Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Blaðsíða 27
Sértæk þjónusta 7. júní 2019 KYNNINGARBLAÐ
Þegar kemur að hönnun rýmis skiptir miklu máli að velja rétta lýsingu, þar sem lýsing
getur gert mjög mikið til að skapa
rétta stemmningu. Lýsing & Hönnun
er lítið fjölskyldufyrirtæki sem
kappkostar að veita persónulega
og góða þjónustu varðandi allt sem
viðkemur lýsingu, fyrir allar tegund-
ir bygginga. „Starfsmenn okkar eru
sannkallaðir reynsluboltar í faginu
en Heimir Jónasson, rafmagnsiðn-
fræðingur og eigandi fyrirtækisins,
hefur mjög mikla reynslu í raflagna-
og lýsingarhönnun. Ég er búin að
vinna lengi við lýsingarhönnun og
Karlotta Guðlaugsdóttir er mennt-
aður hönnuður,“ segir Erla Heim-
isdóttir viðskiptafræðingur, en hún
stofnaði Lýsingu & Hönnun árið
2007 ásamt eiginmanni sínum,
Heimi.
Ýmiskonar verkefni
„Við höfum verið afar lánsöm að
fá að taka þátt í ýmsum skemmti-
legum verkefnum. Bæði höfum við
unnið með húseigendum að endur-
bótum og nýbyggingu á einbýl-
ishúsum, sem og arkitektum og inn-
anhússarkitektum í fjölbreyttum og
spennandi verkefnum, bæði stórum
og smáum. Hvort sem um er að
ræða eina íbúð, einbýlishús, hótel,
skrifstofuhúsnæði, íbúðablokkir,
veitingastaði eða íþróttamannvirki,
þá sjáum við um þetta allt, enda
kunnum við vel til verka,“ segir Erla.
Allt á einum stað
„Við vitum að það er í mörg horn
að líta þegar verið er að byggja
og þá hjálpar að geta fengið allt
sem snýr að rafmagnshlutanum á
einum stað. Hugmyndin að fyrir-
tækinu var því upphaflega sú að
aðstoða húsbyggjendur við allt sem
sneri að rafmagni í húsum, svo sem
raflagnateikningar, lýsingarhönnun,
rafbúnað og allt það val sem
viðkomandi stendur frammi fyr-
ir. Það er alveg greinilegt að mikil
þörf hefur verið á markaðnum fyrir
þjónustuna sem við bjóðum upp á,
enda hefur verið mikið að gera hjá
okkur undanfarið,“ segir Erla.
Líkt og nafnið gefur til kynna þá
er starfsemi Lýsingar & Hönnunar
tvíþætt. Annars vegar er um að
ræða verkfræðiþjónustu í raflagna-
teikningum og lýsingarhönnun. Hins
vegar er Lýsing & Hönnun einnig
verslun þar sem aðaláherslan er á
allar gerðir ljósa fyrir bæði einstak-
linga og fyrirtæki. „Í versluninni
erum við með gríðarlegt úrval af
fallegum ljósum og ljósakrónum
sem prýða hvers kyns rými,“ segir
Erla. Einnig býður fyrirtækið upp á
sérfræðiráðgjöf í lýsingarhönnun
fyrir einstaklinga og fyrirtæki, þar
sem starfsmenn á vegum fyrir-
tækisins mæta á staðinn, taka út
húsnæðið og ráðleggja varðandi
raflagnir og val á lýsingu.
HDL hita- og ljósastýrikerfi
„Mikill meirihluti húsbyggjenda, sem
leita til okkar, velur HDL hita- og
ljósastýrikerfi en það kerfi býður
upp á endalausa möguleika sem
uppfylla mjög mismunandi kröf-
ur. Verðið kemur líka skemmtilega
á óvart, en HDL kerfið er alls ekki
mikið dýrara en að vera með hefð-
bundna ljósdeyfa og hitanema,“
segir Erla.
Með HDL kerfinu er meðal
annars hægt að stjórna ljósum
og hita með spjaldtölvum. Þannig
má breyta stemmningu í rýminu á
afar einfaldan og þægilegan hátt.
Einnig er hægt að stýra hita og
ljósum með einum rofa sem mynd-
ar heildstætt kerfi. Nýlega kom HDL
fram með byltingarkennda nýjung
sem auðveldar eigendum eldri
húsa að vera með HDL kerfi, þrátt
fyrir að raflögn hússins sé ekki sér-
staklega löguð að kerfinu. Um er að
ræða þráðlausa rofa sem hægt er
að setja nánast hvar sem er og því
talsvert einfaldari í uppsetningu en
hefðbundið HDL kerfi.
Veggfóður fyrir falleg rými
Þó að lýsing sé í kastljósinu hjá
Lýsingu & Hönnun þá er þar einnig
hægt að fá dásamleg veggfóður
frá hollenska fyrirtækinu NLXL.
Um er að ræða gífurlega fallegt
og endingargott veggfóður sem
setur punktinn yfir i-ið í glæsilegum
rýmum.
Lýsing & Hönnun er staðsett að
Skipholti 35, 105 Reykjavík.
Opið er mánudaga til föstudaga
frá klukkan 10–17, miðvikudaga frá
klukkan 10–18.
Sími: 588-0506.
Netfang: lysingoghonnun@lysin-
goghonnun.is.
Allar vörur má sjá í vefverslun
Lýsingar og hönnun inná lysingog-
honnun.is. n