Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Side 18
18 5. apríl 2019FRÉTTIR
H
lín Einarsdóttir og Malín
Brand sendu tvö fjárkúg
unarbréf til Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar,
fyrrverandi forsætisráðherra, í
maí 2015 og og kröfðust þess að
hann greiddi þeim nokkrar millj
ónir króna ella myndu viðkvæm
ar upplýsingar um hann verða
gerðar opinberar. Upplýsingarn
ar voru sagðar varða meinta að
komu Sigmundar Davíðs að sölu
DV í lok árs 2014.
Hlín setti fyrra bréfið inn um
bréfalúgu á heimili aðstoðar
manns Sigmundar Davíðs.
Seinna bréfið var stílað á eigin
konu Sigmundar og bars inn um
lúgu á heimili þeirra hjóna.
Í seinna bréfinu voru einnig
nákvæmar leiðbeiningar um af
hendingarstað peninganna við
Krísuvíkurveg. Systurnar voru
síðan handteknar á þeim stað
þegar þær komu að sækja pakka
sem þær töldu innihalda pening
ana.
Eftir að málið kom upp lagði
Helgi Jean Claessen, fyrrverandi
samstarfsmaður Hlínar, fram
kæru á hendur systrunum fyrir
að hafa haft af honum 700 þús
und krónur, ella yrði hann kærð
ur fyrir að nauðga Hlín.
Í viðtali við Vísi í júní 2015
sagðist Malín ekki hafa kom
ið að því að skipuleggja fjárkúg
unina. Sagðist hún hafa verið
„blinduð af fjölskyldutengslum.“
Hlín ræddi hins vegar við DV og
sagði þetta ekki rétt: Malín hefði
haft jafn mikla aðkomu og hún
að bæði bréfasendingunni og
fjárkúguninni.
Í apríl 2017 voru systurnar
dæmdar í 12 mánaða fangelsi
í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir
fyr ir fjár kúg un og til raun til fjár
kúg un ar. Níu mánuðir af dómn
um voru skilorðsbundnir.
Malín steig fram í viðtali
við DV í janúar síðastliðnum
og ræddi meðal annars erfið
bernskuár og baráttu hennar við
Parkisonsjúkdóminn. Stuttu síð
ar kom hún fram í viðtali í Íslandi
í dag.
„Ég hef sagt, og það var nú
gert grín að því í áramótaskaup
inu, að ég hafi verið blinduð því
þetta var fjölskyldan mín, en
meðvirkni er fyrirbæri sem er til
og ég bara hugsaði ekki skýrt. Ég
var þarna með systur minni og
var ekki að hugsa um einhvern
ávinning fjárhagslega. Þetta er
bara svo fjarri mér, svo inni
lega fjarri mér. Ég var með henni
og það eru mín mistök. Ég tek
mjög heimskulegar ákvarðanir
að drulla mér ekki í burtu þegar
ég hefði getað það,“ sagði Malín
í viðtalinu. Þá kom fram að þær
systur ættu ekki í neinum sam
skiptum í dag.
K
völd eitt í júní 2017 hringdi
Ingibjörg Eva Löve sí
endurtekið í fyrrverandi
kærasta sinn þar sem hann
var staddur í heimahúsi í Norður
mýri ásamt þremur vinum sínum
og einni konu. Kærastinn fyrrver
andi svaraði ekki símanum, en í
eitt skiptið lét hann konuna gera
það.
Ingibjörg Eva brást við með því
að skella á. Skömmu síðar bank
aði hún upp á hjá sínum fyrrver
andi, grímuklædd í fylgd með
öðrum manni. Hún var undir
áhrifum fjölda fíkniefna.
Fyrrverandi kærasti Ingi
bjargar kom til dyra og sló hún
hann þá í höfuðið með hafna
boltakylfu, og svo aftur á
höndina. Átök brutust út á milli
þeirra sem enduðu með því að
Ingibjörg stakk manninn í brjóst
kassann. Vitni að málinu lýsti því
síðar að hann hefði heyrt öskur
úr húsinu og tvo karlmenn koma
þaðan út en báðir hafi verið blóð
ugir. Sagðist vitnið hafa heyrt ein
hvern segja: „Hún stakk hann,
hún stakk hann!“. Þá sagðist hann
hafa heyrt Ingibjörgu Evu segja
við samverkamann sinn:
„Hvar er hnífurinn minn, hvar
er kylfan mín?“
Þegar lögregla mætti á svæðið
fundust blóðugur hnífur og blóð
ug kylfa í garðinum fyrir utan
húsið.
Þegar Ingibjörg var yfirheyrð
hjá lögreglu kom hún með nokkr
ar mismunandi útgáfur af atburð
um kvöldsins. Þá sagðist hún ekki
hafa ætlað að drepa sinn fyrr
verandi, heldur einungis hræða
hann. Sagðist hún hafa rifist við
konuna sem svaraði í símann
þetta kvöld og að konan hefði
haft í hótunum við hana. Ingi
björg sagðist hafa orðið „ógeðs
lega reið“ og hún kannaðist við
að hafa tekið með sér hafnabolta
kylfu og raflostbyssu, en kannað
ist ekki við hníf.
Árásin þótti afar heiftarleg og
taldi dómurinn að Ingibjörgu
hefði mátt vera fullljóst að hún
hefði getað banað sínum fyrr
verandi með þessari atlögu. Í
nóvember 2017 hlaut hún fimm
ára fangelsisdóm fyrir tilraun til
manndráps.
Á
seinustu árum hafa kom
ið upp tvö mál hér á landi
þar sem konur hafa verið
fundnar sekar um alvarlegt
ofbeldi gegn börnum.
Í september 2016 var fimm
barna móðir dæmd í 18 mánaða
fangelsi í Héraðsdómi Reykjavík
ur fyrir hrottalegt ofbeldi gegn
börnum sínum. Ofbeldið var bæði
andlegt og líkamlegt og stóð yfir í
langan tíma. Börn konunnar eru
fædd á árunum 2004 til 2013 en
það var árið 2005 að tilkynningar
fóru að berast til barnaverndar um
ofbeldi móðurinnar gegn þeim.
Konan var sakfelld fyrir að hafa
ítrekað beitt börn sín andlegum
og líkamlegum refsingum, haft í
hótunum við þau, ógnað þeim,
sýnt þeim vanvirðandi háttsemi
og sýnt þeim yfirgang, ruddalegt
athæfi, sært þau og móðgað, líkt
og fram kemur í dómnum. Fram
kemur að hún hafi sparkað í þrjú
yngri börn sín, slegið í þau, hrint
þeim og togað í hár þeirra. Þá tók
hún þau kverkataki, kastaði í þau
hlutum og læsti þau fyrir utan
heimili þeirra. Henni var einnig
gefið að sök að hafa slegið þeim
utan í veggi, klipið þau og hótað
að drepa þau. Sagði hún að hún
„ vildi að þau væru dauð, hún
hataði þau og að hún óskaði þess
að þau hefðu aldrei fæðst. Þá kall
aði hún börnin „hóruunga“, „hálf
vita“, „mother fuckera hórur“ og
„mellur“.
Faðir barnanna bar vitni og
sagði það kraftaverk að ekkert
þeirra væri dáið vegna ofbeldisins.
Móðirin krafðist sýknu fyrir
dómi og bar fyrir sig að hún hefði
átt við geðræna erfiðleika að stríða
frá árinu 1998. Ásakaði hún barns
föður sinn um að heilaþvo börnin.
Í mars á seinasta ári var dag
móðir á höfuðborgarsvæðinu sak
felld fyrir líkamsárás á 20 mánaða
stúlku sem hafði verið í hennar
umsjá ásamt þremur öðrum börn
um.
Í október 2016 var litla stúlkan
flutt á bráðamóttöku með tals
verða áverka. Hélt dagmóðirin því
fram að hún hefði komið að stúlk
unni liggjandi á gólfinu fyrir aftan
IKEAbarnastól í eldhúsinu.
Vakthafandi læknir taldi hins
vegar að áverkarnir á stúlkunni
væru ekki í samræmi við þá frá
sögn, en barnið var meðal annars
með mar á andliti og hálsi. Málið
var tilkynnt til lögreglu.
Erlendir réttarmeinafræðingar
sem kallaðir voru til við rannsókn
málsins sögðu að ekki væri hægt
að útskýra áverkana með einu falli
heldur benti flest til þess að litla
stúlkan hefði orðið fyrir ofbeld
isverknaði líkt og löðrungum og
höggum.
Dagmóðirin neitaði alfarið sök
í málinu. Þegar málið kom upp
hafði hún starfað sem dagforeldri
í átta ár og ekki hafði áður borist
kvörtun vegna starfa hennar.
Konan var dæmd í níu mánaða
skilorðsbundið fangelsi og þar að
auki gert að greiða hálfa milljón
króna í miskabætur.
H
inn dæmigerði glæpa
maður í huga okkar er
ungur karlmaður enda
er sú raunin í flestum til
vikum. Samkvæmt opinber
um skýrslum bæði hér á landi
og erlendis eru konur í miklum
minnihluta af þeim sem brjóta af
sér. Hlutdeild kvenna er þó ólík
eftir brotaflokkum. Að jafnaði
fremja þær ekki nema 10–30 pró
sent af öllum hegningarlagabrot
um. Brot kvenna tengjast yfirleitt
minniháttar auðgunarbrotum,
hnupli og þjófnaði, skjalafalsi,
vændi og neyslu fíkniefna. Alvar
legir ofbeldisglæpir, meiriháttar
auðgunar og fíkniefnabrot, við
skipta og pólitískir glæpir, eru
mun oftar framdir af körlum.
En konur fremja líka alvar
leg brot en bara í minna mæli
en karlar. Yfir 80 prósent mann
drápa á Íslandi eru framin af
körlum, mestmegnis dráp á öðr
um körlum. Konur drepa, en yfir
leitt einhvern karl sem þær eru í
tilfinningasambandi við, stund
um í sjálfsvörn, eða sem við
brögð við langvarandi ofbeldi.
Afar fátítt er að þeir sem dæmdir
eru fyrir manndráp fremji ann
að dráp. Hér á landi hefur þó ein
kona verið dæmd fyrir tvö mann
dráp og konur dæmdar fyrir dráp
á afkvæmum sínum.
Konur og karlar í fangelsi
Fangelsistölur eru mjög lýsandi
veruleiki fyrir þann mun sem er
á glæpum kynjanna. Sem dæmi
má nefna að hér á landi eru kon
ur að jafnaði innan við tíu í fang
elsi á móti um 160 körlum. Hlut
föllin eru ekki ósvipuð erlendis.
Ítarlegri greining eftir Helga
Gunnlaugsson verður birt í
næsta tölublaði DV.
Helgi Gunnlaugsson
Prófessor í félagsfræði
við H.Í.
DRAUMASAMFÉLAG EF KARLAR
MYNDU HEGÐA SÉR EINS OG KONUR?
Helgi Gunnlaugsson,
afbrotafræðingur og pró-
fessor í félagsfræði við HÍ
HLÍN OG MALÍN OG
FJÁRKÚGUNARMÁLIÐ
„HÚN STAKK HANN, HÚN STAKK HANN!“
HÓTAÐI AÐ DREPA BÖRNIN SÍN