Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 26
Námskeið 2019 5. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ
Grænkeramatreiðsla,
veganlífsstíll og
minni matarsóun
Ég er með grænar rætur, rak lengi veitingastaðinn Á næstu grösum og Culina veitingar
og hef sótt alls konar skemmtileg
námskeið tengd grænkera lífs
stílnum. Þannig að á þessum græna
grunni mótast mínar aðferðir. En
inn í þetta blandast líka sú áskorun
sem brennur heitt á okkur öllum:
Það sem við borðum skiptir svo miklu
máli varðandi loftslags vandann.
Þetta tvennt vinnur saman,“ seg
ir matreiðslumeistarinn Dóra
Svavarsdóttir en hún býður upp á
nokkur skyld matreiðslunámskeið
seint í apríl og í maí: Grænkera
matreiðslunámskeið, Viltu vera
vegan? og Eldað fyrir einn. Fyrri tvö
námskeiðin kynna fyrir fólki græn
metisfæði og veganlífsstílinn en það
þriðja tekst á við matarsóun og þá
áskorun að skipuleggja eldamennsku
þegar bara einn eða tveir eru í heimili.
„Ég kenni fólki að minnka upp
skriftir og minnka einingar, fer yfir í
hvaða magni er sniðugt að elda og
svo bendi ég á leiðir til að auka fjöl
breytni,“ segir Dóra en þetta er nám
skeið sem getur allt í senn hjálpað
okkur að spara peninga, sóa minna
og verða umhverfisvænni.
„Það er ekki raunhæft að allir
verði vegan, en það er alveg á hreinu
að við á Vesturlöndum verðum að
minnka kjötneyslu allverulega ef við
ætlum að uppfylla skuldbindingar
okkar varðandi loftslagsmál,“ segir
Dóra.
„Ég legg líka áherslu á vandaða
vöru, það þarf ekki að vera dýrasta
varan en helst matur sem við vit
um hvaðan kemur. Ég nota sjálf
bara hreinan mat. Ég geri mér hins
vegar grein fyrir því að þátt takendur
á námskeiðinu hafa hinar ýmsu
forsendur og þetta er hugsað sem
viðbót við þeirra eigin aðferðir,“ segir
Dóra.
Námskeiðin eru öll verkleg og
fólk eldar á staðnum. Síðan borðar
hópurinn saman, en kennt er í litlum
hópum.
Námskeiðin fara fram í húsnæði
Hússtjórnarskólans að Sólvallagötu
12 í 101 Reykjavík. Þau standa frá
kl. 17.30 til 22. Fólk tekur með sér
svuntu, inniskó og dalla undir af
ganga til að gefa svöngu heimilisfólki
að borða og kosta 9.900 kr.
Námskeið framundan:
apríl: Grænmetisfæði / grænkera
matur
maí: Eldað fyrir einn
maí: Viltu vera vegan?
maí: Grænmetisfæði / grænkera
matur
Nánari upplýsingar eru á vefsíð
unni culina.is. Skráning er í gegnum
netfangið dora@culina.is eða í síma
8925320.
MATREIÐSLUNÁMSKEIÐ DÓRU: