Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Qupperneq 6
6 7. júní 2019FRÉTTIR NÆSTI KAFLI HEFST HJÁ OKKUR LÆKJARSMÁRI 4, 201 KÓPAVOGUR 55.900.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Fjölbýlishús 109 M2 4 SÆVIÐARSUND 29, 104 REYKJAVÍK 43.900.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Fjölbýlishús 86 M2 3 LANGHOLTSVEGUR 19, 104 REYKJAVÍK 42.900.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Fjölbýli 97 M2 4 Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800 www.gimli.is BJÓÐUM UPPÁ FRÍTT SÖLUVERÐMAT Guðrún berst við krabbamein í Bandaríkjunum „Þetta er hennar erfiðasti tími S öfnun fer fram á GoFundMe fyrir Guðrúnu Sævarsdóttur Fabre, 52 ára gamla íslenska konu, sem er fædd og upp- alin í Keflavík, en hefur búið að mestu leyti í Bandaríkjunum. Guðrún Sævarsdóttir er ein- stæð móðir þriggja barna, Oli- viu Grace, 9 ára, Jonah, 15 ára, og Caleb, 17 ára. Barnsfaðir hennar, Sheffie, býr á öðru heimili kem- ur fram í texta söfnunarinnar á GoFundMe, en eigi að síður vinna hann og Guðrún saman með vel- ferð fjölskyldunnar að leiðarljósi, fjárhagslega, líkamlega, tilfinn- ingalega og andlega. Hann segir: „Þetta er hennar erfiðasti tími.“ Í mars 2011 veiktist Guðrún skyndilega vegna sjaldgæfs æxlis sem hafði lagst á sjóntaugar henn- ar og augu, og var meinið fjarlægt að hluta með neyðaraðgerð. Þó að veikindin væru slæm, var meinið viðráðanlegt. Árið 2016 tók meinið sig upp aftur og var aftur fjarlægt með skurðaðgerð, æxlið sem var fjar- lægt var greint sem krabbamein. Mánuði síðar var Guðrúnu vísað til meðferðar hjá Bascom Palmer Eye Institute í Miami í Florida. Þar var úrskurðað að meinið væri enn að vaxa og Guðrún hefði misst sjón á öðru auga. Meðferð sem ráðlögð var fólst í að fjarlægja, erf- ið en nauðsynleg meðferð. „Guðrún eins og hún hefur gert með allar áskoranir lífsins áður, gekkst undir aðgerðina, á sama tíma og hún hugsaði um fjölskyldu sína af miklum móðurkærleik. Hún hélt áfram að sinna fjölskyldu sinni og störfum sínum til að geta séð fyrir fjölskyldu sinni.“ Eins og algengt er um aðgerðir af þessum toga, þá eru allar rann- sóknir og meðferðir bæði kostn- aðarsamar og hafa áhrif á daglegt líf, þrátt fyrir að þær séu nauðsyn- legar. Í nóvember 2017 sýndu myndatökur tvo dökka bleti á lungum Guðrúnar. Sýni leiddu í ljós að blóðflagnafæð (e. Metasta- tic melanoma) hafði þróast og voru Guðrúnu gefnar litlar líkur á bata. Guðrún gekkst undir fjölda ónæmismeðferða, sem gerðu hana mjög veika og dvaldi hún á spítala í lengri tíma. Vann hún eins mikið og hún gat, enda fyrirvinna sinnar fjölskyldu. Meinvörp fundust einnig í lung- um og lifur og ónæmismeðferð hætti að vera raunhæfur kostur. Guðrún leitaði nýrra meðferða og var nýlega samþykkt í rannsókn í Pittsburg í Pennsylvaníu. Þar er hún nýbyrjuð í nýrri og róttækri krabbameinslyfjameðferð, sem er talin besta vonin til lækningar. „Fjárhagsáhyggjur eru miklar og þarfir fjölskyldunnar eru Guðrúnu mjög mikilvægar. Hún hefur þurft að ferðast mikið meðan meðferð hennar hefur farið fram og það er augljóst af hverju við erum að biðja um fjárhagslegan stuðning við ótrúlega fjölskyldu hennar. Þeir sem þekkja Guðrúnu vel vita af ef hún getur ekki unnið þá fær hún engar tekjur. Við biðjum ykkur um að biðja fyrir bata Guðrúnar, og biðja fyrir börnunum hennar og föður þeirra. Þakkir til þeirra sem þegar eru að biðja fyrir henni, bata hennar og fyrir fjölskyldu hennar. Fyrirfram þakkir til allra þeirra sem geta látið eitthvað af hendi rakna. Guðrún er ykkur svo þakklát!“ Söfnunina má finna inn á Gofundme.com: Miracles for Gunna. n Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.