Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Blaðsíða 48
7. júní 2019
23. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Glæsilegar danskar
innréttingar í öll
herbergi heimilisins
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
„Reyki
gras,
sérhvern
dag“
H
in víðfræga Bláa sjoppa
í Grafarvogi, eða Engja-
ver eins og hún var áður
kölluð, verður nú veip-
búð. Veipkeðjan Polo tilkynnti
nýverið að hún myndi opna í
sjoppunni.
Einhverjir íbúar hverfisins
hafa lýst yfir áhyggjum af opn-
uninni enda er sjoppan stað-
sett á milli þriggja skóla. Fram-
haldsskólans Borgarholtsskóla
og grunnskólanna Vættaskóla
og Kelduskóla. Bláa sjoppan
hefur hins vegar selt rafrettu-
vörur frá árinu 2017 og einnig
hefur verið hægt að kaupa
tóbak þar.
Bláa sjoppan
verður veipbúð
Þorsteinn
ræðukóngur
málþófsins
Þ
orsteinn Sæmundsson
hefur forystu í málþófi
Miðflokksins um þriðja
orkupakkann. Þegar
þessi frétt er skrifuð hafði hann
haldið 48 ræður um málið. For-
maðurinn, Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, kom rétt á eftir
með 45 ræður og Birgir Þórar-
insson með brons og 39 ræður.
Þar á eftir koma Karl Gauti
Hjaltason með 36 ræður, Berg-
þór Ólason með 35, Ólafur Ís-
leifsson með 27, Gunnar Bragi
Sveinsson með 23, Anna Kol-
brún Árnadóttir með 13 og
lestina rak Sigurður Páll Jóns-
son með aðeins 8 ræður.
Vestur-Íslendingur stofnar kannabisræktun í Utah
L
yle Christansen er vestur-íslenskur
bóndi í Utah sem hyggst stofna
kannabisræktun á ættarbúgarði sín-
um. Lyle ræddi við FOX 13 sjónvarp-
stöðina nú á dögunum og kom þar fram
að hann væri af íslenskum ættum.
Í viðtalinu lýsir Lyle hann íslenskum
forfeðrum sínum sem „brauðryðjendum
sem komu til lands tækifæranna“. Jörðin
hefur gengið frá einni kynslóð til annarr-
ar. Á bænum ræktar Lyle meðal annars
bygg og alfalfaspírur sem hann selur síðan
á Amazon.com undir vörumerkinu „The
Viking Farmer“. Núna hyggst hann feta
nýjar slóðir í ræktuninni.
Árlega veitir Matvæla- og landbúnað-
arstofnun Utah-fylkis 10 leyfi til bænda
til að rækta maríjúana í lækningaskyni.
Með því er reynt að tryggja að sjúklingar
geti nálgast efnið á löglegan og auðveld-
an hatt.
Lyle hyggst sækja um slíkt leyfi og segist
hann hafa mikla trú á ræktun af þessu tagi.
„Ég lít ekki á þetta sem dóp eða gras.
Fyrir mér þetta er lyf. Þetta á eftir að hjálpa
börnum með kljást við krampa og flog.
Þetta á eftir að hjálpa systur minni sem
er að ljúka lyfjameðferð við krabbameini.
Krabbameinsjúklingar geta nýtt sér þetta,
og sömuleiðis uppgjafahermenn sem
þjást af áfallastreituröskun. Möguleikarnir
eru óteljandi.“