Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 46
46 FÓKUS 5. apríl 2019
þeirrar ákvörðunar hennar að
eignast ekki börn. Það hafi komið
henni mest á óvart.
„Þegar ég var nítján ára fékk ég
að heyra það frá fyrri yfirmanni að
ég ætti eftir að sjá eftir þessu. Ég
þorði nú ekki á þessum aldri að
segja honum að halda kjafti en …
Svo eru það líka konur sem eiga
börn og finnst það æðislegt að vera
mömmur, ásamt eldri konum, frá
þeirri tíð þegar það var í rauninni
bara skylda að vera mamma, sem
skipta sér af þessu. En ég er búin
að kynnast konum á mínum aldri
sem eru á sama róli og ég og vilja
ekki börn. Svo þekki ég líka kon-
ur sem vilja ekki ganga í gegnum
meðgöngu en langar að ættleiða.
Þær fá jafnvel að heyra að þá séu
þær ekki alvöru mömmur, en það
finnst mér svolítið fáránlegt.“
Sara segir fjölskyldu sína aldrei
hafa ýtt á hana í átt að barneignum
enda viti þau hversu þrjósk hún sé.
„Mamma sagði að það þýddi
ekkert að reyna að breyta mér. Ég
hef einu sinni upplifað þá tilfinn-
ingu að ég gæti séð eftir þessu. En
um leið og ég hugsaði betur út í
það þá hvarf hún. Maðurinn minn
er sammála mér og hann vissi al-
veg um þetta þegar við byrjuðum
saman, svo hann vissi alveg hvað
hann var að fara út í. Hann hef-
ur aldrei reynt að fá mig til þess
að skipta um skoðun. Ég hef líka
oft heyrt að þessi ákvörðun sé
ósanngjörn gagnvart manninum
mínum, vegna þess að ég sé ekki
að gefa honum tækifæri til þess
að verða pabbi en hann er það nú
þegar.“
Íslendingar forvitnir
og afskiptasamir
Sara segist vera orðin þreytt á því
að fólk skipti sér af ákvörðunum
annarra og að mikill munur sé á
Íslendingum og Norðmönnum
þegar kemur að þessu máli.
„Ef fólk er ekki að reyna að
betrumbæta líf barns, eins og til
dæmis að uppræta vanrækslu eða
ofbeldi, þá á fólk ekki að skipta
sér af. Þegar ég bjó á Íslandi þá
gengu sögur um mig þess efn-
is að ég væri ólétt en það var bara
út af PCOS, en áður en ég fékk lyf-
in þá var ég svo þanin á maganum
og leit út fyrir að vera ólétt þannig
að ég þurfti alltaf að segja fólki að
ég væri ekki ólétt og að ég myndi
aldrei verða ólétt,“ segir Sara.
„Það var alltaf eins og ég væri
að gera eitthvað rangt fyrir þeirra
hönd þegar
ég sagð-
ist ekki ætla að
eignast börn. Þá
var eins og mað-
ur segðist ætla út að lóga hvolp-
um, þetta var svona álíka sjokker-
andi fyrir fólk að heyra. Þá sagði ég
bara fólki að ég hefði ekki áhuga
á því að verða ólétt og í kjölfar-
ið fékk ég mýtuna um að ég ætti
eftir að sjá eftir því eða skipta um
skoðun. Ég hef reyndar heyrt það
frá einni konu sem er að nálgast
níræðisaldurinn að henni finnist
þetta bara fín ákvörðun hjá mér,
hún þekkti fjölmargar konur sem
eignuðust börn án þess að vilja
það og að það hefði ekki komið
vel út fyrir börnin. En eins og ein
vinkona mín sagði: „Það er hell-
ingur af börnum í heiminum sem
enginn vill. Er ekki betra að reyna
að betrumbæta þeirra líf heldur en
að búa til nýtt líf?“ Hérna úti í Nor-
egi er ekki mikið talað um þetta,
hérna er frekar ýtt á eftir okkur að
gifta okkur og kaupa hús. Það er
aðeins öðruvísi upplifun og þegar
ég hef verið spurð hvort ég ætti
börn og hef þá sagt fólki að ég ætli
ekki að eignast börn þá er það bara
ekki rætt meira. Fólk á Íslandi fer
meira að spyrja út í hluti, en Ís-
lendingar eru líka svolítið þekktir
fyrir að vera forvitin þjóð, þeir fara
meira út í persónulegar spurn-
ingar.“
Margir halda að hún þoli ekki
börn
Sara hefur velt fyrir sér þeim
möguleika að láta taka sig úr sam-
bandi, en hefur hingað til ekki
látið verða af því. Hún viðurkenn-
ir að móðir hennar hafi annað
slagið nefnt það við hana að hún
vildi eignast barnabarn frá henni,
en segist aldrei hafa upplifað
þrýsting.
„Eitt skiptið þá kom ég heim
með hvolp og stillti honum fyrir
framan pabba og sagði honum að
þetta væri eina barnabarnið sem
hann myndi fá frá mér og honum
fannst það bara fyndið og var bara
sáttur við það. En allar systur mín-
ar hafa verið duglegar að fjölga sér
og þær langar að vera mömmur,
það er allt annað. Við maðurinn
minn höfum aftur á móti áhuga á
því í framtíðinni að gerast svona
stuðningsfjölskylda, sem er al-
gengt hér í Noregi. Þá prófar fólk
oft að fóstra barn og sjá hvort það
nái að blómstra í þeirra fjölskyldu.
Ef það gerist þá ættleiða þau jafn-
vel barnið. En ég myndi bara vilja
halda mig við svona stuðning
vegna þess að ég er með MS og ég
get því dottið niður í orku og þá
koma dagar þar sem ég get ekki
gert neitt. Það yrði þá erfitt fyrir
barnið að horfa upp á. Ég er orðin
virkilega þreytt á því að heyra það
frá fólki að ég eigi eftir að sjá eftir
þessu eða skipta um skoðun. Svo
er ekki samasemmerki á milli
þess að vilja ekki eignast börn og
að þola ekki börn. Það eru margir
sem halda að ég vilji ekki barn af
því að ég þoli börn ekki, en það
er algjört rugl. Í dag er ég að læra
skólabókasafnsfræði svo ég geti
unnið með börnum.“ n
PIZZERIA
DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
Dropi af
náttúrunni
Nýjar bragðtegundir með lífrænum kjarnaolíum
úr ferskri grænmyntu, engifer og fennil
Kaldunnin þorsklifrarolía
„Þegar kemur að
næringu og heilsu vel
ég aðeins það besta”
Andri Rúnar Bjarnason
Knattspyrnumaður Helsingborg
Búa í Noregi Sátt við sína ákvörðun.„Hann
vissi
alveg hvað
hann var að
fara út í