Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Síða 40
40
F
rakkinn Jean-Paul Drillard
hafði gaman af lífinu. Hann
var glaðsinna náungi, alltaf
með bros á vör og gam-
anyrði á takteinum. Skotveiðar
voru líf hans og yndi, stangaveið-
ar ekki svo mjög því hann var, eins
og hann sagði við sambýliskonu
sína, Genevieve, ósyndur. „Og,“
bætti hann við, „satt best að segja
hræðist ég vatn.“
Lítil hamingja
Jean-Paul og Genevieve bjuggu í
litlu húsi í Chevinay, litlu þorpi í
Rhone-dalnum í Frakklandi, ekki
langt frá Lyon. Þegar þarna var
komið sögu, fyrri hluta árs 2008,
fannst Jean-Paul lífið leika við sig
en raunin hafði ekki alltaf verið sú.
Þar til ári áður hafði hann ver-
ið kvæntur maður, átt fjögur börn
(sem hann átti svo sem enn, þegar
hann og Genevieve fóru að rugla
saman reytum) og unnið hjá
vatnsfyrirtæki. Hann hafði ekki
verið hamingjusamur maður.
Kunni ekki að elda
Heimilið þá var gamall bóndabær.
Bærinn var nógu stór fyrir alla fjöl-
skylduna, það vantaði ekki, en
Jean-Paul var ekki ánægður. Hon-
um fannst eiginkona sín engan
veginn standa sig í stykkinu, þrifn-
aði var ábótavant og Guð mátti
vita hvað.
Jean-Paul þreyttist aldrei á að
kvarta yfir því, en það var eitt sem
honum mislíkaði meira en allt
annað. Konan hans, sagði hann,
gæti ekki eldað sómasamlega mál-
tíð þótt líf hennar lægi við.
Skilnaður og ný kona
En sem sagt, Jean-Paul sagði skilið
við eiginkonuna og einhæfa elda-
mennsku hennar og má leiða líkur
að því að hún hafi ekki verið ósátt
við þá ákvörðun því samskipti
þeirra voru með ágætum í kjölfar-
ið. Hún flutti með börnin en Jean-
Paul bjó áfram á gamla bænum.
Nú tíminn leið, eins og honum
er tamt að gera, og Jean-Paul
kynntist einstæðri konu; Gene-
vieve Bertry.
Eiginmaður Genevieve hafði
beðið lægri hlut fyrir krabbameini
þremur árum fyrr og eini lífsföru-
nautur hennar síðan hafði verið
langhundur.
Frábær kokkur
Að sögn fór því fjarri að Gene-
vieve væri sem sólargeisli, en hún
var einum ótvíræðum kosti búin –
hún kunni að elda frábæran mat.
Um leið og Jean-Paul var búinn
að sannreyna það varð ekki aftur
snúið. Þau tóku saman og fluttu
inn í nýtt heimili á Chevinay.
Jean-Paul hafði unun af að
innbyrða góðan mat, en þátt-
taka í matseldinni kannski ekki
eins mikið. Því sat hann gjarna á
hverfiskránni ásamt veiðifélögum
sínum og dreypti á víni á meðan
Genevieve stóð við hlóðirnar.
Ekki eilíf hamingja
Leið nú ár eða svo og var eftir því
tekið að Jean-Paul virtist hafa
glatað sinni alkunnu gleði. Sagði
hann vinum sínum að Gene vieve
gæti ekki sofið án þess að inn-
byrða sterkar svefntöflur og þeir
vissu einnig að hún átti til að verða
þunglynd. Til að bæta gráu ofan
á svart þá voru þau farin að rífast
oftar en góðu hófi gegndi.
Þungamiðja deilna þeirra var
langhundur Genevieve. Jean-Paul
vildi ekki sjá hundinn inni á heim-
ili þeirra, enda taldi hann, sem
veiðimaður, að hundar ættu að
vera í hundageymslu. Genevieve
mátti ekki heyra á slíkt minnst.
Kviðverkir
Þegar lífið lék við Genevieve og
Jean-Paul áttu þau til að ganga
saman á bökkum vatns sem var í
nokkurra kílómetra fjarlægð frá
húsi þeirra. Það var einmitt í einni
slíkri gönguferð sem Jean-Paul
upplýsti Genevieve um vatns-
hræðslu sína og væri ósyndur.
Það var þó fleira sem olli hon-
um hugarangri. Heiftarlegir kvið-
verkir sem virtist nánast vera við-
varandi. Hver veit, sagði hann í
gríni við vini sína, nema dásemdar
matseld Genevieve væri að gera út
af við hann.
SAKAMÁL
5. apríl 2019
7 vinnufélaga sína myrti Byran Koji Uyesugi í Honolulu á Hawaii þann 2. nóvember árið 1999. Fjöldamorðið, sem var það versta í sögu Hawaii, var nefnt Xerox-morðin vegna þess
að morðinginn og fórnarlömbin unnu öll hjá Xerox í Honolulu.
Byran hafði unnið hjá fyrirtækinu síðan 1984 og ekkert benti til
þess að hann glímdi við geðræn vandamál. Á því varð breyting
þegar hann var færður milli deilda innan fyrirtækisins. Þá upp-
hófust tilhæfulausar ásakanir af hans hálfu í garð vinnufélaganna
auk þess sem hann vann skemmdarverk á viðgerðum þeirra.
Byran einangraðist, gerðist reiður mjög og sendi hótanir á baða
bóga, jafnvel líflátshótanir. Árið 1993 var svo komið að ekki að ekki
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
ÓSYNDI FRAKKINN OG LISTAKOKKURINN
n Jean-Paul elskaði góðan mat n Genevieve var frábær kokkur n Um tíma lék allt í lyndi n Allt tekur enda
„Kvöldið er fagurt.
Af hverju keyrum
við ekki niður að vatni og
fáum okkur göngutúr?
Jean-Paul Drillard Glaðsinna
Frakki sem líkaði góður matur.
Vatnið í Chevinay
Vettvangur gönguferða
Jean-Paul og Genevieve.