Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Blaðsíða 22
Sértæk þjónusta 7. júní 2019KYNNINGARBLAÐ Fólk er mjög ánægt með úrvalið hjá okkur enda er leitun að öðru eins úrvali af gæludýrum. Við erum með allt frá krúttlegum hömstrum og syngjandi fuglum yfir í liðugar þúsund- fætlur,“ segir Jóhannes Sigmarsson eigandi Fiskó í Kauptúni, Garðabæ. Öðruvísi gæludýr „Ef þig langar í öðruvísi gæludýr þá kemurðu til okkar! Við erum með mikið úrval af froskum og öðruvísi gæludýr- um eins og þúsundfætlur og fleira,“ segir Jóhannes. Það er um að gera að líta við í Fiskó og skoða þessi skemmti- legu dýr. Hver veit, kannski verðurðu ástfanginn af froski! Gríðarlegt úrval af fiskum Í Fiskó eru hátt yfir 300 fiskabúr þar sem má finna mörg hundruð tegunda af skrautfiskum. „Einnig erum við með gott úrval af sjávarfiskum og kóröllum auk þess sem við erum með brjósk- fiska svo sem skötur og alvöru hákarla. Að sjálfsögðu erum við með allt fyrir fiskabúrið og fróðir starfsmenn okkar ráðleggja þeim sem vilja koma sér upp fiskabúri, hvort sem um er að ræða ferskvatns- eða saltvatnsfiskabúr.“ Úrval af vörum fyrir gæludýr „Hjá Fiskó erum við með gríðarlegt úrval af vörum fyrir öll gæludýr; hunda, ketti, nagdýr, fiska, fugla, skordýr o.fl. Mitt á milli risanna Costco, Ikea og Bónus höfum við kappkostað að bjóða sanngjörn verð eins og þeir. Þá seljum við flestar tegundir af gæða hundafóðri á góðu verði eins og t.d. Royal Can- in, Brit, Brit care, Eukanuba, Barking heads, Acana og Iams. Að auki erum við með gríðarlegt úrval af öðrum vör- um fyrir hunda og ketti og aðra loðna dýravini.“ Þekking, reynsla og þjónusta „Við leggjum mikla áherslu á ráðgjöf og þjónustu við viðskiptavini. Á þeim þrjátíu árum sem verslunin hefur verið starfandi hefur safnast gríðarleg þekk- ing og reynsla hjá starfsmönnum okkar og við hvetjum viðskiptavini okkar alltaf til að leita sér þekkingar hjá okkur um gælu- dýrið sitt,“ segir Jóhannes. Opið alla daga vikunnar: Virka daga frá 10-19, lau. frá 10-18 og sun. 12-18. Kauptún 3, Garðabær, rétt hjá Ikea og Costco. Sími: 564-3364 Tölvupóstfang: fisko@fisko.is Facebook: Fiskó dýrabúð Nánari upplýsingar má finna á fisko.is n FISKÓ: Öðruvísi og spennandi gæludýr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.