Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 27
Námskeið 2019 5. apríl 2019 KYNNINGARBLAÐ Sumarskóli TBR hefur verið starfræktur í um 30 ár. Þetta er alhliða íþróttaskóli og eru fjölmargar íþróttagreinar á dagskrá. Badmintoníþróttin skipar þó veglegan sess, enda er hún aðalíþrótt TBR. Við starfrækjum íþróttaskóla fyrir 6–13 ára börn í sumar. Skipt er í hópa eftir aldri. Á námskeiðinu er stefnt að því að kynna nemendum helstu grunn­ atriði badmintoníþróttarinnar, s.s. grip, uppgjöf og háhögg. Kennslan fer bæði fram á leikjaformi og í formi tækniæfinga og skiptist erfiðleikastig þeirra eftir aldri og getustigi þátt­ takenda. Einnig kynnast nemendur helstu leikreglum. Við leggjum mikla áherslu á að námskeiðið sé fjölbreytt, ánægjulegt og skemmtilegt og við nýtum okkar frábæra staðsetningu í Laugar­ dalnum og einnig spennandi lóð umhverfis TBR­húsið. Áhersla er lögð á fjöruga leiki og þroskandi og við erum mikið úti við ef veður leyf­ ir. Á hverju námskeiði er m.a. farið í Fjölskyldu­ og húsdýragarðinn og í sund í Laugardalslaug. Í lok hvers námskeiðs er pylsupartí, leikið í hoppukastala og fleira skemmtilegt gert. Boðið verður upp á bæði heils­ og hálfsdagsvistun, frá kl. 9–13 og 9–16. Möguleiki er á gæslu frá kl. 8–9 og frá kl. 16–17. Þá er boðið upp á léttan hádegisverð fyrir þau börn sem eru í heilsdagsvistun. Þjálfarar eru m.a. Atli Jóhannesson íþróttafræðingur, Árni Þór Hall­ grímsson badmintonþjálfari, Jóhann Kjartansson badmintonþjálfari, o.fl. Öll börn í Sumarskólanum fá jafna viðurkenningu fyrir þátttöku og verðlaunapening eins og stefna ÍSÍ í þjálfun barna og unglinga segir til um. Námskeið 1 – 11. júní–21. júní ** 8 daga námskeið Námskeið 2 – 24. júní–5. júlí ** 10 daga námskeið Námskeið 3 – 6. ágúst–16. ágúst ** 9 daga námskeið Upplýsingar og innritun eftir 9. maí í síma 581-2266. Verð á námskeiðum: 8 daga námskeið: Verð er 11.800 kr. fyrir námskeið kl. 9–13 – 21.200 kr. fyrir námskeið kl. 9–16 9 daga námskeið: Verð er 13.300 kr. fyrir námskeið kl. 9–13 – 23.900 kr. fyrir námskeið kl. 9–16 10 daga námskeið: Verð er 14.700 kr. fyrir námskeið kl. 9–13 – 26.500 kr. fyrir námskeið kl. 9–16. Tennis­ og badmintonfélag Reykjavíkur, Gnoðarvogi 1, 104 Reykjavík Skráning hefst 10. maí í síma 581­2266 Nánari upplýsingar á tbr.is Netpóstur: tbr@tbr.is SUMARSKÓLI TBR 2019

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.