Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Blaðsíða 37
KYNNING Það þarf ekki að segja okkur Íslendingum hversu hollt lýsi er og stútfullt af vítamínum og omega fitusýrum. Þetta höfum við vitað frá blautu barnsbeini. Hins vegar kemur það mörgum á óvart að framleiðsluhættir á lýsisolíu hafa breyst töluvert frá því forfeður okkar hófu fyrst að nýta þorsklifur. Olían var unnin vegna þeirrar ómetanlegu upp- sprettu A- og D-vítamíns sem lýsi er en einnig sem olía fyrir lýsislampa. Hugmynd að framleiðslu eftir alda- gömlum aðferðum Stöllurnar Anna Sigríður Jörunds- dóttir, Birgitta Baldursdóttir og Sigrún Sigurðardóttir kynntust í MBA-námi í Háskóla Íslands. Hug- myndina að lýsisframleiðslu tóku þær sem frumkvöðlaverkefni í náminu og eftir að námi lauk fóru þær af stað og kynntu sér framleiðslu á lýsi í heim- inum. Lýsi var alla jafna framleitt úr þorsklifur þar sem heilsubætandi olíur lifrarinnar voru einangraðar. Þannig er það ekki í dag því al- gengt er að notast við búklýsi úr ýmsum fisktegundum. Eftir það varð ekki aftur snúið og stofnuðu þær fyrirtækið True Westfjords árið 2012, þar sem lýsi er framleitt á uppruna- legri máta en venja var. „Við sáum að framleiðslan á lýsi var komin svolítið langt frá því sem tíðkaðist hér áður fyrr og langaði að bjóða upp á vöru þar sem hugmyndin að framleiðslunni var byggð á göml- um aðferðum.“ Lýsið eins náttúrulegt og hægt er True Westfjords er staðsett í Bol- ungavík og lifrin sem unnið er með kemur úr þorski (Gadus morhua) og er það eingöngu sú lifur sem notuð er við framleiðslu Dropalýsis. Lifrin er tekin beint af dagróðrabátum Bol- víkinga og hráefnið því eins ferskt og það getur orðið. True Westfjords er meðlimur í IRF (Iceland Responsible Fisheries) og er hráefnið keypt beint af fiskmarkaði og rekjanlegt beint á bát. Þegar lifrin kemur í vinnslu fer hún í kaldskiljun og kaldhreinsun þar sem mesta fitan er skilin frá. Við vinnslu er hráefnið unnið við lágan hita og aldrei meiri en 42°C. Við þessa aðferð varðveitist ferskleiki lýsisins auk mikilvægra næringarefna líkt og A- og D-vítamíns og annarra dýr- mætra fitusýra. Lýsið verður því eins náttúrulegt og hægt er. Olían er svo hreinsuð af þrávirkum efnum sam- kvæmt evrópskum reglum. Þar sem olían er kaldpressuð við lágt hitastig telst hún því til jómfrúarolía. „Þess má geta að Dropalýsi er ekki vítamín- bætt, enda stútfullt af vítamínum nú þegar. Þó getur vítamínmagn sveifl- ast á milli árstíða en þannig er það í náttúrunni með lifrina í þorskinum. Þess vegna er stuðst við meðaltals- magn vítamína á umbúðum vörunn- ar. Litur og bragð getur breyst á olíu- nni milli framleiðslu allt eftir því hvaða æti þorskurinn kemst í,“ segja þær. Gelatínið sem notað er í lýsishylkin er einnig unnið úr fiski og er varan því 100% fiskafurð. Flestir framleiðendur nota gelatín unnið úr nauti eða svíni. Nældu þér í flösku af hreinni nátt- úruafurð „Framleiðsla Dropa ræðst af eftir- spurn og sitjum við aldrei á stórum lager enda er þetta ferskvara. Okkar stærstu markaðir í dag eru Bandarík- in og Bretland. Einnig seljum við m.a til Ástralíu, Hong Kong og Hollands, og auk þess á heimasíðu okkar, dropi. is.“ Á Íslandi fæst Dropi í betri apótek- um, heilsubúðum, einstaka matvöru- verslunum og Fríhöfninni. Nýjar tegundir á markað Nýlega bættust við þrjár spennandi vörutegundir á markað. Þetta er Dropalýsi með bragðefnum úr líf- rænum kjarnaolíum sem er unnið er úr fersku engifer, fenniku og ferskri grænmyntu. Fennil og engifer fást í 220 ml. flöskum. Fennika ber milt eftirbrað af lakkrís og engifer ber milt sítrus eftirbragð. Grænmynta eða spearmint fæst í hylkjum í 60 stk. pakkningum og er hugsað fyrir neyt- endur sem t.d. eru með bakflæði og finnst óþægilegt þegar fiskikeimurinn kemur upp. „Við höfum fengið hrós fyrir þessar bragðtegundir. Varan er sérstök og því vildum við hafa sér- stakar bragðtegundir fyrir þá aðila sem ekki vilja fiskibragðið. Við viljum ekki gera eins og allir hinir,“ segja þær að lokum. Hefur þú smakkað Dropa? Nánari upplýsingar má nálgast á dropi.is Hafnargata 76b, 415 Bolungarvík Netpóstur: truewest@truewest.is n DROPI FRÁ TRUE WESTFJORDS: Kaldunnið vestfirskt þorskalýsi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.