Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 32
32 FÓKUS - VIÐTAL 5. apríl 2019
ég var látinn vita af því að ég hefði
sætt rannsókn og svo ætlaði ná-
unginn í símanum að kveðja án
þess að segja af hverju. Síðan sveik
hann það að senda mér málsnúm-
erið. Ég fékk mér lögfræðing til
að krefja þá svara en það reyndist
þrautin þyngri. Það átti að þagga
málið niður. Því var ekki um ann-
að að ræða en að draga þá fyrir
dóm. Við vissum allan tímann að
við værum með unnið mál og bæt-
urnar voru ekki aðalmálið. Við
vildum sýna þeim fram á að svona
meðferð væri ekki í lagi.“
Sýndi lögreglan einhverja við-
leitni til að bæta þér þetta eða
rétta þinn hlut?
„Nei, aldrei. Þvert á móti, á
þessum tíma, gerðu þeir í því að
stoppa mig í umferðinni. Mér
fannst svo merkilegt að fyrst þeir
voru svona vissir í sinni sök af
hverju mættu þeir þá ekki með
leitarheimild, það gerðist aldrei.“
Misstir þú álit á lögreglunni?
„Þeir hafa ákveðna vinnuferla
og aðferðir sem að mörgu leyti
eru skiljanlegar. En miðað við það
hvernig þeir fengu þessar heim-
ildir í gegn þá virtust þeir ekki víla
það fyrir sér að ljúga. Það er fjöldi
góðra manna í lögreglunni sem
vinna sín störf af heilindum. En
því miður eru skemmd epli inni á
milli.“
Titillinn kominn heim
Á síðasta ári vann Hafþór Júlíus
Björnsson keppnina Sterkasti
maður heims. Er það fyrsti titill
Íslands síðan Magnús vann árið
1996. Nokkuð langur aðdragandi
hefur verið að titlinum og Hafþór
verið á verðlaunapalli öll árin frá
2012.
Þú uppgötvaðir Hafþór, var
það ekki?
„Já, ég æfði um tíma í Sporthús-
inu áður en við opnuðum Jakaból.
Þar rakst ég á þennan síðhærða
slána og spurði hvort hann væri
ekki til að prófa aflraunir. Það væri
ýmislegt hægt að gera við svona
stóran skrokk. Hann lét tilleiðast
og mætti á Vestfjarðavíkinginn.
Þar sjokkeraði hann alla hina
strákana með því að vinna strax
fyrstu greinina, legsteinagönguna.
Eftir það varð ekki aftur snúið og
hann fylgdi okkur inn í Jakaból.
Síðan hefur hann opnað sína eig-
in aðstöðu.“
Hvernig er hann í samanburði
við ykkur Jón Pál?
„Sportið hefur breyst gífurlega
og í dag er einblínt meira á styrk
en fimi. Það eru meiri þyngdir
og styttri vegalengdir. Þetta gerir
það að verkum að þessir stærri og
þyngri menn gera betur en áður
fyrr. Þessir strákar í dag eru líka
betur þjálfaðir sem aflraunamenn.
Við Jón æfðum aldrei kúlusteina
en vorum bestir í þeim á mótum.
Í dag æfa menn kúlusteina,
drumbalyftu og allt saman. Þetta
er orðin meiri atvinnumennska,
mótin fleiri og peningarnir meiri.
Hafþór var búinn að vera nálægt
titlinum lengi og ég vissi alltaf að
það kæmi að sigrinum. Eins og
staðan er í dag virðist hann bera
höfuð og herðar yfir alla aðra. Ég
var að aðstoða hann við æfingar
áður fyrr. Þetta var strákur sem
maður gat hálfdrepið á æfingu en
hann kom samt daginn eftir og
bað um meira.“
Reynir stofnfrumumeðferð
Öll þessi ár af átaki hafa tekið sinn
toll hjá Magnúsi. Nú er svo komið
að hnén eru farin að gefa sig vegna
slitgigtar og Magnús fékk þann dóm
frá læknum að skipta þurfi þeim út.
„Næstkomandi maí fer ég út til
Belgíu í stofnfrumumeðferð. Þetta
eru óhefðbundnar lækningar en
þess virði að láta á þær reyna. Sam-
kvæmt kenningunni á þetta að
draga úr verkjum og frumurnar eiga
að mynda nýtt brjósk. Einn félagi
minn fór þarna út í sams konar að-
gerð og líður mun betur eftir hana.
Ég vil prófa allt áður en ég fer í hné-
skipti.“
Auk þess er hálsinn stífur eftir
bílslys sem hann lenti í fyrir um
tíu árum. Kom þá mikill hnykkur á
hálsinn. Aðeins tveimur mánuðum
síðar var keyrt aftan á hann á mót-
orhjóli. Kom þá aftur hnykkur á
hálsinn og getur Magnús vart snúið
honum til að líta aftur fyrir sig.
„Ég ríf nú lítið í lóðin núorðið,“
segir Magnús. „Hnén leyfa það ekki
og öxlin er orðin slæm líka. Ég æfi
minna en ég vildi gera. Alltaf eitt-
hvað samt, því að ég verð verri ef ég
sleppi því. Eins og hjá öllum öðr-
um sækir aldurinn að. Það er búið
að nota þennan skrokk og hann er
búinn að gera hluti sem hann átti
ekki að geta gert.“ n
GERlf> GJEf>A- OG VERf>SAMANBURf>
Nattsloppar og saengurfot
MikiO urval - Flottar fermingargjafir
� .... �--...... - -
' �.: ' . ., J • .;-
Baldursnesi 6 - Akureyri
Listhusinu Laugardal- Simi 581 2233
Baldursnesi 6, Akureyri - Simi 461 1150
OpiO virka daga kl. 10:00 - 18:00
Laugardaga 12:00 - 16:00
Umboclsallilar: I Husgagnaval - Hiifn f Hornafirlli I Bara snilld ehf. - Egilsstoclum Umboðsaðilar: Húsgagnaval - Höfn / B ra s illd ehf. - Egi sstöðum
GJÖF
FYLGIR
FERMINGAR-
RÚMUM
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR
& UNDIRKERFI
Pure Strength 1989 O.D.
liggur óvígur eftir tunnuna.
Ungstirni Kraftlyft-
ingamaður ársins 1987.
„Það átti að þagga mál-
ið niður. Því var ekki um
annað að ræða en að draga þá
fyrir dóm.