Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Blaðsíða 2
2 7. júní 2019FRÉTTIR íþróttaviðburðir á oddaárssumri Oddaárssumur eru glöt- uð sumur. Þá hafa fót- boltaunnendur hvorki Heimsmeistaramót né Evrópumót til að hlakka til. Árangur strákanna okkar í landsliðinu hefur gert það að verkum að við Íslendingar erum orðnir vanir því að vera með á stórmótum. Er þá ekkert til að hlakka til í sum- ar annað en góða veðrið og að komast í gott frí? Jú, það er nóg um að vera í íþrótt- unum. Hér eru 5 íþróttavið- burðir til að hlakka til. HM kvenna Við Íslendingar stærum okkur af því að hér sé eitt mesta jafnréttis- samfélag jarðarinnar. Það er ekki til betri leið til að sýna það en að flykkjast fyrir framan imbann og hámhorfa á HM kvenna í Frakklandi. Líkt og í karlaflokki hefur mótið stækkað sífellt. Nú eru 24 lið sem keppa, frá 7. júní til 7. júlí. Kvennaboltinn hefur verið afskiptur lengi, jafnvel þó að knattspyrnukonur séu harðari af sér og meiri töffarar en karlarnir. Wimbledon Á Íslandi eru ríkjandi furðulegir fordómar í garð tennis, að íþróttin sé aðeins fyrir snobbaða útlendinga. Í raun eru þessir fordómar furðulegir í ljósi þess hversu miklu ástfóstri við höfum tekið við golfinu. Tennis er frábær íþrótt og ein af fáum þar sem konurnar verða jafnmiklar stjörnur og karlarnir. Wimbledon- -mótið, sem fram fer 1. til 14. júlí er að sjálfsögðu toppurinn á tennisdagatalinu. Tour de France Hjólreiðamótið fræga fer fram dagana 6. til 28. júlí, í Frakklandi að sjálfsögðu. Já, já við vit- um að þessir menn eru allir saman á sterum og það er ekkert að marka úrslitin. Við skulum ekki plata okkur til að halda að Lance Armstrong hafi verið sá eini. En á það ekki við um fleiri íþróttir? HM í pílukasti Lesendur þurfa ekki bíða eftir heimsmeist- aramótinu í pílukasti því það er hafið þegar þetta blað kemur út og lýkur sunnudaginn 9. júní. Íslendingar eru sífellt að átta sig á hversu gaman það er að horfa á gildna og illa tennta pöbbakalla kasta pílum á spjald. Mótið fer fram í Hamborg í Þýskalandi. HM í krikket Ef fólk vill fara virkilega út fyrir þægindarammann þá er lag að fylgjast með heimsmeistaramótinu í krikket. Það fer fram á Englandi og Wales og er nú þegar hafið. En lýkur ekki fyrir en 14. júlí, sem þýðir að það er hægt að drepa ansi marga klukkutíma fyrir framan sjónvarpið. Sennilega tekur það þó álíka langan tíma að kynna sér reglurnar í þessari fornu nýlenduherraí- þrótt. Á þessum degi, 7. júní 1654 – Sólkonungurinn, Loðvík XIV af Frakklandi, krýndur. 1951 – Minnismerki um 212 breska hermenn, sem féllu á Íslandi, afhjúpað í Fossvogskirkjugarði. 1982 – Graceland, heimili Elvis Presley, opnað almenningi. Salernið þar sem rokkgoðið lést var þó enn lokað. 1992 – Nýr Herjólfur kom til Vest- mannaeyja. Gat flutt 480 farþega og 62 fólksbíla. Síðustu orðin „Van Halen!“ – Dimebag Darrell gítarleikari Pantera (1966-2004) Múmínálfurinn Björk A ðdáendur Múmínálfanna, sögupersóna bóka Finn- landssænska rithöfundar- ins og myndlistarkonunn- ar Tove Jansson eru fjölmargir hér á landi, sem annars staðar. Bækurnar komu út á árunum 1945-1970 og í kjölfarið fylgdu teikni-, brúðu- og bíómyndir. Skemmtigarður var opnaður 1993 og eins og margir íslenskir að- dáendur vita koma reglulega út bollar, diskar og aðrar vörur fyrir heimilið. Margir eldri bollar fara fyrir stjarnfræðilegt verð í aðdá- endahópi á Facebook. Skemmtilegar eldri mynd- ir af tónlistarkonunni Björk sýna að hún klæddist Múmínálfun- um löngu áður en það varð „kúl“ að vera aðdáandi þeirra. Mynd- irnar eru teknar af hollenska ljós- myndaranum Anton Corbijn, sem myndað hefur fjölmargar stjór- stjörnur, þar á meðal Bruce Spr- ingsteen, Robert De Niro, Clint Eastwood og U2, svo aðeins nokkrir séu nefndir. n Þ orsteinn Þorsteinsson vöru- stjóri Nokia hjá Origo fagn- aði nýlega fimmtugsafmæli og fór af því tilefni í afmælis- ferð til Svíþjóðar og hélt uppá stóra daginn úti. „Ferðin var meðal annars farin út af fimmtugsafmæli mínu og líka út af þrítugsafmæli frænku okkar. Við eigum stóra fjölskyldu í Svíþjóð sem við erum í mjög góðu sam- bandi við og förum reglulega út,“ segir Steini. „Við fórum út um allt og heimsóttum vini og ættingja, sem við eigum um alla Svíþjóð.“ Ein af frænkum Steina í sænska ættboganum er Camilla Läck- berg rithöfundur sem vakið hefur heimsathygli fyrir glæpasögur sínar, meðal annars hér á landi, þar sem er hún er mjög vinsæl. „Camilla og pabbi eru bræðra- börn,“ segir Þorsteinn, en faðir hans er hálfur Svíi og bjó í tíu ár í Svíþjóð, en flutti aftur heim í fyrra. Camilla hélt afmælisveislu fyrir íslenska frændann, sem sló svo sannarlega í gegn hjá afmælisbarninu og öðrum gestum. Camilla er ótvíræð drottning glæpasagnanna og hefur verið köll- uð „hin sænska Agatha Christie“. Fyrsta bók hennar hér á landi, Íspr- insessan, kom út árið 2006 og hafa alls 14 bækur hennar verið gefnar út hér, sú nýjasta núna í ár, Gullbúrið. „Þetta er bara einn dagur enn,“ svarar Steini aðspurður um hvern- ig var að ná fimmtugsaldrin- um, „en gríðarlegur þroski sem er tekinn út á þessum degi. Ferðin var skemmtileg reisa og mikið af ætt- ingjum úti þannig að ég fékk eigin- lega þrjár veislur út úr ferðinni.“ Aðspurður hvort hann ætli að skella í stórafmælisveislu hér heima, svarar Steini: „Nei ég held bara ekki, þetta er eiginlega orðið nóg. Nú býður maður bara eftir sex- tugu, held kannski veislu þá.“ „Bara halda áfram að vinna og lifa lífinu,“ segir Steini spurður um hvernig hann ætli að verja seinni helmingi ævinnar. n Ísdrottningin Camilla hélt afmælisveislu fyrir Steina Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.