Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Síða 25
Námskeið 2019 5. apríl 2019 KYNNINGARBLAÐ
Sumarbúðirnar Ástjörn í Kelduhverfi á Norðausturlandi eru fyrir drengi og stúlkur á
aldrinum 6–12 ára og 13–15 ára
unglinga og hafa verið reknar sem
kristilegar sumarbúðir síðan 1946.
„Það er mjög algengt að börnin
sem koma til okkar eigi foreldra eða
afa sem voru í sumar búðunum hjá
okkur á sínum tíma og okkur þykir
mjög vænt um það,“ segir Árni
Hilmarsson forstöðumaður. Börnin
koma alls staðar að af landinu og
mjög oft koma systkini saman. Flest
börnin dvelja í einn flokk, en sum
lengur. Flokkarnir eru 7, 8 eða 10
sólarhringar.
Friðsæl tjörn, umlukin þéttum
birkiskógi
Ástjörn, með öllum sínum árabátum,
kajökum, kanóum, hjólabátum
og seglskútum, hefur alltaf mjög
mikið aðdráttarafl fyrir börnin
og er sívinsæl, og ekki síst vegna
hornsílanna sem börnin veiða í
háfana sína. Einnig eru svokallaðir
sökkvibátar mjög spennandi því það
eru sérstakir bátar sem má sökkva
þegar synt er í tjörninni á góðviðris-
dögum. Einnig er margt annað um að
vera svo sem knattspyrna, körfubolti,
föndur, alls kyns leikir og keppnir,
kvöldvökur, Biblíusögur og söngur.
Íþróttahús er í næsta nágrenni sem
hægt er að nota þegar sólin lætur
ekki sjá sig og þar er einnig sundlaug.
Á góð viðrisdögum er fjöruferð alltaf
vinsæl og hestaleigan Active North
(activenorth.is) í Ásbyrgi stendur
þeim til boða sem vilja borga fyrir
hana. „Föndurherbergið okkar er
mjög vinsælt og börnin virkilega njóta
þess að sitja þar í næði og föndra
að vild og það er alltaf jafn gaman
að sjá hvað börnin geta verið frjó og
frumleg í sköpun sinni,“ segir Árni.
„Það gleður okkur alltaf jafn mikið
að heyra að börnin fari ánægð heim,“
segja starfsmenn Ástjarnar.
Frá upphafi hefur verið lögð
áhersla á að kenna börnunum
að ganga vel um náttúruna.
Sumar búðirnar Ástjörn eru þær einu
á landinu sem eru í þjóðgarði.
Margir foreldrar eru ánægðir með
að börnin noti hvorki farsíma né
tölvuspil við Ástjörn.
Ástjörn hefur m.a. þá sérstöðu
að þvottahús er á staðnum þar sem
allt er þvegið af börnunum, mörgum
foreldrum til mikillar ánægju.
Í nágrenni Ástjarnar eru sannkall-
aðar náttúruperlur og athyglisverðir
staðir sem upplagt er fyrir Íslendinga
almennt að skoða betur, t.d. Ás-
byrgi, Hljóðaklettar, Hólmatungur,
Grettisbæli, Jökulsárgljúfur, Dettifoss
og Hafragilsfoss.
Fyrir þau börn sem koma með
flugi frá Reykjavík til Akureyrar þá á
Ástjörn frátekin flugsæti, sjá nánar
astjorn.is/flug.
Fylgdarmaður frá Ástjörn eða
flugfélaginu fylgir börnunum í
flugvélinni og á Akureyrarflugvelli
taka starfsmenn Ástjarnar á móti
börnunum.
Síðan er ekið til Ástjarnar og tekur
það um tvær klukkustundir, rútuferðin
er innifalin í dvalargjaldinu.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 462-3980, á heimasíðunni
astjorn.is og einnig á
facebook.com/astjorn þar sem hægt
er að sjá fleiri myndir, og sömuleiðis
myndbönd á youtube.com/astjorn
Netfang: astjorn@astjorn.is
Kostnaður við sumarbúðadvölina
er innan við 6.500 kr. á sólarhring.
10% systkinaafsláttur fyrir bæði
systkini og meiri afsláttur fyrir fleiri
systkini.
Laugardaginn 29. júní verður opið
hús. Allir eru velkomnir í heimsókn að
skoða staðinn og alveg sérstaklega
Ástirningar, foreldrar þeirra, starfs-
fólk, vinir og velunnarar. Nánar
auglýst síðar.
Flokkar og verð:
Fyrir 6–12 ára börn
(10 eða 8 sólarhringar):
1. flokkur: 18.–28. júní (þriðjud.–föstud.)
61.900 kr.
2. flokkur: 3.–11. júlí (miðvikud.–fimmtud.)
51.900 kr.
3. flokkur: 16.–26. júlí
(þriðjud.–föstud.) 61.900 kr.
Unglingavika: 13–15 ára
(rúmlega 7 sólarhringar):
4. flokkur: 30. júlí–6. ágúst
(þriðjud.–þriðjud.) 42.900 kr.
Ummæli ánægðra foreldra:
„Dóttir mín er ótrúlega spennt að komast í sumar og er búin að spyrja mik-
ið hvort að hún fengi ekki að vera lengur en s.l. sumar. Henni líkaði dvölin hjá
ykkur rosalega vel.“
„Sonur minn var mjög ánægður með dvölina í fyrra og þegar hann talar um
Ástjörn kemur alveg sérstakur glampi í augun og allt sem sagt er frá hefur yfir
sér ævintýraljóma. Sem sagt alveg frábærar sumarbúðir.“
„Dætur mínar eru svo ákveðnar að koma aftur í sumar, enda koma þær alltaf
himinsælar heim frá Ástjörn. Þær hlakka mikið til og það gleður mig líka “
„Halló, sonur okkar ætlar að koma á Ástjörn þriðja sumarið í röð. Ekkert sum-
arfrí án Ástjarnar.“
„Drengurinn minn kom í fyrsta skipti til ykkar í fyrra. Hann fékk smá heimþrá en
ekki alvarlegri en svo að hann bað um að fá að fara aftur daginn eftir að hann
kom heim. Nú hefur ekkert annað komið til greina hjá honum en að vera eins
lengi og hægt er. Bestu kveðjur og takk fyrir okkur“
„Krakkarnir voru svo ánægð með dvölina síðasta sumar þannig að þau heimta
að koma aftur“
Sumarbúðirnar Ástjörn -
Sumardvöl í sól og sælu