Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 36
36 5. apríl 2019 Tímavélin Gamla auglýsinginDV 27. september 1982 Varahlutaverslun og þjónusta TANGARHÖFÐA 4 110 REYKJAVÍK SÍMI 515 7200 www.osal.is osal@osal.is FAX 515 720 ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN Hestamannamótið 1962 var þjóðarskömm n Ölvaður skríll gekk berserksgang n Tjöld riðin niður Á hestamannamótum er oft glatt á hjalla og kemur það fyrir að vín sé haft um hönd. Áður fyrr var það lenska að knaparnir sjálfir væru drukknir og pískuðu hrossin ótæpilega. Á hestamannamótinu á Þingvöllum sumarið 1962 logaði allt svæðið í ölæði og lögreglan réð vart við ástandið. Í Alþýðublaðinu var sagt að uppákoman hefði verið þjóðar­ skömm. Slagsmál á hestamannamótum algeng Landsmót hestamanna sumarið 1962 var sett klukkan tíu, laugar­ dagsmorguninn 14. júlí. Var það haldið á Skógarhólum í Þingvalla­ sveit. Steinþór Gestsson, bóndi á Hæli, setti mótið og greindi frá því í ávarpi að hrossaræktinni færi ört fram. Hestarnir væru að fríkka og batna og áhuginn fyrir ræktun yxi í landinu. Sæist það best á fjölgun í hestamannafélögunum. Voru þau orðin 24 og meðlimirnir 1.700. Nokkur rigning var en móts­ gestir glaðir og snemma góðglaðir. Keppt var um daginn og verðlaun veitt. Er það vart frásögu fær­ andi en um kvöldið var haldinn dansleikur á hlaupabrautinni og þá færðist fjör í leikinn. Á laugar­ dagskvöldinu var áætlað að um 6.000 manns hafi verið á svæðinu. Nokkuð af ungmennum kom á dansleikinn frá Reykjavík og vildu hestamenn meina að þau hefðu staðið fyrir þeim ólátum sem hér verður gerð grein fyrir. Í frásögn­ um blaðanna kemur þó fram að fullorðnir hafi tekið þátt í óspekt­ unum og læðist að sá grunur að sá þáttur sé vanmetinn í frásögnum. Iðulega gerðist það að hestamenn mættu á mót búnir að fá sér í aðra tána og stigu drukknir á bak. Slagsmál á hestamannamótum voru ekki óalgeng þó að sjaldnast hafi þau endað með jafn miklum látum og þetta umrædda sumar. Brjálaðist í bílnum Samkvæmt Tímanum þann 17. júlí tók drykkjuskapurinn að fær­ ast í aukana um klukkan fjögur á laugardeginum. Þar segir: „Forráðamenn landsmótsins verða að sjálfsögðu ekki sakaðir um, að gestir kunnu ekki maga­ mál sitt á brennivíni, en segja má að dansinn hafi verið óþarfur og lögregluliðið fámennara en þörf krafði.“ Alls voru fimmtán lögreglu­ þjónar á svæðinu. Ellefu á Skógar­ hólum, tveir við Valhöll og tveir á bifhjólum á Uxahryggjaleið innan við mótstaðinn. Þrjá bíla hafði lög­ reglan á mótsstaðnum, þar af einn sem tók þrjátíu manns. Höfðu þeir varla undan við að handtaka fólk og leysa úr slagsmálum. Strax klukkan fjögur hóf lög­ reglan að smala fylliröftum saman. Sumir af þeim voru ósjálfbjarga menn sem höfðu lagst fyrir úti um holt og móa í rigningunni. Voru þeir handteknu um 100 talsins og ljóst að lögreglubílarnir dugðu ekki til. Ákveðið var að nota rútu frá BSÍ til að ferja flesta til Reykja­ víkur. Það reyndist þó ekki auðvelt því að af þessum 100 voru 50 svo illir viðskiptis að lögreglan varð að flytja þá í járnum. Einn ungur maður sleppti sér gjörsamlega og reyndi í „hreinu brjálæði að kom­ ast út úr bílnum“ að sögn Alþýðu­ blaðsins. „Setti hann undir sig hausinn og hljóp á rúður í bílnum og braut margar áður en hægt var að hemja hann.“ Kona rotuð Þegar leið á nóttina voru slags­ mál í hverju horni. Alls þurftu um 70 manns að leita sér læknis­ hjálpar á hjálparstöð skáta í Skóg­ arhólum. Margir voru blóðugir og bláir eftir áflogin. Meðal alvarleg­ ustu atvikanna var að kona ein var kýld í höfuðið svo hún rotað­ ist. Komst hún ekki til meðvitund­ ar fyrr en eftir hálfa klukkustund. Var árásarmaður hennar meðal þeirra handteknu. Annað alvarlegt atvik kom upp eftir slagsmál þar sem maður var fluttur til Reykja­ víkur með gapandi sár á kinn. Slys urðu einnig á mótinu sjálfu. Féll til að mynda maður að nafni Bragi Agnars son af baki og handleggs­ brotnaði. Fimmtán manna lið skáta hafði vart undan við að hlúa að gestun­ um en skátarnir sáu einnig um að stýra umferðinni í rigningunni sem jókst í sífellu. Í Vísi þann 16. júlí stóð: „Slæm veðurskilyrði virtust ekki hafa mikil áhrif á veislugestina, sem veifuðu flöskum, börðust og sungu allt til morguns.“ Ekla lögreglunnar var slík að skátarnir voru kallaðir til að sinna löggæslu. Var ástandið svo slæmt og lögreglan svo vanbúin að hand­ járnin kláruðust. Þurfti að senda eftir fleiri járnum í skyndingu til Reykjavíkur. Sverrir Guðmunds­ son lögregluvarðstjóri, sem stýrði aðgerðunum, sagði við Morgun­ blaðið, að það væri almennt álit lögregluþjónanna að þeir hefðu aldrei lent í að þurfa að fjarlægja svo marga af sveitaskemmtun, sem oft væru þó slæmar. Vildi Sverrir meina að dansleikurinn hafi verið auglýstur of vel og það hafi valdið því að fólk hafi flykkst að úr Reykjavík. Hafi sumir þeirra verið svo ölvaðir að þeir komust ekki einu sinni inn á svæðið um eftirmiðdegi. Innan um ung­ mennin hafi leynst góðkunningj­ ar lögreglunnar og ógæfumenn úr borginni. Sumir þeirra auralausir og allslausir. Riðu niður tjöld Skúli Sveinsson varðstjóri sá um löggæsluna við Valhöll. Greindi hann frá því að þar hafi einnig fjöl­ mörg mál komið upp. Um miðjan laugardaginn þurfti að senda níu menn með lögreglubíl til Reykja­ víkur. Flestir af þeim unglingar að sögn Skúla. Mótsgestir gerðu einnig mikil spjöll á eignum. Drukknir knap­ ar riðu niður tvö af mótstjöldun­ um. Þá var maðurinn einn hand­ tekinn þar sem hann reyndi að klippa niður hestagirðinguna. Ætl­ aði hann að hleypa stóðinu út sér til skemmtunar. Mótsgestir tóku sér tak á sunnudeginum, ábyggilega margir timbraðir og sárir eftir hamagang næturinnar. Ró færðist þó ekki yfir svæðið fyrr en klukkan átta um morguninn og því ábyggilega flest­ ir vansvefta þótt þeir hafi ekki tek­ ið beinan þátt í óspektunum. Lítið var um drykkjuskap það sem eftir lifði móts og góður bragur á öllum þorra manna samkvæmt lýsingum Tímans. n Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Setti mótið Steinþór Gestsson á Hæli. Handtekinn Óeirðaseggur færður í járnum til Reykjavíkur. Drulla Fylliraftar ráfuðu um ósjálfbjarga og lögðust í móa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.