Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Síða 6
6 SPORT 5. apríl 2019
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Vandaðar
innréttingar
Hjá Parka færðu flottar innréttingar
í hæsta gæðaflokki. Mikið úrval.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Íslenskar rækjusamlokurDómarinn:
Þ
að er skammt stórra högga
á milli hjá íslenska karla-
landsliðinu í fótbolta,
liðið reynir að rífa sig
upp af rassgatinu eftir magurt
haust. Liðið byrjaði með ágæt-
um í undankeppni EM 2020 og
vann fínan sigur á Andorra, en í
kjölfarið fylgdi högg gegn Frakk-
landi. Það kom fáum á óvart að
Ísland tapaði gegn Frakklandi,
það var kannski frekar hvern-
ig liðið missti hausinn undir lok
þess leiks sem olli áhyggjum. Sú
samstaða og endalausa barátta
sem liðið hefur sýnt á síðustu
árum, sást ekki. Nóg um það.
Þetta íslenska landslið hefur frá
árinu 2013, fært íslensku þjóðinni
ógleymanleg augnablik. Liðið sló
varla feilnótu í fimm ár, vissulega
töpuðust einhverjir æfingaleik-
ir en hverjum var ekki sama?
Liðið náði mögnuðum árangri á
Evrópumótinu í Frakklandi 2016
og tveimur árum síðar var liðið
komið á Heimsmeistaramótið. Ís-
land var eitt af 32 bestu landslið-
um í heimi, liðið komst á stærsta
íþróttamót í heimi. Magnaður ár-
angur, liðið var hársbreidd frá því
að gera frábæra hluti á stærsta
sviðinu. Það er einstakt afrek
fyrir 330 þúsund manna þjóð að
komast á þetta mót, langminnsta
þjóðin sem hefur afrekað það.Svo
er komið að hinni vanþakklátu
þjóð, íslenska þjóðin virðist vera
fljót að gleyma. Nú þegar á
móti blæs, virðist stuðn-
ingurinn hverfa. Margir
af þeim sem nutu þess að
horfa á velgengni liðsins,
ætla ekki að standa með
liðinu þegar á móti blæs.
Þetta er kallað að vera
rækjusamloka, fólk mætir
þegar árangurinn sýn-
ir sig en ætlar að
láta sig hverfa
þegar gef-
ur á skút-
una. Þetta
sama fólk
kepptist við að kaupa miða fyrir
um ári. Í dag hefur miðasala á
næstu leiki liðsins staðið yfir í
nokkrar vikur, langt er frá því að
verða uppselt. Nú þegar liðið þarf
mest á stuðningi að halda, reyn-
ist erfitt að fá stuðning. Lestur á
greinum um íslenska landsliðið
er komið á svipaðar slóðir og
þegar allt var í steik á árum áður.
Ekki er komið ár síðan að liðið
var á HM og liðið á fína
möguleika á að komast
á EM 2020. Það veltur
hins vegar allt á leikjun-
um tveimur gegn Tyrk-
landi og Albaníu í sum-
ar. Því ætla ég að skora
á allar rækjusamlokur
landsins að tryggja sér
miða, og standa með
strákunum
okkar þegar
á móti blæs
og snúa
skipinu
við.
Áframhaldandi sársauki í Bítlaborginni?
n Blóðug barátta er um sigur í ensku úrvalsdeildinni n Misstígur City sig?
Þ
að er svakaleg barátta á
toppi ensku úrvalsdeildar-
innar en stuðningsmenn
Liverpool láta sig dreyma
um að 29 ára þrautaganga taki nú
enda. Í bláa hluta Manchester er
hins vegar Manchester City, sem
gefur ekkert eftir. Nú þegar sex
umferðir eru eftir er Manchester
City á toppi deildarinnar með 80
stig en Liverpool með stigi minna í
öðru sæti. Í venjulegu árferði væri
Liverpool að leika sér að deildinni,
en lið City er einstakt.
Hvar geta hlutirnir farið
úrskeiðis?
Stuðningsmenn Liverpool horfa
jafn mikið á leikina hjá sínu liði
eins og hjá City, þeir vona að
City misstígi sig og þá helst gegn
Manchester United á útivelli,
einnig gæti Tottenham gert eitt-
hvað á Ethiad-vellinum. Segja
má að erfiðasta verkefni Liver-
pool komi til nú um helgina gegn
Southampton, á útivelli. Liðið fær
einnig Chelsea í heimsókn, en lið
Chelsea er vægast sagt hræðilegt á
útivelli. Veðbankar telja að líkurn-
ar á því að Liverpool vinni deildina
séu ekki mjög miklar, liðið hefur
ekki unnið deildina í 29 ár og gæti
þurft að bíða enn lengur.
Leikir Liverpool:
5. apríl Southampton (Útivelli)
14. apríl Chelsea (Heimavelli)
21. apríl Cardiff (Útivelli)
26. apríl Huddersfield (Heima-
velli)
4. maí Newcastle (Útivelli)
12. maí Wolves (Heimavelli)
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Leikir Manchester City:
14. apríl Crystal Palace (Útivelli)
20. apríl Tottenham (Heimavelli)
24. apríl Manchester United (Útivelli)
28. apríl Burnley (Útivelli)
4. apríl Leicester (Heimavelli)
12. apríl Brighton (Útivelli)