég hafði
betur. Þetta var mín stærsta stund
á ferlinum og jafnframt erfiðasta
mótið. Ég var svo úrvinda að ég
neitaði að taka flugið heim daginn
eftir. Ég kláraði mig alveg og ætlaði
ekki að halda áfram. Svo gleymdi
ég því auðvitað,“ segir Magnús og
hlær.
Tvö næstu mót, á Bahama-
eyjum og Máritíus, vann Magn-
ús nokkuð örugglega. Aðeins
hann og Bill Kazmaier hafa unnið
keppnina þrisvar sinnum í röð.
Gaf Kazmaier olnbogaskot
eftir svindl
Hverjir voru þínir helstu styrkleik-
ar?
„Ég var sagður hraður, úthalds-
góður og gripsterkur. En mér gekk
alveg jafn vel í greinum sem gengu
út á hrátt afl. Minn styrkur var að
vera jafn góður í öllu. Það er hægt
að vinna svona mót án þess að
vinna eina einustu grein, það er
ef þú ert annar í þeim öllum. Ég
vildi aldrei vera of þungur, yfir-
leitt létti ég mig fyrir keppni til að
verða hreyfanlegri og hafa betra
úthald. Flestir aðrir þyngdu sig
fyrir mótin.“
Magnús keppti á fjölmörgum
öðrum aflraunamótum, þar á
meðal í liðakeppni með Hjalta
Úrsus Árnasyni á Pure Strength.
Árið 1989 lentu þeir í óvæntri upp-
ákomu gegn ameríska liðinu sem
samanstóð af Bill Kazmaier og
O.D. Wilson heitnum.
„Við vorum að hlaupa með
tunnur eftir ákveðinni leið. Við
þurftum að hlaupa í gegnum göng
og það var ekki mikið pláss inni í
þeim. Kazmaier var það sem kall-
ast mætti „dirty player“,“ segir
Magnús og hlær. „Sérstakur karl
og virtist þrífast á því ef hann gat
komist upp með eitthvert svindl.
Hann var búinn að vera að ýta á
mig inni í göngunum en ég lét það
ekki á mig fá. Síðan gerðist það að
Wilson réð ekki við sína tunnu og
missti hana yfir vegg ofan af brú.
Hann þurfti síðan að sækja hana
undir brúna. Kazmaier sá hvað
kom fyrir félaga sinn og vildi tefja
mig á meðan Wilson sótti tunnuna.
Þá ýtti hann við mér svo að ég
Frost í kortunum?
Ekki láta kuldann koma þér í vandræði
Komdu við og láttu mæla rafgeyminn þinn!
TUDOR
Alltaf öruggt start
eftir kaldar nætur
MIKIÐ ÚRVAL, TRAUST
OG FAGLEG ÞJÓNUSTA
Bíldshöfða 12 / S. 577 1515 / skorri.is
Við mælum
rafgeyma og
skiptum um
Hr
að
þjónusta
„Á þessum tíma voru kýrnar hand-
mjólkaðar og ég fékk alltaf glas
af ylvolgri mjólk eftir mjaltir
MYND: HANNA/DV Sterkasti maður heims Magnús
heldur hér tveimur bifreiðum.