Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Side 20
20 UMRÆÐA
Sandkorn
5. apríl 2019
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson
Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Stofnun
upp á punt
Í
þessari viku, líkt og þeirri síð-
ustu, hefur DV fjallað um
ástandið á Fiskistofu. Sú um-
fjöllun mun halda áfram enda
hafa fjölmörg mál komið þar upp
sem sýna fram á glundroða og
slæma meðferð á fjármunum rík-
isins. Skattfénu okkar.
DV hefur rætt við fjölmarga
starfsmenn, fyrrverandi og núver-
andi, sem allir hafa haft misgott
að segja um stofnunina og stjórn-
unina þar. Hér er ekki um neitt
smábatterí að ræða. Fiskistofa er
60 manna vinnustaður sem á að
sjá um eftirlit með mestu auðlind
landsins. Dæmin sýna sögu og þau
eru mýmörg. Yfirmönnum virðist
meira annt um að Fiskistofa verði
stofnun ársins í könnun hjá SFR
en að hún nái að uppfylla skyldur
sínar.
Nýverið var sett á laggirnar fjöl-
skipuð verkefnastjórn og samráðs-
hópur til að bregðast við svartri
skýrslu Ríkisendurskoðunar. Svo
fjölskipuð að sennilega verður
hver höndin upp á móti annarri og
afraksturinn enginn. Bara enn ein
rándýr skýrsla.
Vandræði stofnunarinn-
ar ná mörg ár aftur í tímann. Allt
keyrði svo um þverbak við flutn-
ing höfuð stöðvanna til Akureyrar.
Þá ábyrgð bera Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson og Sigurður Ingi
Jóhannsson. Hafði flutningurinn
skelfileg áhrif á bæði starfsmanna-
málin og fjármálin eins og DV
hefur greint frá. Vinnustaðasál-
fræðingar og lögfræðingar hafa
verið fengnir til þess að greiða úr
málum. Kergjan, biturðin og van-
traustið er allt umlykjandi. Þar að
auki finnst starfsfólki störf sín til-
gangslaus og missir þar með metn-
aðinn. Einn viðmælandi hafði á
orði að stofnunin væri upp á punt.
Það sem er gegnumgangandi
í máli Fiskistofu er vanvirðingin
fyrir hinu opinbera fé. Að til sé
endalaus gullpottur sem hægt sé
að stinga krumlunni í og sækja
dagpeninga, ferðapeninga, starfs-
lokagreiðslur og fleira. Fyrir eina
deildarstjórastöðu eru búnar til
tvær og þær fluttar hvor á sinn
landshlutann. Svo ferðast hinir
nýju deildarstjórar sífellt á milli.
Vel getur verið að ástandið sé
svipað hjá einhverjum öðrum
stofnunum. Árið 2017 fjallaði DV
um óboðlegt ástand hjá Landbún-
aðarháskólanum á Hvanneyri. Líkt
og hjá Fiskistofu fór þar allt á ann-
an endann eftir mislukkaða sam-
einingu. Sameiningu sem stjórn-
málamenn ákváðu. Vart verður því
þó trúað að ástandið geti nokkurs
staðar verið verra en hjá Fiskistofu.
Þó að stjórnmálamenn beri
mikla ábyrgð með sínum glæfra-
legu og vanhugsuðu aðgerðum þá
verða núverandi yfirmenn stofn-
unarinnar, Eyþór Björnsson fiski-
stofustjóri og sviðsstjórar, einnig
að taka gagnrýnina til sín. Taka
verður starfsemina í gegn frá A til
Ö með aðstoð utanaðkomandi að-
ila, þá ekki fjölskipuðu pólitísku
batteríi heldur fámennu og sam-
hentu liði kunnáttufólks í grein-
inni. Það er ekki í lagi að fara með
almannafé eins og matadorpen-
inga og starfsfólk eins og peð á
skákborði. n
Leiðari
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Spurning vikunnar Ferð þú til útlanda í ár?
„Já, til Brasilíu og Argentínu í haust.“
Bergsveinn Þorkelsson
„Já, ég ætla að fara víða.
Til dæmis til Orlando.“
Katrín Valentínusdóttir
„Ég er Hollendingur og fer
reglulega til Hollands.“
Sonja Hille
„Já, til Stuttgart.“
Helgi Pétur Hannesson
Úr Pírötum í Miðflokk
Flokksráðsfundur Miðflokks-
ins var haldinn fyrir skemmstu
í Garðabæ. Var þar glatt á hjalla
og athyglisvert að sjá hverjir
mættir voru. Athyglisverðast
var kannski að sjá rithöfund-
inn Hildi Sif Thorarensen. Hildur
hefur verið áberandi innan
Pírata á undanförnum árum
og gegndi meðal annars stöðu
oddvita í Norðvesturkjördæmi
um tíma. Hefur hún einnig ver-
ið virk í skrifum á bloggi Pírata.
Ekki er algengt að fólk færi sig
á milli þessara tveggja flokka.
Í nýlegri færslu frá Hildi virðist
sem afstaða Miðflokksins varð-
andi þriðja orkupakkann hafi
skipt sköpum.
Allir vinna
Búist hafði verið við mikl-
um verkföllum í vor en þeim
var afstýrt. Hafa sumir sagt að
hin nýja verkalýðsforysta hafi
beygt sig vegna falls WOW
og vandræða í ferðaþjónust-
unni. Miðað við nýja langtíma-
samninga á það ekki við rök að
styðjast. Þvert á móti stendur
forystan uppi sem sterkur
málsvari verkafólks og hefur
hrist af sér þá umsögn að hún
sé óviðræðu hæf.
Ríkisstjórnin fagnar einnig.
Samningarnir koma á besta
tíma eftir áfall síðustu viku. Nú
má búast við rólegri tímum út
kjörtímabilið. Samtök atvinnu-
lífsins geta ágætlega við unað
líka þó að þau hafi þurft að gefa
eftir af kröfum sínum. Það sem
mestu máli skiptir er að halda
ró á markaðnum.
„Það er ekki í lagi að
fara með almannafé
eins og matadorpeninga og
starfsfólk eins og peð