Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Side 23
Námskeið 2019 5. apríl 2019 KYNNINGARBLAÐ
Sumarbúðir KFUM og
KFUK - Vatnaskógur
KFUM og KFUK starfrækja fimm sumarbúðir, Vatnaskóg, Vindáshlíð í Kjósinni, Ölver við
Hafnarfjall, Hólavatn í Eyjafirði og
Kaldársel fyrir ofan Hafnarfjörð.
Vatnaskógur
Hver þekkir ekki Vatnaskóg og
ævintýrin sem þar eiga sér stað ár
hvert? Vatnaskógur við Eyrarvatn í
Svínadal í Hvalfjarðarsveit er heillandi
staður þar sem vatnið, bátarnir,
skógurinn og fjöllin í kring veita
ævintýraþyrstum óteljandi möguleika
til leikja og útiveru.
Á svæðinu er einnig frábær
aðstaða til íþróttaiðkunar. Þar er
íþróttahús, heitir pottar, fjórir gras
vellir og frjálsíþróttasvæði. Á svæð
inu er að finna fjöldann allan af
skemmtilegum leiktækjum og meðal
annars sérhannaða kassabíla.
Árabátar, hjólabátar, hoppu
kastalar, sandströnd, víðavangs
hlaup, vatnafjör, kofagerð, íþróttir
og margt fleira í boði fyrir ævintýra
þyrsta krakka á öllum aldri!
Öll kvöld enda á skemmtilegri
kvöldvöku þar sem brugðið er á leik
og sungið við raust. Auk þess er kafli
úr Guðsorði hugleiddur kvölds og
morgna. Veran í Vatnaskógi nærir
jafnt líkama og sál og koma allir
þaðan endurnærðir.
Undirbúningur starfsmanna mikill
Félagið KFUM og KFUK gerir miklar
kröfur til starfsmanna sinna og
eru þeir bæði hæfir og vel undir
búnir fyrir starf sitt. Starfsfólki er
tryggður fjölbreyttur undirbúningur
með námskeiðum þar sem lögð er
áhersla á fræðslu um þroska barna
og unglinga, skyndihjálp og bruna
varnir. Starfað er eftir siðareglum
Æskulýðsvettvangsins og hefur KFUM
og KFUM í áraraðir gert þær kröfur til
starfsmanna sinna að skila inn saka
vottorði.
Allir dvalargestir gista í Birkiskála
en þar er öll aðstaða fyrsta flokks.
GAURAFLOKKUR 8.–12. JÚNÍ 10–12 ára
FLOKKUR 13–17. JÚNÍ 9–11 ára
FLOKKUR 18.–23. JÚNÍ 10–12 ára
ÆVINTÝRAFLOKKUR 24.–29. JÚNÍ 12–14 ára
FLOKKUR 1.–5. JÚLÍ 9–11 ára
FLOKKUR 8.–12. JÚLÍ 10–12 ára
ÆVINTÝRAFLOKKUR 13.–18. JÚLÍ 12–14 ára
FLOKKUR – ÖLL BÖRN 19.–24. JÚLÍ 11–13 ára
FLOKKUR 25.–30. JÚLÍ 10–12 ára
FLOKKUR 6.–9. ÁGÚST 9–12 ára
UNGLINGAFLOKKUR 12.–18. ÁGÚST 14–17 ára
FJÖLSKYLDUFLOKKUR 23.–25. ÁGÚST
FEÐGAFLOKKUR 30. ÁGÚST–1. SEPT. 6–99 ára
KARLAFLOKKUR 6.–8. SEPT. 18–99 ára
Það er um að gera að skrá sig sem fyrst í einhvern af þeim skemmtilegu flokkum
sem Vatnaskógur býður upp á! Í hvern flokk komast mest 95 þátttakendur:
Skráðu þig eða barn þitt á vef
félagsins kfum.is
Sími: 588-8899
Félagið KFUM og KFUK er staðsett
að Holtavegi 28.
Tölvupóstur: skraning@kfum.is