Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Side 22
Námskeið 2019 5. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ
Í yfir áratug var Silja Úlfars fljótasta kona Íslands. Hún æfði bæði hand- og fótbolta þegar hún
var yngri, og þegar faðir Gylfa Sig-
urðssonar fékk hana á sínum tíma
til þess að aðstoða Gylfa við að
þjálfa upp aukinn hraða og snerpu,
þá upp götvaði hún hvað henni
þótti þjálfarastarfið skemmtilegt
og gefandi. „Ég fór út í þetta fyrir
slysni en síðan árið 2008 hef ég
þjálfað afreksmenn og hjálpað þeim
að bæta snerpu og hraða. Ég hef
þjálfað meistaraflokka, t.d. FH í bæði
hand- og fótbolta og fleiri lið. Einnig
hef ég unnið við að hjálpa unglingum,
leikmönnum og afreks mönnum við að
bæta hraða og auka styrk,“ segir Silja
Úlfars.
Sumarnámskeið fyrir afreksung-
linga
Silja er með unglinganámskeiðin sín
á sumrin og veturna. „Námskeiðin í
vetur gengu gífurlega vel og er ég
stolt af öllum mínum íþróttamönnum.
Sumir hverjir náðu alveg ótrúlegum
árangri, og það var fullt á öll nám-
skeiðin,“ segir Silja.
Í sumar verður Silja áfram með
unglinganámskeiðin sín. „Námskeiðið
er fyrir unglinga á aldrinum 10–18
ára og þar hjálpa ég ungum
íþróttamönnum að bæta hraða,
snerpu og hlaupastíl. Margir sem leita
til mín eru að æfa fótbolta eða hand-
bolta og langar að bæta sig.“
Í júní verða fjögur námskeið, hvert er
vika í senn og þrjár æfingar á viku.
Æfingarnar verða á mánudögum,
þriðjudögum og fimmtudögum.
Það geta allir bætt sig!
Silja segir námskeiðin henta öllum
sem vilja auka hraða og bæta sig,
það séu margir sem beita sér illa og
það geti leitt til meiðsla. „Það sem
ég geri á námskeiðinu er að fara yfir
öll atriði eins og hlaupastíl, snerpu,
hliðarhreyfingar, hvernig á að hoppa
og lenda, auk þess sem áhersla er
lögð á liðleika. Það er mikilvægt að
hlaupa rétt til þess að hægt sé að
bæta sig og ná árangri. Svo gef ég
leiðbeiningar um hvað megi betur
fara. Ég hef boðið upp á námskeiðið
í mörg ár og séð að það eru margir
sem hlaupa rangt. Sumir hlaupa á
þann hátt að þeir stoppa sig í hverju
skrefi. Ég hjálpa nemendunum að
laga hlaupastílinn. Allir sem mæta
eru að koma til að gera sitt besta.
Aldur og geta skiptir ekki máli því það
geta allir bætt sig. Eftir hverja viku
fá nemendurnir pdf-skjal með helstu
æfingunum sem við gerðum, svo
þeir geti æft sig áfram. Myndband
fylgir einnig með öllum æfingum. Ég
vil ekki bara vera kennarinn þeirra
á námskeiðinu, heldur kenna þeim
æfingarnar svo þau geti haldið áfram
að bæta sig og hjálpað sér sjálf. Þeir
sem koma til mín eru metnaðarfullir
íþróttamenn sem vilja ná lengra. Þú
kemur til mín til að bæta þig.“
Allar upplýsingar má fá á heima-
síðu Silju: www.siljaulfars.is eða
Facebook: siljaulfars.is
Netpóstur: siljaulfars.is@gmail.com
SUMARNÁMSKEIÐ SILJU ÚLFARS:
Ótrúlegur munur
í hraða og snerpu