Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Side 41
Kvöldganga
Víkur nú sögunni til kvölds-
ins 28. apríl 2008. Jean-Paul og
Gene vieve höfðu nýlokið við að
gæða sér á enn einum dýrind-
is kvöldverði og Genevieve sagði:
„Kvöldið er fagurt. Af hverju keyr-
um við ekki niður að vatni og fáum
okkur göngutúr?“
Jean-Paul fann ekkert því til
foráttu enda saddur, sæll og sáttur
við tilveruna og þau lögðu af stað.
Áður en þau komu á leiðarenda
var Jean-Paul í fastasvefni í far-
þegasætinu frammi í.
Værð hans mátti þó ekki aðeins
rekja til kvöldverðarins heldur
einnig, og alls ekki að minna leyti,
til svefnlyfjanna sem Genevieve
hafði sett í matinn hans, og ekki
sparað.
Ósyndur á kafi í vatni
Þegar þau komu að vatninu fór
Genevieve út úr bílnum og lét hann
síðan renna niður aflíðandi vatns-
bakkann. Bíllinn rann út í vatnið og
byrjaði að sökkva. Jean-Paul komst
til meðvitundar, barðist um og
öskraði: „Ég kann ekki að synda.“
Það voru engin ný sannindi fyrir
Genevieve sem stóð á bakkanum
og hélt fyrir eyrun á meðan bíllinn
hvarf undir vatnsyfirborðið.
Síðar sagðist hún hafa reynt
að stöðva bílinn en það hefði ekki
verið gerlegt. Jean-Paul tókst með
harmkvælum að opna einar dyr, en
var ósyndur og því fór sem fór.
Sakleysið uppmálað
Að öllu þessu loknu gekk Gene-
vieve heim, hringdi í bróður Jean-
Paul, Jean-Marc, og spurði: „Hef-
ur þú séð Jean-Paul?“ Genevieve
sagði Jean-Marc að Jean-Paul
hefði ætlað að kíkja til hans og væri
ekki kominn til baka. „Ég hef smá
áhyggjur. Ég vona að hann hafi ekki
gert eitthvað heimskulegt,“ bætti
hún sakleysið uppmálað.
Jean-Marc kom af fjöllum. „Eitt-
hvað heimskulegt?“ sagði hann og
bætti við: „Hvað í ósköpunum ætti
hann að gera heimskulegt?“
Sannleikurinn sagður
Jean-Marc rauk út í bíl og ók þá
leið sem bróðir hans hefði ekið ef
hann ætlaði að heimsækja hann.
En það var ekki tangur né tetur að
sjá af hvorki bílnum né Jean-Paul.
Næsta dag fór Genevieve á lög-
reglustöðina og sagði að Jean-Paul
hefði ekki skilað sér heim. Síðan
fór hún til Jean-Marc og virtist í
öngum sínum vegna óvissunnar.
Þaðan fór hún til systur sinnar og
hugðist dvelja þar.
Um nætur bylti hún sér þar til
systir hennar fékk nóg og spurði
hví hún tæki ekki eitthvað af svefn-
töflunum. „Ég er búin með þær,“
svaraði Genevieve. Síðan brotnaði
Genevieve niður og sagði systur
sinni alla sólarsöguna.
Sögulok
Að áeggjan systur sinnar fór
Genevieve, daginn eftir, 2. maí, til
lögreglunnar og játaði allt og síðar
þann dag voru bifreiðin og líkið af
Jean-Paul dregin upp úr vatninu.
Þann 4. maí var Genevieve
ákærð fyrir morð og þegar hún
var spurð um ástæðu verknað-
arins muldraði hún eitthvað um
bræðisköst Jean-Paul og að hann
hefði ekki kunnað við langhund-
inn hennar.
Árið 2011 fékk Genevieve
Bertry tuttugu ára dóm fyrir morð
af yfirlögðu ráði. n
SAKAMÁL 415. apríl 2019
var lengur við unað og Byran gert að leita aðstoðar
geðlæknis og sækja námskeið í reiðistjórnun.
Árið 1999 ákvað Xerox að kasta fyrir róða týpu
ljósritunarvélar sem Byran hafði að mestu séð um
viðgerðir á og skipta henni út fyrir nýja útgáfu. Það
hugnaðist Byran illa og harðneitaði að tileinka sér
þekkingu á þeirri nýju.
Að morgni 2. nóvember mætti Byran til vinnu vopn-
aður níu millimetra Glock-skammbyssu og skaut til
bana yfirmann sinn og sex samstarfsmenn.
Hann fékk lífstíðardóm 8. ágúst árið 2000.
MATSÖLUSTAÐUR
SKEMMTISTAÐUR
RÁÐSTEFNUR
ÁRSHÁTÍÐIR
VEISLUR
RÁIN ER ALHLIÐA VEITINGAHÚS
Í REYKJANESBÆJARhjarta
ÓSYNDI FRAKKINN OG LISTAKOKKURINN
n Jean-Paul elskaði góðan mat n Genevieve var frábær kokkur n Um tíma lék allt í lyndi n Allt tekur enda„Ég hef
smá
áhyggjur.
Ég vona að
hann hafi ekki
gert eitthvað
heimskulegt.
Húsið í Chevinay
Hér bjuggu Jean-Paul
og Genevieve.
„Að sögn fór því fjarri
að Genevieve væri sem
sólargeisli, en hún var einum
ótvíræðum kosti búin – hún
kunni að elda frábæran mat.