Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Page 34
34 FÓKUS 5. apríl 2019
starfsins. Þegar við Jón Daði
byrjuðum saman árið 2012 þá
bjuggum við bæði á Íslandi.
Hann spilaði með Selfossi og
var ekki atvinnumaður. Þegar
hann svo fékk tækifærið til
þess að fara út til Noregs að
spila árið 2013 þá gerði ég
mér ekki alveg grein fyrir því
hvað ég var að fara út í þegar
ég flutti með honum. Ég hélt
að þetta yrði svipað og á Sel-
fossi. En þótt hann hafi verið
atvinnumaður í Noregi þá var
það kannski ekki beint eins
og það líf sem margir hugsa
þegar það heyrir starfsheitið
„atvinnumaður í fótbolta.“
Launin voru alls ekki frá-
bær og við bjuggum í gamalli
eins svefnherbergis kjallaraí-
búð öll þrjú árin sem við vor-
um þar. Meðal annars þegar
hann var að spila sínu fyrstu
landsleiki með A-landsliðinu
í undankeppni EM. Þá var ég
að vinna 100 prósent starf í versl-
un og var því mjög bundin í Nor-
egi þegar hann var að ferðast út af
fótboltanum. Það gat verið erfitt,
en núna, þremur árum seinna,
erum við hins vegar á betri stað í
lífinu. Það gerði það að verkum að
ég gat meðal annars hætt að vinna
og farið í nám. Við það varð til-
vera mín töluvert sveigjanlegri og
auðveldara að aðlaga lífið að starfi
hans.“
Grunaði ekki neitt
María og Jón Daði trúlofuðu sig
þann 17. janúar árið 2017 eftir
brösuglega tilraun Jóns til þess að
biðja Maríu um að giftast sér.
„Jón Daði var búinn að skipu-
leggja mjög fínt stefnumót handa
okkur á fínum veitingastað til
þess að halda upp á sambands-
afmæli okkar. Þegar kom svo að
stóra deginum varð hann fárveik-
ur svo að við urðum að hætta við
stefnumótið. Það voru meiri von-
brigði fyrir hann en mig þar sem
ég vissi auðvitað ekkert hvað hann
var búinn að plana. Eftir jól kom
svo að stefnumótinu okkar og í
staðinn fyrir að fara út að borða
ákvað hann að panta til okkar kokk
heim og hafa stefnumótið þar. Eft-
ir að kokkurinn var farinn kallaði
hann á mig inn í stofu og þar var
hann á öðru hné á miðju gólfinu
með hringinn og allt tilbúið. Mér
brá ekkert smá þegar ég gekk inn
í stofuna og sneri við í sjokki. Ég
vissi ekkert hvernig ég átti að haga
mér. Ég var svo fljót að fara til hans
og segja já og kyssa hann.“
Þau hófu að skipuleggja brúð-
kaupið og ætluðu að gifta sig sum-
arið 2019. Þau plön fóru þó út um
þúfur þegar þau komust að því að
María var orðin ólétt.
„Við ákváðum að það væri
skynsamlegast að fresta því
tímabundið þar sem ég var ekki
tilbúin að gifta mig svo stuttu eft-
ir að ég eignaðist barn. Ég reikna
með því að skipulagið fari allt á
fullt núna í sumar aftur, en við ætl-
um að halda brúðkaupið á Íslandi
þar sem okkur langar að hafa sem
flesta vini og ættingja með okkur á
þessum degi.“
Kastaði stanslaust upp í
Rússlandi á HM
Meðganga hjá Maríu gekk eins
og í sögu þrátt fyrir örlitla byrjun-
arörðugleika en parið komst að
þunguninni tveimur vikum áður
en það hélt til Rússlands á HM.
„Ég upplifði hræðilega ógleði
frá sjöttu til sextándu viku. Ég
komst að því að ég var ólétt tveim-
ur vikum fyrir HM á Rússlandi svo
það var ekki heppilegasti tíminn.
Ég var svo veik að ég hélt varla
niðri vatn og kastaði upp allan
daginn, alla daga. Ég hætti næst-
um því við að fara út af óléttunni,
en ég hitti lækni áður en ég fór út
og hann skrifaði upp á ógleðis-
lyf handa mér og sendi mig upp
á kvennadeild til að fá vökva í æð
daginn fyrir flugið út. Þrátt fyrir
ógleðislyfin var ég þó enn þá mjög
veik og ælandi nokkrum sinnum
á dag alla ferðina. Ég náði þó að
komast í gegnum hana án þess
að allir föttuðu leyndarmálið okk-
ar. Vissulega voru samt sumir sem
áttuðu sig á hvað var í gangi. Ég
ætla ekki að ljúga því að það var
erfitt að njóta ferðarinnar út af
þessu, enda var ég oftast föst uppi
á hóteli eða að farast úr ógleði í
hitanum úti. En það var allt þess
virði að sjá ástina mína upplifa
einn af draumunum sínum. Það
gerist ekki á hverjum degi.“
Fæðing dóttur þeirra tók langan
tíma og María missti mikið blóð.
Þrátt fyrir þá erfiðleika þá segir
María fæðinguna hafa gengið vel.
„Undanfarinn var þó mjög lang-
ur og ég var með sárar hríðir á um
það bil þriggja til tíu mínútna fresti
í tvo sólarhringa áður en ég byrjaði
að fá útvíkkun. Það gerði að verk-
um að ég var búin að vaka í meira
en 48 klukkutíma og var algjör-
lega uppgefin þegar ballið byrjaði.
Ég skal alveg játa að ég fór að gráta
þegar við komum í seinna skiptið
upp á spítalann eftir þessa tvo sól-
arhringa og ég var enn aðeins með
einn í útvíkkun. Á þeim tímapunkti
var ég farin að sjá fyrir mér að þetta
myndi taka viku og ég myndi lík-
lega deyja úr þreytu. Við ákváðum
þó að fara ekki aftur af spítalanum
og það var líklega rétt ákvörðun þar
sem um það bil tólf tímum seinna
fæddist dóttir okkar. Fæðingin tók
átta klukkutíma og rúmlega klukku-
tíma áður en hún kom í heiminn
fékk ég loksins mænudeyfingu sem
var algjör himnasending. Ég gat þá
lagt mig í örskamma stund áður
en hún fæddist. Ég held ég hafi
aldrei séð Jón Daða jafn feginn og
þegar læknirinn sem framkvæmdi
mænudeyfinguna kom inn í her-
bergið.“
Draumurinn að eiga sinn eigin
rekstur
Síðan dóttir þeirra kom í heiminn
hefur lífið leikið við þau og telur
María þau vera heppin með vært
og gott barn.
„Mamma mín kom út og var
hjá okkur fyrstu tvær vikurnar
að hjálpa til, það er algjörlega
ómetanlegt. Það hjálpaði okkur
afskaplega mikið að aðlagast
breytingunni og mér að ná aðeins
upp svefni aftur eftir fæðinguna.
Núna erum við bara ein úti og það
gengur svakalega vel. Nú ætla ég
bara að komast í gegnum loka-
prófin í apríl ásamt því að skipu-
leggja skírnina og sumarfríið okk-
ar. Það er alveg full vinna að gera
það með eitt svona lítið kríli líka.
Á næstu árum sé ég svo fyrir mér
að klára námið en eftir það er
draumurinn að vera með minn
eigin rekstur. Hvað það verður er
ég ekki alveg búin að ákveða enn
þá. Ég hef enn smá tíma til þess að
velta því fyrir mér. Á meðan ætla
ég að njóta þess að vera með litlu
fjölskyldunni minni og ala upp
dóttur okkar.“ n
„Þar sem fótboltinn er svo óút-
reiknanlegur veit maður víst aldrei
hversu lengi maður verður á hverjum stað
Barn á leiðinni Bónorð
Jóns Daða gekk brösuglega.
Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn
María skipuleggur skírn á Íslandi.
Dragháls 14-16 Sími 412 1200
110 Reykjavík www.isleifur.is
Straumhvörf
í neysluvatnsdælum
Grundfos Scala 3-45
Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýsting og
hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra
Innbyggð þurrkeyrsluvörn
Afkastar 8 aftöppunar stöðvum