Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Qupperneq 33
FÓKUS 335. apríl 2019
M
aría Ósk Skúladóttir býr
ásamt unnusta sínum,
Jóni Daða Böðvarssyni
landsliðsmanni í fótbolta,
og rétt rúmlega fjögurra mánaða
gamalli dóttur þeirra í Reading í
Englandi. Þar hefur fjölskyldan
dvalið í tvö ár en Jón Daði spilar
með liðinu Reading á meðan Mar-
ía stundar fjarnám í viðskiptafræði
við háskólann á Akureyri.
Parið hefur sökum atvinnu
Jóns Daða þurft að flytja reglu-
lega á milli landa og segir María
það oft hafa verið erfitt, en að ekk-
ert toppi það þó að fá að fylgjast
með maka sínum upplifa drauma
sína. Þrátt fyrir erfiðleika fyrri bú-
setuflutninga og peningavand-
ræða hefur parið nú komið sér
vel fyrir í Englandi og segist María
sjaldan sakna Íslands. Blaðakona
fékk að forvitnast um líf þeirra
úti með nýjan fjölskyldumeðlim,
ferðalögunum sem fylgja starfi
Jóns Daða og framtíðaráformum
þeirra.
Getur verið erfitt að lifa í óvissu
og að þurfa alltaf að byrja nýtt líf
„Síðan við fluttum frá Íslandi höf-
um við búið í Noregi, Þýskalandi
og svo núna í Englandi, en hér
höfum við verið í næstum því tvö
ár. Við kunnum virkilega vel við
okkur hérna og ég vona innilega
að við verðum hér sem lengst. Þar
sem fótboltinn er svo óútreiknan-
legur veit maður víst aldrei hversu
lengi maður verður á hverjum
stað. Það getur verið erfitt að lifa í
þannig óvissu og tekið á að þurfa
alltaf að byrja algjörlega nýtt líf á
nýjum stað. Það lendir líka oftast á
fjölskyldum fótboltamannanna að
standa í flutningum á milli staða
þar sem þeir verða að fara strax
á nýja staðinn. Ég hef því staðið
nokkrum sinnum í því að þurfa að
sjá um skipulagningu og flutning
á milli landa. En það er auðvitað
líka mjög spennandi og gaman að
fá að prófa að búa á mörgum stöð-
um,“ segir María sem er um þess-
ar mundir í fæðingarorlofi með
dóttur sinni ásamt því að sinna
námi og halda úti bloggsíðu sinni
(mariaosks.com).
María segir fjölskylduna
heppna með ættingja og vini sem
heimsækja þau reglulega til Eng-
lands og því sakni þau Íslands ekki
mikið. Þá segist hún einnig hafa
mörg áhugamál sem hún nýtir
tíma sinn í.
„Í sannleika sagt þá sakna ég
Íslands ekki mikið þótt það komi
tímabil sem ég sakna þess meira.
Það eru þá aðallega fjölskyldan
og vinir sem maður saknar. Svo
eru vissir hlutir sem maður sakn-
ar meira, eins og til dæmis allar
sundlaugarnar. Einmitt núna þá
ver ég stærstum hluta dagsins
heima við að sjá um dóttur okk-
ar, elda mat, taka til og svoleið-
is. Síðan reyni ég eftir bestu getu
að troða náminu inn þegar ég hef
dauðan tíma. Síðustu daga hef ég
einnig verið að skipuleggja skírn
en við ætlum að skíra dóttur okkar
þegar við komum til Íslands eftir
að tímabilinu hjá Jóni Daða lýkur.
Ég hef svo mörg áhugamál, með-
al annars tísku, ljósmyndun, lestur
og málun. Svo get ég eytt heilu
kvöldunum í sjónvarpsgláp, en
mér finnst mjög gaman að horfa á
góða sjónvarpsþætti.“
Lífið oft erfiðara en fólk býst
við þegar það heyrir starfs-
heitið atvinnumaður í fótbolta
Þrátt fyrir að atvinna Jóns geri að
verkum að hann ferðist mikið þá
er María ekki alltaf með í för. Hún
fór þó með honum þegar hann
spilaði með landsliðinu á EM og
HM og segir það hafa verið æðis-
lega og spennandi upplifun.
„Ég hefði örugglega aldrei val-
ið að ferðast til Rússlands annars.
Þegar landsliðið spilar fer ég oft-
ast til Íslands, hvort sem leikurinn
er heima eða ekki, og ég er ekki
dugleg að fara á útileiki þegar Jón
Daði spilar hérna á Englandi. Fjöl-
skyldur fá venjulega ekki að ferð-
ast með í fótboltanum og til dæm-
is bæði á EM og HM þá var mjög
takmarkað hvað við fengum að
hitta strákana okkar. Á EM ferðuð-
ust flestar fjölskyldur á eigin veg-
um og við hittum strákana aðeins
í skamma stund eftir hvern leik. Í
Rússlandi var fyrirkomulagið mjög
svipað hvað það varðar nema KSÍ
hélt aðeins betur utan um okkur
í það skiptið. Ég reyni að fara til
Íslands á alla landsleiki sem eru
spilaðir þar, en það gæti breyst að-
eins núna eftir að við eignuðumst
dóttur okkar.“
María segir erfitt að útskýra
fyrir fólki hvernig það sé að eiga
unnusta sem er atvinnumaður í
knattspyrnu, því staða þeirra get-
ur verið svo mismunandi hverju
sinni.
„Fyrir mér er þetta bara ósköp
venjulegt líf þar sem makinn ferð-
ast og er mikið erlendis vegna
GRÆNA TUNNAN
AUÐVELDAR FLOKKUNINA
Pappír, pappa, plast og minni málmhluti
má setja beint í tunnuna - Muna að skola
Pantaðu grænu tunnuna í síma 577-5757 eða www.igf.is/panta
577 5757
upplifa drauminn
Allt þess virði
að sjá ástina
n María Ósk býr í Reading með Jóni Daða Böðvarssyni n Oft þurft að flytja á milli landa
„Launin voru alls ekki
frábær og við bjuggum
í gamalli eins svefnherbergis
kjallaraíbúð
Lærir viðskiptafræði Dreymir um
eigin rekstur í framtíðinni.
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@dv.is