Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Qupperneq 44
44 FÓKUS 5. apríl 2019
S
ara Bjarnveig Bjarnadóttir er
þrjátíu og tveggja ára göm
ul og hefur hún verið búsett
ásamt manni sínum í Nor
egi í tvö ár. Hann starfar sem send
ill fyrir bakarí en hún er um þess
ar mundir á öryrkjabótum vegna
veikinda sem hún hefur glímt við
lengi. Frá því að Sara man eftir
sér hefur hún alltaf verið á þeirri
skoðun að barneignir séu ekki fyr
ir hana og hefur hún ítrekað upp
lifað afskiptasemi frá fólki sem
segir hana eiga eftir að iðrast þeirr
ar ákvörðunar. Sara er hins vegar
harðákveðin í að verða ekki móðir
og hefur jafnvel velt fyrir sér ófrjó
semisaðgerð. Fyrir fimm árum
greindist Sara með fjölblöðru
eggjastokkaheilkenni, PCOS, sem
gerir að verkum að ef hún hygði á
barneignir gæti það reynst henni
erfitt.
„Ég er með PCOS þannig að þótt
ég vildi verða ólétt þá yrði það mjög
erfitt fyrir mig. En ég hef aldrei vilj
að börn. Mamma sagði mér að frá
því að þegar ég var krakki sjálf þá
hafi ég alltaf sagt að ég ætlaði ekki
að verða mamma. Mér finnst bara
fínt að vera þessi skrítna frænka
sem fær lánuð börn sem ég get svo
skilað,“ segir Sara í samtali við DV.
„Að vera mamma er allt ann
að og ég held að ef ég þyrfti að
vera móðir dagsdaglega þá yrði ég
ekki það góð í því hlutverki, vegna
þess að til þess að ég geti funker
að í lífinu þá þarf ég ákveðið mik
inn svefn og hreyfingu. Ég er með
kvíða, þunglyndi, MS, PCOS og
vefjagigt og ég þarf ákveðna hluti
til þess að geta bara verið ég. Ég
veit líka sjálf hvernig það er að al
ast upp með foreldrum sem eru
með krónísk veikindi og ég myndi
ekki vilja leggja það á barn. Mér
fannst mjög erfitt að horfa upp á
mömmu mína vera svona mikið
veika. Alltaf að heyra að hún væri
veik og að fara til læknis, alltaf að
heyra setninguna: „Mamma þarf
að leggja sig því að mamma er svo
veik, það má ekki vera með mik
il læti.“ En hún fékk berklabólgu
þegar hún var barn og lungun
hennar eru afar slæm. Svo er hún
með vefjagigt, hjartasjúkdóm og
ýmislegt fleira sem ég get ekki einu
sinni talið upp.“
Elskar börn en hefur aldrei
viljað vera mamma
Sara segir að veikindi móð
ur hennar og erfiðleika í kring
um þau hafi litað æsku hennar og
henni fundist það erfitt.
„Ekki misskilja mig, ég elska
börn og hef mjög gaman af þeim.
En ég hef aldrei upplifað þá tilf
inningu að vilja verða mamma.
Ég á þó stjúpdóttur sem er ellefu
ára og hún kemur til okkar og mér
finnst það gott og þykir rosalega
vænt um hana.“
Stjúpdóttir Söru er búsett á Ís
landi en kemur reglulega til þeirra
í nokkrar vikur í senn. Þegar Sara
fékk greiningu á sjúkdómnum
PCOS upplifði hún létti, en ekki
erfiðleika líkt og margar konur í
hennar sporum.
„Þetta var léttir fyrir mig, ekki
vegna móðurhlutverksins heldur
vegna þess að þá gat ég loksins
fengið lyf sem gátu minnkað ein
kennin. Ég fékk aftur á móti að
heyra það frá kvensjúkdómalækn
inum mínum að hann vildi helst
ekki setja mig á lyf af því að ég var
ekki að reyna að verða ólétt. Þá
fengi ég þrjú egglos á ári í stað
inn fyrir tvö og það gæti því auk
ið líkurnar á getnaði. En ég er á
plástri, hormónalyfjum sem koma
í veg fyrir getnað, og það hefur því
ekki áhrif á það. Loksins þegar ég
fékk lyf fyrir þremur árum þá fóru
einkenni hjá mér að minnka gíf
urlega. Áður en ég fékk lyf þá hafði
ég rosalega sársaukafullar blæð
ingar og þegar blöðrur sprungu
þá var það svo sárt. Síðan var ég
útþanin og með rosalega sykur
þörf. Ég vaknaði stundum kannski
klukkan tvö að nóttu og varð að
fá mér gosglas eða súkkulaði. Um
leið og ég fékk lyfin þá hætti það
og á tveimur árum hef ég misst 25
kíló bara út af lyfjunum og vegna
þess að eftir að við fluttum út þá
höfum við haft efni á því að kaupa
hollan mat. Það er mikill munur á
verði á Íslandi og hér í Noregi. Svo
er líka mikill munur á heilbrigðis
kerfinu hér og á Íslandi.“
Ekki alvöru mæður ef þær
ættleiða
Sara segist hafa upplifað mikla af
skiptasemi frá karlmönnum vegna
„Ég hef aldrei upplifað
þá tilfinningu að vilja
verða mamma“
n Sara Bjarnveig vill ekki eignast börn n Þreytt á afskiptasemi og forvitni Íslendinga
„Eins og maður
segðist ætla út
að lóga hvolpum
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@dv.is
Sara Bjarn-
veig Telur að
móðurhlut-
verkið henti
henni illa.
Sara Bjarnveig
ásamt manni
sínum
Framhald á síðu 46