Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Síða 9
5. apríl 2019 FRÉTTIR 9 DV sendi fyrirspurn til fiski- stofustjóra sem þvertók fyrir að um geðþóttaákvörðun hefði ver- ið að ræða. Í svari hans, sem er að mestu byggt á svari lögmanns hjá stofnuninni, kemur fram að eftir álagningu gjalds vegna ólögmæts sjávarafla hafi útgerðin haft sam- band við lögfræðinginn og óskað eftir að málið yrði tekið til með- ferðar á nýjan leik. Það hafi verið gert og hafi sú skoðun leitt í ljós að andmælaréttur málsaðila hefði ekki verið virtur. Honum hafi ver- ið gefinn kostur á að koma and- mælum að og hafi skilað greinar- gerð ásamt fylgigögnum í formi yfirlýsingar þriðja aðila og afriti af kostnaðarreikningi. Síðan segir að í ákvörðun Fiskistofu hafi þess að- eins verið getið að yfirlýsing hefði borist frá þriðja aðila en ekki hafi verið getið um greinargerð máls- aðila. Þetta sé brot á andmæla- rétti málsaðila þar sem ekki hafi verið lagt mat á andmælin þegar ákvörðunin var tekin. Á þessum grunni hafi ákvörðunin verið ógilt og álagningin því felld úr gildi. En það sem hefur vakið athygli starfsfólks, fyrrverandi og núver- andi, er að þegar ákvörðun var tek- in á haustmánuðum 2017 um að fella málið niður voru engin gögn færð inn í skjalaskrá Fiskistofu um það. Segja heimildarmenn að fiskistofustjóri hafi sjálfur hlutast til um að reikningur, sem búið var að stofna í heimabanka á hendur útgerðinni, yrði felldur niður og málinu lokið. Þetta hafi hann ein- faldlega gert með símtali. Þá segja heimildarmenn að þau rök sem eru sett fram í svari fiskistofustjóra við fyrirspurn DV séu um margt skrítin þar sem aðrar útgerðir hafi ekki hlotið sömu meðferð vegna vanskila á afladagbók. Fiskistofa hefur að sögn gengið hart fram í þeim málum á undanförnum árum og svipt mörg skip og báta veiðileyfi vegna vanskila. Það megi því spyrja sig til hvers slíkar svipt- ingar séu, ef þær hafa síðan ekkert gildi þegar upp er staðið. Tilkynnt hafi verið um sviptinguna með hefðbundnum hætti og útgerð Daðeyjar GK hefði því verið full- kunnugt um hana. Samkvæmt því sem heimildarmenn DV segja þá var ekki farið að neinum reglum sem gilda um vandaða stjórnsýslu þegar kom að ákvörðun um niður- fellingu málsins, ekkert var að sögn skjalfest um þetta og engin bréf send út, ákvörðunin var ein- faldlega tilkynnt með símtali. Ekki verði annað séð en að um geð- þóttaákvörðun fiskistofustjóra sé að ræða og nú sér verið að reyna að klóra yfir hana. Yfirheyrsla Skömmu fyrir jól kom upp mál í Grindavík þar sem eftirlitsmaður Fiskistofu var grunaður um að hafa tekið fisk, án þess að greiða fyrir hann, hjá Stakkavík þar sem eftirlitsmenn voru við störf. Nýráðinn eftirlitsmaður varð vitni að þessu og tilkynnti það yfirstjórn Fiskistofu í samræmi við vinnu- reglur stofnunarinnar. Viðkom- andi eftirlitsmaður var sendur í leyfi á meðan málið var skoðað. Eftiráskýring um bankamillifærslu og/eða nóta fyrir fiskinn var tekin gild og veiðieftirlitsmaðurinn kom aftur til starfa um sex vikum síðar. Hann fékk áminningu vegna máls- ins. Heimildir DV herma að mikill kurr sé í starfsfólki vegna málsmeðferðarinnar. Ekki í sjálfu sér yfir að starfsmaðurinn hafi fengið áminningu heldur að eft- irlitsmennirnir voru kallaði í ein- hvers konar yfirheyrslu, sem fyrrverandi yfirlögfræðingur stofn- unarinnar stýrði. Yfirheyrslan fór fram í fundarherbergi þar sem fjarfundabúnaður er til staðar. Var eftirlitsmönnunum gert að setjast í ákveðinn stól, gegnt fjarfunda- búnaðinum, áður en yfirheyrslan hófst. Þeim var ekki kynnt að aðrir fylgdust með í gegnum fjarfunda- búnaðinn eða að yfirheyrslan væri tekin upp. Starfsfólk telur að yfir- heyrslan hafi verið tekin upp eða aðrir fylgst með í gegnum fjar- fundabúnaðinn, svo mikil var áherslan á að eftirlitsmennirn- ir sætu í þessum ákveðna stól. Ef slíkt hefur verið gert er það með öllu ólögmætt þar sem eftirlits- mönnunum var ekki tilkynnt um þetta. Eyþór hafnar því alfarið að starfsmenn hafi verið hleraðir. Við DV segir hann: „Starfsmenn Fiskistofu hafa aldrei verið hleraðir svo vitað sé og aldrei af hálfu stofnunarinnar sjálfrar.“ Fundur var haldinn með veiði- eftirlitsmönnum þar sem nýráðna eftirlitsmanninum var hampað og aðrir beðnir um að láta hann ekki gjalda fyrir heiðarleika sinn eftir því sem heimildir DV herma. Fiskur tekinn úr frystiskipum Heimildarmenn DV segja að mál sem þessi séu ekkert einsdæmi hjá veiðieftirlitsmönnum. Var þar nefnt sérstaklega til sögunnar að þegar frystiskip komi í land hafi það lengi tíðkast hjá hópi eftirlitsmanna á suðvesturhorn- inu að taka töluvert magn af fiski ófrjálsri hendi. Magnið er sagt vera svo mikið að það hafi ekki aðeins verið ætlað til einkaneyslu. Það myndi ekki skipta máli þótt magn- ið væri svo lítið að það væri ætlað til einkaneyslu þar sem eftirlits- mönnum er algjörlega óheimilt að taka við fiski frá sjómönnum og út- gerðum. Þegar frystiskip kemur í land fara veiðieftirlitsmenn og gera úttekt á aflanum og nýtingu við vinnslu hans. Meðan á veiði- ferðinni stendur þarf áhöfnin að taka nýtingarsýni/vinnslusýni reglulega með ákveðnum hætti. Þessi sýni eru síðan uppreiknuð og af niðurstöðum þessa útreikn- ings er ákvarðað hversu mikið var veitt af hverri tegund. Það er því hagur útgerðarinnar að sýnin séu sem allra best úr garði gerð, því þá eru minni aflaheimildir dregnar af skipinu. Veiðieftirlitsmenn kanna hvort nýtingarsýni hafi verið tekin, en þau eru yfirleitt á bilinu 40 til 60 í hverri veiðiferð. Við úttektina eru teknar 3–4 fisktegundir, nýtingarsýni, að teknu tilliti til aflamagns í hverri tegund. Veiðieftirlitsmennirnir ákveða hvaða dagar eru valdir til samanburðar en þá eru nýtingar- sýni/vinnslusýni áhafnarinnar borin saman við nýtingarsýni sem veiðieftirlitsmenn velja. Til að þessi samanburður sé marktækur þurfa helst að vera 20 flök, 10 fiskar, í nýtingarsýninu. Því þarf að þíða 10 fiska upp. Yfirleitt ætti að duga að þíða eina öskju af frystum fiski upp en í henni eru níu kíló. Ekki er þó óalgengt að tvær öskjur séu þíddar upp. Yfirleitt eru þrjár öskjur í hverjum kassa sem land- að er úr skipunum en það getur þó verið breytilegt eftir því fyrir hvaða markað afurðin er ætluð. Heimildarmenn DV segja að nær undantekningarlaust hafi ákveðnir veiðieftirlitsmenn tekið 2–4 kassa hver af fiski í úttekt en það eru þá 54 til 108 kíló sem hver tekur. Þetta er yfirleitt þorskur eða ýsa, roðlaus og beinlaus. Það er því ljóst að það magn sem þeir taka er langtum meira en þarf til að gera fyrrgreindan samanburð. Þetta er gert meðan á löndun stendur og eru starfsmenn út- gerðanna látnir vita að nú eigi að gera úttekt. Þeir spyrja þó að sögn heimildarmanna aldrei út í hversu mikið sé tekið af hverri tegund og ekki er vitað til að útgerðirnar skrái það hjá sér. Veiðieftirlitsmennirnir eru svo sagðir þíða lítinn hluta, af þeim fiski sem þeir taka, til saman- burðarúttektar, en taki svo restina með sér heim. Heimildarmenn DV segja að einnig séu dæmi um að veiðieftirlitsmenn hafi tekið fisk og humar með heim úr veiðiferð- um sem þeir hafa farið í með skip- um og bátum til eftirlits. Einnig var talað um dæmi þess að veiði- eftirlitsmenn hafi tekið svo mikið magn af fiski með heim að öruggt sé að þeir hafi verið að fénýta hann, selja. Fiskurinn, sem er þíddur upp, er síðan gefinn góðgerða- samtökum. Einn veiðieftirlits- maður er sagður hafa viðurkennt fyrir starfsfólki á Fiskistofu að hafa tekið þíddan fisk með sér heim til neyslu. Það er algjörlega óheimilt. Bakreikningsmál Fyrir nokkrum árum kom fram í fréttum að fiskistofustjóri hefði ákveðið að hætta öllum svoköll- uðum bakreikningsmálum sem stofnunin var að vinna að. Í slík- um málum eru ýmis gögn um afla, vinnslu og sölu afurða notuð til að reikna út hversu mikill fiskur kem- ur inn í vinnslustöð og hvort hún hafi þá selt meira af afurðum en hún ætti að gera miðað við keypt magn af óunnum fiski. Þetta er góð leið til að fylgjast með hvort verið sé að svindla á kvótakerfinu. Mál sem þessi eru tímafrek í rann- sókn og þarf að leggja mikla vinnu í þau. Ákvörðun fiskistofustjóra kom flatt upp á starfsmenn Fiski- stofu enda voru mörg stór mál í rannsókn á þessum tíma. Í fjöl- miðlum sagði fiskistofustjóri að ástæðan fyrir þessari ákvörðun væri að þau væru of flókin og skil- uðu of litlum árangri. Það sem ekki kom fram þá og hefur ekki komið fram í fjölmiðlum er að einn starfsmaður Fiskistofu hafði fyrir mistök sent tölvupóst, með nákvæmum og viðkvæmum upp- lýsingum um þau mál sem voru til rannsóknar og átti að fara að rannsaka, til fjölda manns. Þar á meðal voru fyrirtæki sem voru til rannsóknar. Með þessu voru rannsóknirnar eyðilagðar á svip- stundu. Ekki er ljóst af hverju þessu hefur verið haldið leyndu og af hverju þetta gerði út af við rannsóknir sem þessar sem voru taldar mikilvægt vopn í eftirliti stofnunarinnar. n Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is SKILTAGERÐ Ljósakassar Ljósaskil 3D stafir Hönnun Ráðgjöf Uppsetning „Starfs- menn Fiskistofu hafa aldrei verið hleraðir svo vitað sé og aldrei af hálfu stofnunarinn- ar sjálfrar Fiskistofa Starfsstöðin í Hafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.