Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Page 48
5. apríl 2019
14. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Hún er nú
vænsta
skinn!
Hinsta ósk Gulla Falk orðin að veruleika
G
uðlaugur Auðunn Falk, gítarleikari og
tónlistarmaður, lést 29. júní 2017 eftir
erfiða baráttu við krabbamein, hann
var 57 ára. Gulli var þekktur gítarleik-
ari og lagahöfundur og hafði starfað með
fjölda tónlistarmanna um árabil.
Gulli hafði unnið að diskinum Kaffi Ole
fyrir andlát sitt og var það hans hinsta ósk
að diskurinn yrði kláraður og gefinn út eftir
andlát hans. Og nú er diskurinn orðinn að
veruleika, hann inniheldur 13 lög eftir Gulla
með textum Gísla Brynjars.
„Geggjað efni og með því betra sem
pabbi hefur samið, blanda af blúsrokki og
melódískum lögum þar sem kassagítarinn
nýtur sín. Plata sem hann vann að fram á
síðustu stundu, hans eina ósk var að platan
yrði gefin út. Við
erum öll mjög
stolt af afrekinu
og ég veit að það
er hann líka,“
segir Árni Hrafn
Falk, sonur Gulla.
Að disknum
kemur fjöldinn
allur af tónlistar-
mönnum, lista-
mönnum og
fleirum. „Við ættingjar Gulla viljum þakka
þeim fyrir þeirra framlag til að gera diskinn
að veruleika,“ segir Árni Hrafn, en diskinn
má kaupa hjá honum.
Skin í
íslenskri
hönnun
Hörpu
B
reska rokksveitin Skunk
Anansie var vinsæl hér
á landi á tíunda áratug
síðustu aldar. Hljóm-
sveitin heimsótti landann
tvisvar árið 1997 og hélt tón-
leika í bæði skiptin. Í seinni
heimsókninni, í september,
heimsótti hljómsveitin
höfuðstöðvar DV, sem þá var
í Þverholti og spilaði á þaki
hússins. Herlegheitunum var
sjónvarpað á Stöð 2 og síðan
sat hljómsveitin fyrir svörum í
beinni línu hjá DV.Þetta er þó
ekki í eina skiptið sem söng-
konan Skin hefur látið sér líka
við Ísland, fyrr á árinu sat hún
fyrir í DIVA, bresku tímariti, en
markhópur þess er lesbíur og
tvíkynhneigðar konur.
Þar klæðist hún jakka
frá íslenska merk-
inu MYRKA sem
fatahönnuðurinn
Harpa Einarsdóttir
á heiðurinn af.
Skeifan 6 / Harpa / Kringlan /Laugavegur 70 / 5687733 / www.epal.is
Tilboð*
Montis Axel sófar*
HÖNNUN: GIJS PAPAVOINE 2005
* Tilboðin gilda frá 1. apríl - 1. sept 2019 · Leður Rancho: svart eða brúnt
3,5 og 4 sæta
Verð frá:
685.000,-
É
g er nýbúin að klára að
horfa á uppistand með
Jimmy Carr, „The best
of ultimate gold greatest
hits“ á Netflix og fannst það
mjög gott, enda er Jimmy Carr
í uppáhaldi en þetta er alls
ekki fyrir viðkvæma. Hann fer
alla leið í að reyna að sjokkera.
Síðan var ég að klára myndina
Highwaymen, með Kevin
Costner og Woody Harrelson,
sem fjallar um mennina sem
gómuðu Bonnie og Clyde,
mjög góð mynd sem ég mæli
með. Þættirnir hans Loga eru
frábærir, gott spjall við áhuga-
vert fólk eins og til dæmis Ólaf
Darra og Lindu Pé. Síðan er ég
algjörlega „hooked“ á Rupauls
Drag Race, það er „my guilty
pleasure“ að horfa á.“
Hvað ert
þú að
horfa á?
Kristín Sif
Björgvins,
útvarpskona á K100: