Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 29
FÓKUS - VIÐTAL 295. apríl 2019
M
agnús Ver Magnússon, einn
sigursælasti aflraunamaður
sögunnar, hefur verið viðloð-
andi kraftasport síðan hann
var unglingur á Seyðisfirði, en aflið fékk
hann við bústörf í Jökulsárhlíðinni sem
polli. Blaðamaður DV settist niður með
Magnúsi og ræddi við hann um æsk-
una, einstakan feril, samferðamennina,
hleranir, núverandi störf og heilsu.
Allt þurfti að vera erfitt
Magnús Ver fæddist á Egilsstöðum árið
1963. Fyrstu árin bjó hann á sveitabæ
ömmu sinnar og afa í Jökuldalnum.
„Ég vildi alltaf fá mjólk beint úr belj-
unni. Á þessum tíma voru kýrnar hand-
mjólkaðar og ég fékk alltaf glas af yl-
volgri mjólk eftir mjaltir. Annars var ég
ósköp venjulegur krakki og ekkert mjög
óþægur,“ segir Magnús um æskuárin í
sveitinni.
Amma hans og afi brugðu búi um
það leyti sem skólaganga Magnúsar
hófst og þá fluttist hann til Reykjavík-
ur með móður sinni, Elsu Jónsdóttur,
og fósturföður, Hreggviði M. Jónssyni.
Faðir Magnúsar, sem hann var skírður í
höfuðið á, féll frá þegar hann var mjög
ungur. Þrjú yngri hálfsystkini á Magnús
en eldri hálfsystir hans er fallin frá.
Magnús gekk í Austurbæjarskólann
og Fellaskólann til tólf ára aldurs en
þá flutti hann austur til Seyðisfjarðar.
Á hverju ári var Magnús sendur í sveit,
á Torfastaði í Jökulsárhlíð, þar sem
Hreggviður ólst upp en bróðir hans rak
þar býli.
„Þetta var nú sérstakur karl,“ segir
Magnús og brosir. „Það mátti ekkert
gera á auðvelda mátann. Það þurfti allt
að vera erfitt. Hann var með þeim fyrstu
í sveitinni til að fá sér bindivél en hjá
okkur voru bundnir stærstu og þyngstu
baggarnir í sveitinni. Svo þurfti ég að
bera þá.“
Varðst þú hraustur af verunni þar?
„Að stórum hluta, já. Ég gekk í öll
bústörf, alveg sama hvað það var, og
þótt ég hafi aðeins verið tólf ára gamall.
Þetta voru góðir tímar. Ég keyrði traktor,
sló og rakaði. Stundum keyrði ég vöru-
bílinn.“
Það er aldrei langt í brosið hjá Magn-
úsi, sérstaklega þegar hann rifjar upp
þessa gömlu tíma.
Þarna verð ég einn daginn
Unglingsárunum varði Magnús á
Seyðisfirði. Mikil vatnaskil urðu í lífi
hans í kringum átján ára aldurinn þegar
lögreglumaðurinn og kraftlyftingamað-
urinn Óskar Sigurpálsson flutti í bæinn.
Hann hafði meðal annars keppt tvíveg-
is á Ólympíuleikum og var talinn faðir
lyftinganna á Íslandi.
„Eftir að hann kom á staðinn voru
keypt tæki til lyftinga, stangir, lóð og
þvíumlíkt. Við strákarnir vildum ólm-
ir komast í þetta og byrjuðum að lyfta.
Ég reyndi aðeins fyrir mér í fótbolta
og frjálsum íþróttum á þessum árum
líka. Aðallega kastgreinunum fyrir
„Bíðið bara,
þarna verð ég
einn daginn“
n Magnús Ver fílefldist við bústörf n Slóst við
Kazmaier n Símhleranir lögreglunnar n Reynir
stofnfrumumeðferð til að bjarga hnjánum
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
MYND: HANNA/DV
NÆSTI KAFLI HEFST HJÁ OKKUR
KVÍSLARTUNGA, 270 MOSFELLSBÆR
86.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Parhús á 2 hæðum
286 M2
7
NAUSTABRYGGJA, 110 REYKJAVÍK
79.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Fjölbýli
184 M2
6
KÖGURSEL, 109 REYKJAVÍK
75.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Einbýli á 2 hæðum
199 M2
6
Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800 www.gimli.is BJÓÐUM UPPÁ FRÍTT SÖLUVERÐMAT