Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Page 42
42 FÓKUS 5. apríl 2019
Munur á fjárveitingum
til sinfóníuhljómsveita
óeðlilega mikill
Þ
að hefur verið mikil gróska
í starfsemi Sinfóníu
hljómsveitar Norður
lands (SN) en árið 2018
var metár varðandi fjölda, stærð
og gæði viðburða frá upphafi. Ef
litið er á fjölda viðburða þá tók
hljómsveitin þátt í 27 verkefnum
á árinu en til samanburðar lék
hljómsveitin 4–7 sinnum á ári
fyrir fáum árum. Verkefnin hafa að
sama skapi orðið fjölbreyttari.
Styrkurinn dugar til fjögurra
tónleika
„Það hefur verið sérlega ánægju
legt að sjá hvernig kvikmynda
tónlistarverkefninu Sinfonia
Nord hefur vaxið fiskur um
hrygg. Allt árið 2018 tók hljóm
sveitin þannig þátt í verkefnum
sem tengjast upptökum á tón
list fyrir kvikmyndir með stuttum
hléum,“ segir Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson, framkvæmdastjóri
Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands/ SinfoniuNord,
en Þorvaldur kallar eftir meiri
stuðningi við starfsemi SN.
Hann segir SN fá styrk í gegnum
menningarsamning Akureyrar
og ríkisins, 50 milljónir króna
árlega. „Til samanburðar voru
framlög ríkisins til Sinfóníu
hljómsveitar Íslands hækkuð um
yfir 230 milljónir króna árið 2018.
Þessar 50 milljónir króna til SN
duga til að halda ferna meðalstóra
sinfóníutónleika í Hofi. Engin
hljómsveit getur þroskast og
dafnað með því að koma aðeins
fram fjórum sinnum á ári.“
Netflix, BBC og Sony
En hvernig gat hljómsveitin þá
tekið þátt í 27 viðburðum?
„Svarið er einfalt,“ segir Þor
valdur. „Með því að sækja fram
og finna hljómsveitinni sérstöðu.
Í því sambandi hjálpar til að að
stæður í Hofi eru fullkomnar til að
hljóðrita tónlist fyrir kvikmynd
ir. Án mikils undirbúnings var
þannig hægt að halda á þá braut
að hljóðrita tónlist við hágæða er
lendar sem inn lendar kvikmyndir.
Eins og hendi væri veifað var búið
að hljóðrita tónlist inn á hátt í 20
titla fyrir fyrirtæki eins og Netflix,
BBC og Sony. Samhliða þessu fór
að fréttast að á Íslandi væri sin
fóníuhljómsveit sem væri að bjóða
gæða þjónustu til viðburðahaldara
sem varð til þess að SN tekur
núna reglulega þátt í nokkrum
af stærstu sinfónísku viðburðum
hvers árs á Íslandi og leikur með
ýmsum listamönnum sem sækj
ast eftir sinfónískum hljóm í við
burði sína. Þessi sókn er það sem
hefur gert SN að því sem hún er í
dag. Lúsiðin og vel þekkt stærð í
tónlistarflóru Íslands.“
Munurinn einn og hálfur
milljarður
Þorvaldur segir dæmið þó ekki
ganga upp til lengdar. Á launa
skrá SN sé aðeins einn starfs
maður. Þessi gróska geti því fjarað
út með persónum og leikendum
sem geta brunnið út við nú
verandi aðstæður. Til þurfi að
koma næring í formi aukinna fjár
framlaga. Á móti kemur að lista
menn fái starf og greiði opinber
gjöld til hins opinbera og erlend
ur gjaldeyrir kemur einnig á móti.
Fjárframlög séu því meira til hins
opinbera en nemur þeim styrkjum
sem til þarf. Hann segir SN ekki í
samkeppni við Sinfóníuhljómsveit
Íslands enda sé þar ólíku saman
að jafna. „Munurinn á fram
lögum til sveitanna er rúmlega
einn og hálfur milljarður. Þessi
munur er óeðlilega mikill mið
að við markaðssvæði hljómsveit
anna og mikilvægi þeirra fyrir íbúa
svæðanna sem þær þjóna. Segja
má að á markaðssvæði tónleika
SÍ í Hörpu búi um 250.000 manns
á móti um 30.000 manns að baki
SN í Hofi. Og þessi íbúar eru síst
latari við að mæta á viðburði en
íbúar höfuðborgarsvæðisins. Í því
ljósi er þessi munur á framlögum í
raun sláandi.“
Menningarleg viðbót fyrir
samfélagið
Hann segir áheyrendur og lista
menn á Íslandi hafa kveðið upp
sinn dóm varðandi tilverurétt SN
með því að mæta á viðburðina
annars vegar og hins vegar að
svara kallinu þegar verkefnin kalla
á mannskap til vinnu. Tilvera SN sé
menningarleg viðbót fyrir samfé
lagið allt sem búi til auknar tekjur
fyrir hið opinbera. „Af sjálfsprottn
um verkefnum SN höfðu hljóð
færaleikarar verkefnisins, árið
2018, tekjur sem námu 60.000.000
krónur og þar af renna um það
bil 22.200.000 krónur í opinber
gjöld. Þá á eftir að telja einleikara
og einsöngvara, salaleigu, tækni
fólk, flutninga, veitingar, leyfis
gjöld, ferðalög og gistingu sem
allt býr til vinnu og skilar tekjum
til ríkissjóðs. Þetta hefur líka áhrif
á straum ferðamanna til Norður
lands.“
„Af styrktum verkefnum SN
höfðu hljóðfæraleikararnir í
tekjur 15.000.000 krónur. Þar af
fara um 4.000.000 krónur í ríkis
sjóð. Þetta er hugvekjandi. En sýn
ir líka að það þarf að hlúa betur
að þessari grósku. Hljómsveitinni
á að vera kleift að sinna skyldum
sínum sem kyndilberi sinfónískrar
tónlistar á landsbyggðinni. Hún
þarf að geta æft sig reglulega og
haldið fasta tónleika einu sinni í
mánuði yfir vetrartímann,“ seg
ir Þorvaldur Bjarni og bætir við
að þetta muni styrkja hljóðfæra
leikarana verulega í að standa
undir aukinni eftirspurn í
þjónustuverkefnum. „Verkefni
sem búa til nýja atvinnumöguleika
fyrir þá sem nú leggja allt sitt undir
til að verða atvinnutónlistarmenn
í tónlistarskólum landsins. SN/
SinfoniaNord stuðlar að þessu í
auknum mæli á hverju ári. Hlúum
að þessari sjálfsprottnu grósku á
Akureyri.“
Á fund stórlaxanna í
Los Angeles
Nú eru ný afstaðnir hátíðar
tónleikar þar sem
Sinfóníu hljómsveit Norðurlands
fagnaði 25 ára afmæli sínu og
Lilja Alfreðsdóttir, mennta og
menningarmálaráðherra, opnaði
formlega kvikmyndatónlistar
verkefnið og vefsíðuna
SinfoniaNord.is. Næstu stóru tón
leikar eru svo í dymbil vikunni
þegar hin heimsfræga AnnaMaria
Helsing stjórnar hljómsveitinni,
ásamt Söngsveitinni Fílharmóníu
og Kammerkór Norðurlands,
þegar flutt verða tvö af mögnuð
ustu verkum Mozart. Norðlenska
vonarstjarnan í klassískri tónlist,
Alexander Edelstein, spilar ein
leik en ein söngvarar eru Garðar
Thór Cortes, Ágúst Ólafsson, Hel
ena Guðlaug Bjarnadóttir og
Hanna Dóra Sturludóttir. Tón
leikarnir fara fram á skírdag í Hofi
en í Langholtskirkju á föstudaginn
langa. Áður en að þeim ævin
týrum kemur ætlar Þorvaldur til
Bandaríkjanna þar sem honum
var boðið á hátíðarkvöldverð
með áhrifafólki innan kvik
mynda og tónlistariðnaðarins í
draumaverksmiðjunni sjálfri, Los
Angeles. Boðið barst honum eftir
afmælistónleikana en boðskortið
er frá ræðismannsskrifstofunni í
New York um að mæta á opnun
Record in Iceland á vegum Iceland
Music and Film in Iceland. „Þessi
heimsókn til Los Angeles mun
vonandi skila sér í að tilvist Sin
foniaNord, Hofs og Akureyrar sem
frábærs staðar til að hljóðrita kvik
myndatónlist verði kunn þeim
sem ákveða hvar verkefnin eru
tekin upp. Ég vonast til að kynnast
framleiðendum og tónskáldum
sem nýta sér að jafnaði svona
þjónustu. Og að endingu óska ég
þess að heimsóknin skili nýjum
tækifærum fyrir hljóðfæraleikara
Sinfóníuhljómsveitar Norður
lands,“ segir Þorvaldur Bjarni sem
er þar með rokinn af stað til Los
Angeles. n
Þorvaldur Bjarni er á leið til Los Angeles til fundar
með áhrifafólki í kvikmynda- og tónlistarbransanum
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Hátíðartónleikar
Fyrirmyndaraðstaða:
Þorvaldur Bjarni segir sérstöðu SN felast
í frábærri aðstöðu til að hljóðrita tónlist
fyrir kvikmyndir. SN hefur tekið upp tónlist
fyrir Netflix, BBC og Sony.
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
Sérsmíðum eftir
óskum hvers og eins
Gylfaflöt 6-8 / S. 587 6688 / fanntofell.is