Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 27
Námskeið 2019 5. apríl 2019 KYNNINGARBLAÐ
Sumarskóli TBR hefur verið starfræktur í um 30 ár. Þetta er alhliða íþróttaskóli og eru
fjölmargar íþróttagreinar á dagskrá.
Badmintoníþróttin skipar þó veglegan
sess, enda er hún aðalíþrótt TBR. Við
starfrækjum íþróttaskóla fyrir 6–13
ára börn í sumar. Skipt er í hópa eftir
aldri.
Á námskeiðinu er stefnt að því
að kynna nemendum helstu grunn
atriði badmintoníþróttarinnar, s.s.
grip, uppgjöf og háhögg. Kennslan
fer bæði fram á leikjaformi og í formi
tækniæfinga og skiptist erfiðleikastig
þeirra eftir aldri og getustigi þátt
takenda. Einnig kynnast nemendur
helstu leikreglum.
Við leggjum mikla áherslu á að
námskeiðið sé fjölbreytt, ánægjulegt
og skemmtilegt og við nýtum okkar
frábæra staðsetningu í Laugar
dalnum og einnig spennandi lóð
umhverfis TBRhúsið. Áhersla er
lögð á fjöruga leiki og þroskandi og
við erum mikið úti við ef veður leyf
ir. Á hverju námskeiði er m.a. farið
í Fjölskyldu og húsdýragarðinn og
í sund í Laugardalslaug. Í lok hvers
námskeiðs er pylsupartí, leikið í
hoppukastala og fleira skemmtilegt
gert.
Boðið verður upp á bæði heils og
hálfsdagsvistun, frá kl. 9–13 og 9–16.
Möguleiki er á gæslu frá kl. 8–9 og
frá kl. 16–17. Þá er boðið upp á léttan
hádegisverð fyrir þau börn sem eru í
heilsdagsvistun.
Þjálfarar eru m.a. Atli Jóhannesson
íþróttafræðingur, Árni Þór Hall
grímsson badmintonþjálfari, Jóhann
Kjartansson badmintonþjálfari, o.fl.
Öll börn í Sumarskólanum fá jafna
viðurkenningu fyrir þátttöku og
verðlaunapening eins og stefna ÍSÍ í
þjálfun barna og unglinga segir til um.
Námskeið 1 – 11. júní–21. júní
** 8 daga námskeið
Námskeið 2 – 24. júní–5. júlí
** 10 daga námskeið
Námskeið 3 – 6. ágúst–16. ágúst
** 9 daga námskeið
Upplýsingar og innritun eftir 9. maí
í síma 581-2266.
Verð á námskeiðum:
8 daga námskeið:
Verð er 11.800 kr.
fyrir námskeið kl. 9–13
– 21.200 kr. fyrir námskeið kl. 9–16
9 daga námskeið:
Verð er 13.300 kr. fyrir námskeið
kl. 9–13
– 23.900 kr. fyrir námskeið kl. 9–16
10 daga námskeið:
Verð er 14.700 kr. fyrir námskeið kl.
9–13
– 26.500 kr. fyrir námskeið kl. 9–16.
Tennis og badmintonfélag
Reykjavíkur, Gnoðarvogi 1, 104
Reykjavík
Skráning hefst 10. maí í síma
5812266
Nánari upplýsingar á tbr.is
Netpóstur: tbr@tbr.is
SUMARSKÓLI TBR 2019