Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 36
36 5. apríl 2019
Tímavélin Gamla auglýsinginDV 27. september 1982
Varahlutaverslun
og þjónusta
TANGARHÖFÐA 4
110 REYKJAVÍK
SÍMI 515 7200
www.osal.is
osal@osal.is
FAX 515 720
ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN
Hestamannamótið
1962 var þjóðarskömm
n Ölvaður skríll gekk berserksgang n Tjöld riðin niður
Á
hestamannamótum er oft
glatt á hjalla og kemur það
fyrir að vín sé haft um hönd.
Áður fyrr var það lenska að
knaparnir sjálfir væru drukknir
og pískuðu hrossin ótæpilega. Á
hestamannamótinu á Þingvöllum
sumarið 1962 logaði allt svæðið
í ölæði og lögreglan réð vart við
ástandið. Í Alþýðublaðinu var sagt
að uppákoman hefði verið þjóðar
skömm.
Slagsmál á hestamannamótum
algeng
Landsmót hestamanna sumarið
1962 var sett klukkan tíu, laugar
dagsmorguninn 14. júlí. Var það
haldið á Skógarhólum í Þingvalla
sveit. Steinþór Gestsson, bóndi á
Hæli, setti mótið og greindi frá því
í ávarpi að hrossaræktinni færi ört
fram. Hestarnir væru að fríkka og
batna og áhuginn fyrir ræktun yxi í
landinu. Sæist það best á fjölgun í
hestamannafélögunum. Voru þau
orðin 24 og meðlimirnir 1.700.
Nokkur rigning var en móts
gestir glaðir og snemma góðglaðir.
Keppt var um daginn og verðlaun
veitt. Er það vart frásögu fær
andi en um kvöldið var haldinn
dansleikur á hlaupabrautinni og
þá færðist fjör í leikinn. Á laugar
dagskvöldinu var áætlað að um
6.000 manns hafi verið á svæðinu.
Nokkuð af ungmennum kom á
dansleikinn frá Reykjavík og vildu
hestamenn meina að þau hefðu
staðið fyrir þeim ólátum sem hér
verður gerð grein fyrir. Í frásögn
um blaðanna kemur þó fram að
fullorðnir hafi tekið þátt í óspekt
unum og læðist að sá grunur að sá
þáttur sé vanmetinn í frásögnum.
Iðulega gerðist það að hestamenn
mættu á mót búnir að fá sér í
aðra tána og stigu drukknir á bak.
Slagsmál á hestamannamótum
voru ekki óalgeng þó að sjaldnast
hafi þau endað með jafn miklum
látum og þetta umrædda sumar.
Brjálaðist í bílnum
Samkvæmt Tímanum þann 17.
júlí tók drykkjuskapurinn að fær
ast í aukana um klukkan fjögur á
laugardeginum. Þar segir:
„Forráðamenn landsmótsins
verða að sjálfsögðu ekki sakaðir
um, að gestir kunnu ekki maga
mál sitt á brennivíni, en segja má
að dansinn hafi verið óþarfur og
lögregluliðið fámennara en þörf
krafði.“
Alls voru fimmtán lögreglu
þjónar á svæðinu. Ellefu á Skógar
hólum, tveir við Valhöll og tveir á
bifhjólum á Uxahryggjaleið innan
við mótstaðinn. Þrjá bíla hafði lög
reglan á mótsstaðnum, þar af einn
sem tók þrjátíu manns. Höfðu þeir
varla undan við að handtaka fólk
og leysa úr slagsmálum.
Strax klukkan fjögur hóf lög
reglan að smala fylliröftum saman.
Sumir af þeim voru ósjálfbjarga
menn sem höfðu lagst fyrir úti um
holt og móa í rigningunni. Voru
þeir handteknu um 100 talsins
og ljóst að lögreglubílarnir dugðu
ekki til. Ákveðið var að nota rútu
frá BSÍ til að ferja flesta til Reykja
víkur. Það reyndist þó ekki auðvelt
því að af þessum 100 voru 50 svo
illir viðskiptis að lögreglan varð
að flytja þá í járnum. Einn ungur
maður sleppti sér gjörsamlega og
reyndi í „hreinu brjálæði að kom
ast út úr bílnum“ að sögn Alþýðu
blaðsins. „Setti hann undir sig
hausinn og hljóp á rúður í bílnum
og braut margar áður en hægt var
að hemja hann.“
Kona rotuð
Þegar leið á nóttina voru slags
mál í hverju horni. Alls þurftu
um 70 manns að leita sér læknis
hjálpar á hjálparstöð skáta í Skóg
arhólum. Margir voru blóðugir og
bláir eftir áflogin. Meðal alvarleg
ustu atvikanna var að kona ein
var kýld í höfuðið svo hún rotað
ist. Komst hún ekki til meðvitund
ar fyrr en eftir hálfa klukkustund.
Var árásarmaður hennar meðal
þeirra handteknu. Annað alvarlegt
atvik kom upp eftir slagsmál þar
sem maður var fluttur til Reykja
víkur með gapandi sár á kinn. Slys
urðu einnig á mótinu sjálfu. Féll
til að mynda maður að nafni Bragi
Agnars son af baki og handleggs
brotnaði.
Fimmtán manna lið skáta hafði
vart undan við að hlúa að gestun
um en skátarnir sáu einnig um
að stýra umferðinni í rigningunni
sem jókst í sífellu. Í Vísi þann 16.
júlí stóð:
„Slæm veðurskilyrði virtust ekki
hafa mikil áhrif á veislugestina,
sem veifuðu flöskum, börðust og
sungu allt til morguns.“
Ekla lögreglunnar var slík að
skátarnir voru kallaðir til að sinna
löggæslu. Var ástandið svo slæmt
og lögreglan svo vanbúin að hand
járnin kláruðust. Þurfti að senda
eftir fleiri járnum í skyndingu til
Reykjavíkur. Sverrir Guðmunds
son lögregluvarðstjóri, sem stýrði
aðgerðunum, sagði við Morgun
blaðið, að það væri almennt álit
lögregluþjónanna að þeir hefðu
aldrei lent í að þurfa að fjarlægja
svo marga af sveitaskemmtun,
sem oft væru þó slæmar. Vildi
Sverrir meina að dansleikurinn
hafi verið auglýstur of vel og það
hafi valdið því að fólk hafi flykkst
að úr Reykjavík. Hafi sumir þeirra
verið svo ölvaðir að þeir komust
ekki einu sinni inn á svæðið um
eftirmiðdegi. Innan um ung
mennin hafi leynst góðkunningj
ar lögreglunnar og ógæfumenn úr
borginni. Sumir þeirra auralausir
og allslausir.
Riðu niður tjöld
Skúli Sveinsson varðstjóri sá um
löggæsluna við Valhöll. Greindi
hann frá því að þar hafi einnig fjöl
mörg mál komið upp. Um miðjan
laugardaginn þurfti að senda níu
menn með lögreglubíl til Reykja
víkur. Flestir af þeim unglingar að
sögn Skúla.
Mótsgestir gerðu einnig mikil
spjöll á eignum. Drukknir knap
ar riðu niður tvö af mótstjöldun
um. Þá var maðurinn einn hand
tekinn þar sem hann reyndi að
klippa niður hestagirðinguna. Ætl
aði hann að hleypa stóðinu út sér
til skemmtunar.
Mótsgestir tóku sér tak á
sunnudeginum, ábyggilega margir
timbraðir og sárir eftir hamagang
næturinnar. Ró færðist þó ekki yfir
svæðið fyrr en klukkan átta um
morguninn og því ábyggilega flest
ir vansvefta þótt þeir hafi ekki tek
ið beinan þátt í óspektunum. Lítið
var um drykkjuskap það sem eftir
lifði móts og góður bragur á öllum
þorra manna samkvæmt lýsingum
Tímans. n
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Setti mótið Steinþór
Gestsson á Hæli.
Handtekinn Óeirðaseggur
færður í járnum til Reykjavíkur.
Drulla Fylliraftar ráfuðu um
ósjálfbjarga og lögðust í móa.