Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Síða 12
12 5. apríl 2019FRÉTTIR
U
nnar Þór Sæmundsson
er 28 ára gamall og fyrir
nokkrum árum var honum
ekki hugað líf eftir langvar-
andi neyslu fíkniefna. Afbrot, of-
beldi, neysla og sjálfsvígstilraunir
voru daglegt líf Unnars Þórs, en
fyrir þremur árum ákvað hann
loksins að takast á við sjálfan sig.
Hann fagnar bættu og betra lífi
í dag, edrúmennsku og bættum
samskiptum við sína nánustu og
vill breyta meðferðar- og geðheil-
brigðismálum til betri vegar svo
enginn þurfi að feta sömu braut og
hann gerði í áratug.
„Ég hef oft hugsað um hvaða
áföllum ég hafi orðið fyrir í æsku
sem ollu því að ég varð fíkill,“
segir Unnar, og bætir við að allir
neysluvinir hans hafi orðið fyrir
kynferðis legu ofbeldi og/eða öðru
ofbeldi, einhverjum sjokkerandi
áföllum sem skýrt geta neyslu
þeirra, en hann hafi ekki þurft áfall
til að fara sömu leið. „Ég var svik-
inn svolítið.“
Hann segist hafa átt góða æsku
hjá einstæðri móður sinni og vera
mikill mömmudrengur, fædd-
ur í Lúxemburg 4. maí 1990, en
þar ráku móðurforeldrar hans
hótel eftir að hafa selt íbúð sína
hér heima. Hann er einkabarn
móður sinnar, en á þrjár systur
föður megin. Þriggja ára flutti
hann ásamt móður sinni til Ís-
lands og settust þau að á Flúðum,
í sveitinni sem Unnar segist enn
þá þykja vænt um, en hann sé ekki
velkominn þar. Honum gekk vel
framan af í skóla, en um 14 ára ald-
ur tók neyslan við.
„Ég var ofvirkur með mikinn
athyglisbrest og stóð alltaf út úr
sem svarti sauðurinn í sveitinni.
Mér gekk vel í skóla fram að 8.
bekk, þá fór að halla undan fæti og
ég fór að sækja í meiri spennu og
sækja í efni. Fljótlega var ég, 14 ára
gamall, farinn að redda mér am-
fetamíni, sem er alveg klikkað. Ég
var stundum að fá send efni með
rútunni.“
Dópaður daglega í Perú
Eftir grunnskóla tók við ár sem
Unnar var skiptinemi í Perú, þar
hélt neyslan áfram, fyrstu skref
mikillar neyslu eins og hann segir
sjálfur. „Fíkniefni voru ódýr þarna
úti og það þekkti mig enginn nógu
vel til að sjá að ég var alltaf dópað-
ur. Ég var í mikilli neyslu og auð-
velt fyrir mig að komast upp með
það þarna hinum megin á hnettin-
um. Það var ekki eins og mamma
gæti horft í augun á mér eða hringt
í mig í tíma og ótíma.“
Þegar skiptinemaárinu lauk tók
raunveruleikinn á Íslandi aftur við,
Unnar byrjaði í námi við Mennta-
skólann á Laugarvatni og þurfti
að finna önnur fíkniefni. „Það er
ekki fræðilegur möguleiki að vera
í kókaínneyslu á Íslandi nema eiga
villu sem þú veðsetur,“ segir Unn-
ar, sem hataði sjálfan sig á þess-
um tíma. Samhliða aukinni neyslu
fór hann að stunda afbrot, bæði
til að fjármagna fíknina og eins
til að öðlast virðingu með því að
hræða aðra. „Þegar ég var 18 ára
gamall átti ákveðið atvik sér stað
og ég flúði inn á Götusmiðjuna
sem þá var, og á þeim tímapunkti
var ég tilbúinn til að gefa meðferð
séns. Eðlilega fann lögreglan mig,
handtók mig í Götusmiðjunni og
ég var látinn dúsa í fangageymslu
á Selfossi. Ég legg ekki ábyrgð á
lögregluna sem vinnur bara eftir
ákveðnum verkferlum, en þarna
var klárlega brotalöm í kerfinu.
Þú handtekur ekki barn í meðferð.
Ég lenti uppi á kant við kerfið og
varð sífellt reiðari og það voru mín
stærstu mistök að klára ekki með-
ferðina hjá Götusmiðjunni.“
Beint á fyllerí eftir
sjálfsvígstilraun
„Ég væri að ljúga ef ég segði að
þetta hefði aldrei verið gaman,“
segir Unnar þegar hann rifjar upp
neyslutímabilið. „Ég skipti þessu í
30-30-30, þar sem 10 er eitthvað,
30 er bara „blackout“, 30 er vol-
æði og ógeð og 30 er skemmtilegt
og það er þetta skemmtilega sem
gerir neysluna svona hættulega.
Það koma skemmtilegir dagar, en
maður áttar sig ekki á að það eru
kannski dagarnir sem þú ert mest
með hausinn í lagi.“
Samhliða því sem neyslan
jókst, jókst vanlíðan Unnars og
hann fór að leita að ástæðum til
að enda líf sitt. „Það voru alls kon-
ar ástæður sem ég var búinn að
hugsa mér. Kærasta mín á þessum
tíma hætti með mér og það var frá-
bær afsökun. Þá gat ég sagt að mér
liði ekki illa út af mér, en gat komið
ástæðunni yfir á einhvern annan.
Nokia 5.1 Plus
Með öflugum 8 kjarna
örgjörva fyrir AR leiki
Frábær
orkunýting
Android
One
13 og 5MP
myndavélar
19:916MP13MP12MP 5.8’’19:916MP13MP12MP 5.8’’ 19:916MP13MP12MP 5.8’’19:916MP13MP12MP 5.8’’
5.8”
HD+ skjár Framhald á síðu 14
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
„Ég ætla ekki að horfa á eftir
börnunum mínum í kistuna“
Líf Unnars einkenndist af fíkn og afbrotum
Framtíðin er björt Unnar er sáttur við lífið í
dag, en fíkn og afbrot voru áður daglegt brauð.
MYND: HANNA/DV