Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Blaðsíða 30
30 FÓKUS - VIÐTAL 7. júní 2019 að ná í þennan blessaða stimpil.“ Jenný lauk meiraprófinu í nóv- ember 2003 og var komin með starf áður en hún fékk bráða- birgðaskírteinið í hendurnar. „Og svo bara festist ég í þessu. Þetta er svo rosalega skemmtilegt og fjölbreytt starf,“ segir Jenný en hún bjó og starfaði í Reykjavík í sex ár áður en hún flutti aftur heim til Akureyrar árið 2011. Niðrandi tal Hún segir algengt að fólk hafi ranga mynd af vörubílstjórastarf- inu. „Það eru margir sem sjá fyr- ir sér sveittan fimmtugan kall í netabol sem situr á rassinum allan daginn. Það er mjög röng ímynd. Þetta er ofboðslega fjölbreytt starf og krefjandi og þú hittir allskon- ar fólk. Mér finnst líka ofboðslega leiðinlegt þegar fólk kallar konur á flutningabílnum „trukkalessur“. Hvað eigum við þá að kalla karl- mennina? Trukkahomma? Ég þekki margar samkynhneigðar konur og mér finnst þetta svo niðr- andi í garð þessa hóps.“ Mikið um gláp Aðspurð um hvort hún hafi orðið vör við fordóma í starfinu svarar Jenný játandi. „Ég hef mikið verið að keyra áburði á sveitabæi. Ég hef tekið eft- ir því að eftir því sem ég fer lengra inn í dalina, lengra frá manna- byggðum þá verða bændurnir sem ég hitti skrítnari og meira gamal- dags í hugsun. Ég lenti einu sinni í gömlum bónda sem var augljós- lega haldinn mikilli kvenfyrirlitn- ingu og það lá við að hann segði við mig: „Þú getur þetta ekkert, hvað ertu eiginlega að gera hér.“ Ég tilkynnti honum að ef hann væri eitthvað ósáttur við mig þá gæti ég bara farið til baka með áburðinn. Stundum þarftu bara að svara fyrir þig og setja fólki skýr mörk. Ég hef tekið eftir því að fólk er mikið að glápa á mig í vinnunni, sumir snúa sig nánast úr háls- liðnum þegar þeir sjá mig bak við stýrið. Ég hef vanið mig á að vinka til baka þegar ég sé að einhver er að stara. Fólk sér þá oft að sér og hættir að glápa. Árið 2010, þegar ég var ólétt af yngsta stráknum mínum var ég á fullu að keyra og fólk var alltaf voða hissa þegar það sá mig koma út úr bílnum með bumbuna út í loftið. Ég hef vissulega fengið að heyra að ég geti ekki hitt eða þetta, en málið er að það er ekkert sem ég get ekki gert þegar kemur að starf- inu. Ég geri reyndar ekki við, en það er aðallega bara af því að ég nenni því ekki,“ segir Jenný gletti- lega. „Yfirleitt finnst fólki bara frekar töff að ég sé í þessu starfi, ég fæ stundum spurninguna hvort þetta sé ekki erfitt líkamlega. Það er hins vegar fyrst og fremst þannig að það eru kúnnarnir sem geta verið erfiðir.“ Bætti við sig húsasmíði Fyrir nokkrum árum ákvað Jenný síðan að bæta við sig námi en hún segir ástæðuna meðal annars hafa verið að henni var illa við að keyra á veturna. Hún skráði sig því í nám við VMA. „Mig langaði að halda áfram á textílbrautinni en þá gat ég ekki fengið námslán af því að textíll flokkast ekki sem iðngrein. Ég ákvað þess vegna að skella mér í húsgagnasmíðina. Ég komst síð- an að því að ég þyrfti ekki að taka nema nokkra aukaáfanga til að klára starfsnám í húsa- smíði, þannig að ég tók það bara líka,“ segir Jenný en það vildi svo skemmtilega til að þegar hún var að klára seinustu önnina voru tvö elstu börnin hennar einnig í námi við skólann. Jenný útskrifaðist sem húsa- og húsgagnasmiður síðasta vor en hefur þó ekki starfað við fag- ið. Hún á síðan eftir um hálft ár á samningi í húsgagnasmíðinni. „Ég byrjaði síðan að keyra aftur, ég enda einhvern veginn alltaf þar.“ Námið hefur þó nýst henni vel, ekki síst fyrr á árinu þegar þau hjón festu kaup á íbúð og gerðu hana fokhelda. Jenný hefur um skeið haldið úti opinni rás á Snapchat og leyfir fólki meðal annars að fylgjast með því sem hún er kljást við í starfinu. Þess á milli sýnir hún frá daglegu lífi fjölskyldunnar. „Þetta er öðruvísi snapp held- ur en mörg önnur, ég er ekki að fjalla um snyrtivörur eða bleyj- ur. Ég opnaði snappið af því að ég vildi sýna fram á hvað þetta er fjöl- breytt starf þar sem ýmiskonar að- stæður geta komið upp. Ég vakna aldrei á morgnana og hugsa: „Ég nenni ekki í vinnuna í dag, ég verð að finna einhverja afsökun.Mér finnst ég mjög heppin að vera í þeirri stöðu. Vonandi sjá einhverj- ar stelpur snappið og fá áhuga á starfinu, þetta er algjörlega þess virði að prófa.“ n MANITOU MLT 625-75 H Nett fjölnotatæki Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is 6.800.000 kr. + VSK Sumir snúa sig nánast úr háls- liðnum þegar þeir sjá mig bak við stýrið. Jenný Tók meirapróf 22 ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.