Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Qupperneq 16
16 5. apríl 2019FRÉTTIR
Þ
að vakti gífurlega athygli
í febrúar 2009 þegar DV
greindi frá því að Catalina
Ncogo, rúmlega þrítug
kona frá Miðbaugs-Gíneu, ræki
vændishús við Hverfisgötu, við
hliðina á lögreglustöðinni.
Catalina hafði flust hingað til
lands nokkrum árum áður eftir
að hafa gifst íslenskum manni.
Hún hafði ekki verið búsett lengi
hér á landi þegar hún byrjaði að
selja sig og á næstu misserum
varð hún gífurlega umsvifamikil
á íslenskum vændismarkaði.
Fram kom í grein DV að Lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu
hefði rökstuddan grun um að
Catalina hefði lífsviðurværi sitt af
vændi annarra og stundaði man-
sal með því að flytja ungar konur
til Íslands í því skyni að gera þær
út sem vændiskonur.
Fjórar erlendar stúlkur frá
Suður-Ameríku seldu sig í íbúð-
inni við Hverfisgötu. Í samtali við
DV sagði Catalina að hún væri
„bisnesskona“ sem hefði ekki
gert neitt ólöglegt og að stúlkurn-
ar í vændishúsinu hefðu komið
hingað til lands á eigin vegum.
Eftir umfjöllun DV var
Catalina nánast stöðugt í fjöl-
miðlum fyrir margs konar brot.
„Ég hefði alveg getað farið
að vinna aftur í fiski eða á kassa
í Bónus, en takmark mitt var að
verða rík og það gerist ekki ef
maður vinnur fyrir aðra,“ segir
Catalina í bókinni Hið dökka
man sem kom út árið 2010. Þá
steig hún fram í afar opinskáu
viðtali við Vikuna þar sem hún
fór hvergi leynt með að hún væri
eftirsótt vændiskona hér á landi.
Þá sagði hún að fjölmargir hátt-
settir men í þjóðfélaginu væru á
meðal viðskiptavina hennar.
„Ég er svarta perlan og þeir
vilja svona Barbie-stelpu. Ég tek
aðeins sérstaka kúnna og geri
þetta því ekki oft.“
Skömmu eftir
umfjöllun DV fór
Catalina til Hollands.
Hún var síðan handtekin í Leifs-
stöð við komuna aftur til lands-
ins, þann 19. febrúar 2009, og úr-
skurðuð í gæsluvarðhald vegna
gruns um mansal og að hafa haft
milligöngu um vændi. Einnig
var hún grunuð um aðild að
fíkniefnainnflutningi en kærasti
hennar, Helgi Valur Másson, var
handtekinn á Schiphol-flugvelli
fyrir innflutning á tíu kílóum af
kókaíni í vikunni áður.
Catalina er fyrsta manneskjan
á Íslandi sem ákærð er fyrir man-
sal en hún var síðar sýknuð af
þeirri ákæru. Hún hlaut að lok-
um tæplega fimm ára dóm fyrir
hórmang, fíkniefnainnflutning
og líkamsárás. Á þeim tíma hafði
enginn verið dæmdur fyrir að
græða á vændi á Íslandi síðan
hegningarlögunum var breytt
árið 2007.
Í
desember 2011 réðst Andrea
Kristín Unnarsdóttir, ásamt
tveimur öðrum, inn á heim-
ili konu í Hafnarfirði og mis-
þyrmdi henni á hrottalegan hátt.
Mennirnir tveir sem voru í för
með Andreu voru Jón Ólafsson,
kærasti hennar, og Elías Valdi-
mar Jónsson. Um var að ræða
hefndaraðgerð vegna skuldar.
Einar „Boom“ Marteinsson, fyrr-
verandi forsprakki vélhjólasam-
takanna Hells Angels, Vítisengla,
var seinna ákærður fyrir að hafa
skipulagt árásina en fólkið var allt
talið tengjast samtökunum með
einum eða öðrum hætti. Einar
var hins vegar sýknaður af ákæru
í héraðsdómi.
Árásin átti sér nokkuð langan
aðdraganda en fórnarlamb
árásarinnar og Andrea höfðu
átt í deilum. Við yfirheyrslur hjá
lögreglu hélt Andrea því fram að
fórnarlambið hefði stolið mótor-
hjóli sem var í hennar eigu,
og sömuleiðis síma sem inni-
hélt nektarmyndir af henni. Þá
sagði hún konuna hafa stolið frá
henni peningum og hún hefði
viljað endurheimta þá. Dagana
fyrir árásina voru konurnar tvær
í stöðugum samskiptum á Face-
book og í gegnum sms-skilaboð.
Þann 22. desember 2011 réðst
síðan þríeykið inn í íbúð konunn-
ar og gekk þar skrokk á henni.
Lýsingar á því sem átti sér stað í
íbúðinni þennan dag eru hroða-
legar. Þremenningarnir veittust
að konunni og, meðal annars,
slógu hana, spörkuðu ítrekað í
höfuð hennar, rifu hár hennar
upp með rótum, neyddu upp í
hana fíkniefnum og hótuðu að
klippa af henni fingur. Þá var kon-
an einnig beitt kynferðislegu of-
beldi. Á einum tímapunkti lagði
Andrea hníf að hálsi konunnar
og tók síðan um háls hennar og
þrengdi að. Skildu þau konuna
síðan eftir meðvitundarlausa í
blóði sínu og læstu hana inni í
íbúðinni.
Í janúar 2012 var fólkið hand-
tekið í viðamiklum aðgerðum
lögreglu en málið var áberandi í
fjölmiðlum á sínum tíma. Hlaut
Andrea Kristín viðurnefnið
„Andrea slæma stelpa.“
Í júní 2012 féll dómur í Héraðs-
dómi Reykjavíkur. Jón og Elías
fengu fjög urra ára dóm en Andrea
var hins vegar dæmd í fjögurra og
hálfs árs fangelsi þar sem hún var
talin hafa haft sig mest í frammi í
árásinni. Hæstiréttur þyngdi refs-
inguna og dæmdi Andreu í fimm
og hálfs árs fangelsi.
Fréttablaðið heimsótti Andreu
í Kvennafangelsið í Kópavogi í
nóvember 2012. Þar ræddi hún
meðal annars um dætur sínar
tvær sem þá voru átta og tíu ára.
„Það er engin leið að gera
börnum grein fyrir slíku en ég
hef reynt að útskýra fyrir henni
að mamma gerði mistök,“ sagði
Andrea á einum stað. Þá sagði
hún engan leggja upp með að
gera einhverjum illt.
„Ég væri ekki mannleg ef ég
iðraðist ekki gjörða minna og hef
átt erfitt með að horfast í augu við
þær allan tímann.“
Vilko.is • Sími 452 4272 • Húnabraut 33 • 540 Blönduósi
Netverslun með
stærri einingar
ÍSLENSK GLÆPAKVENDI
„Ég tek
aðeins
sérstaka kúnna
og geri þetta
því ekki oft.
Það er tiltölulega sjaldgæft að konur fremji alvarlega glæpi á Íslandi. Algengast
er að konur hljóti dóma fyrir smávægilega glæpi á borð við þjófnað og skjalafals
en þegar kemur að að manndrápsmálum, alvarlegum ofbeldis- eða kynferðis-
brotum eru karlar í áberandi meirihluta. Undanfarna fimm áratugi hafa nokkrar
konur komist í kastljós fjölmiðla í tengslum við alvarleg sakamál. Þetta eru
sögur þeirra.
Af vettvangi Andrea Kristín Unnarsdóttir
ANDREA „VONDA STELPA“
SVARTA PERLAN
EIGNAÐI SÉR
VÆNDIS
MARKAÐINN
Svarta perlan Catalina
Ncogo.
Framhald á síðu 18