Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Blaðsíða 10
10 7. júní 2019FRÉTTIR staðnum. Ef menn þurfa að tala saman í einrúmi þurfa þeir að fara á klósettið. En samkvæmt fyrri frétt DV eru það einmitt neyslu- rýmin. „Þeir sem ekki nota fíkniefni eru leiddir inn á þá braut í Gisti- skýlinu, hægt og rólega,“ segir Örn. Fjallað hefur verið um ofbeldi á staðnum og Örn tekur undir það. „Þarna er til dæmis einn mað- ur með þá áráttu að kveikja í. Ann- ar að brjóta flöskur, hann elskar að heyra brothljóðin. Maður sér ýmis sjúkleg einkenni á þessum stað en þessu er öllu hrúgað á sama stað. Eins og þetta sé félagsleg rann- sókn. Síðan er líka stundað and- legt ofbeldi og ógnanir þarna inni, sem er jafnvel verra en að verða fyrir barsmíðum.“ Þá segir Stefán að ávallt sé þessi yfirvofandi hætta á að verða hent út. „Þú verður að passa þig á því hvað þú segir, þér gæti verið vísað út á gaddinn.“ Öllu stolið Þjófnaður er einnig vandamál í Gistiskýlinu. Mennirnir fá stóra plastbala sem þeir geta geymt eigur sínar í, nokkrar vikur í senn. Þeir eru síðan læstir inn í geymslu og aðeins starfsfólk- ið er með lykla, en munir hafa samt horfið úr þeim. Einnig eru læstir skápar á skrifstofunni fyr- ir smáhluti. Símar, tölvur, föt og hvaðeina. Reglum um geymslu er breytt eftir hentugsemi. Stefán segir: „Það er eiginlega regla að ef eitthvað er ekki bundið niður þá er því stolið. Það er ekki hægt að vera öruggur með neitt. Þú verður að sofa ofan á öllu sem þú getur, hafa síma og veski undir koddan- um. Ef maður nær að sofna yfir- höfuð, sem er ekki alltaf raunin. Persónulega svaf ég í einn klukku- tíma í nótt. Flestir sofa lítið sem ekkert þarna inni.“ Örn segir: „Ég fékk að geyma sex plast- poka af alls konar dóti en einn daginn fundust þeir ekki. Nokkru síðar fundust þeir á annarri hæð en þeir höfðu verið geymdir á, það var búið að binda fyrir þá á ann- an hátt en ég hafði gert og búið að taka úr þeim. Ég þurfti síðan að fara upp á spítala og þegar ég kom aftur voru þeir horfnir. Í pokun- um voru öll persónuleg skrif mín, bæði í bókarmynd og persónuleg bréf. Til dæmis það sem ég skrif- aði á mínum flæking um Indland og Sri Lanka. Minningar og mynd- ir. Allt horfið.“ Erfið bið Stefán hefur verið á biðlista eft- ir félagslegu húsnæði, bæði hjá borginni og hjá Brynju, hússjóði Öryrkjabandalagsins. Hann segist hafa fengið samþykki en síðan gerist ekkert. „Það er ekkert að losna. Ég er búinn að bíða í níu mánuði og vitað var allan tímann að ég var að missa leiguhúsnæðið á frjálsum markaði og um ástand mitt.“ Hafa ber í huga að samkvæmt 9. grein laga um þjón- ustu við fatl- að fólk með langvarandi þjónustuþarfir segir: „Fatlað fólk á rétt á húsnæði í samræmi við þarfir þess og óskir og félagslegri þjónustu sem ger- ir því kleift að búa á eigin heimili og stuðlar að fullri aðlögun þess og þátttöku í samfélaginu.“ Samrýmist staða þín reglum um málefni fatlaðs fólks og NPA reglugerðinni? „Nei. Ég sótti meira að segja um húsnæðishjálp, til að þrífa og þess háttar. Mér var sagt að það tæki því ekki því að ég væri að missa hús- næðið.“ Stimpill kerfisins Sigurlaug Guðný Ingólfsdóttir og Garðar Ottesen hjá Kærleikssam- tökunum hefur aðstoðað menn sem hafa þurft að leita til Gisti- skýlisins. Það eru menn með alls kyns vanda, svo sem húsnæðis- vanda, eiturlyfjafíkn, alkóhólisma, spilafíkn, geðræn vandamál og önnur veikindi. Hún segir: „Það er engin aðstoð í boði þarna fyrir utan að þeir geta farið inn á Vog og kannski Vík. Svo tekur það sama við, eilíf hringrás. Kerf- ið núna er þannig að VOR-teymið svokallaða, vettvangs- og ráðgjafa- teymi, fer um og spyr einstaklinga hvort þeir þurfi á aðstoð að halda. Ef þeir gefa eitthvað upp eru þeir sjálfkrafa flokkaðir sem fólk með miklar og flóknar þjónustuþarf- ir, áður utangarðs, en það er ekki skilgreint hvað hægt sé að gera fyr- ir viðkomandi. Engar lausnir, eins og fólk viti ekki hvað þetta þýðir. Þetta er ákveðinn stimpill og kem- ur niður á fólki í kerfinu, til dæmis þegar kemur að húsnæðisúrræð- um á vegum borgarinnar. Það er verið að ákveða hvaða vandamál fólk er með án þess að kynna sér það til hlítar. Engin læknisvottorð eða neitt.“ „Hjá félagsþjónustunni í Breiðholti var mér eitt sinn sagt að ég væri dópisti og ætti að fara í Gistiskýlið,“ segir Stefán. „Ég hef aldrei snert dóp á ævinni.“ Þá segir Sigurlaug að hún hafi unnið með fólki sem hafi verið sent í meðferð jafnvel þó það hafi ekki haft þörf fyrir það. „Það virðist sem vilji sé til stað- ar til að leysa heimilisvanda Ís- lendinga þó formið sem þeir leggja fram virki ekki fyrir alla. Þetta er annað hvort misskiln- ingur eða hreint skilningsleysi á vanda þeirra einstaklinga sem annars vegar eru eingöngu heim- ilislausir og hins vegar eru heimil- islausir og með geðrænan- og/eða fíknivanda. Sama hvað Kærleiks- samtökin og einstaklingarnir sjálf- ir hafa reynt að koma þessu atriði á framfæri þá virðist lítill áhugi á að skerpa á vinnubrögðum, nálg- un og aðferðarfræði til þess að mæta hverjum einstaklingi þar sem hann er staddur hverju sinni.“ Plástrar duga ekki Kærleikssamtökin hafa einblítt á málefni heimilislausra frá því í desember 2017. Hafa þau að- stoðað einstaklinga á tjaldsvæð- inu í Laugardal, í Víðinesi, í Gisti- skýlinu, í gámunum úti á Granda og einstaklinga á götunni. Auk þess hafa samtökin setið allmarga fundi með borgarfulltrúum, yfir- mönnum á velferðarsviði og ÍTR. „Við höfum unnið með þeim að ýmsum málum sem snerta að- stæður og stöðu einstaklingana, rætt vinnuaðferðir, lagt fram upp- lýsingar, ráðleggingar og lausnir,“ segir Sigurlaug. „Það sést að þær lausnir sem er verið að nota hjá sveitarfélögum skila litlu. Hindr- anir í kerfinu, svo sem ónæg heil- brigðis-, félags- og húsnæðisþjón- usta viðhalda vítahringnum sem heimilislausir eru fastir í og ýta í mörgum tilfellum undir aukna neyslu og vonleysi. Kærleikssam- tökin hafa bent á það sem er að og það sem einstaklingarnir upp- lifa sem andlegt ofbeldi og jafnvel andlega nauðgun, einelti og afar neikvæða framkomu í sinn garð.“ Að hennar mati eru stefnu- breytingar í stjórnmálunum eitt helsta vandamálið og hún bendir á að samkvæmt áliti Umboðsmanns Alþingis frá 2016 uppfylli reglur sveitarfélagana ekki lög um félags- þjónustu. Erlendir einstaklingar sem leita hingað hafi töluverðan forgang, samanber samning borg- arinnar við Útlendingastofnun um þjónustu við umsækjendur um al- þjóðlega vernd. Samtökin hafa lagt fram beiðni um samstarf við borgina og sam- kvæmt Sigurlaugu stendur hún enn. Þegar hafa samtökin fund- að með minnihlutanum en meirihlutinn ekki enn orðið við beiðninni. „Kærleikssamtökin eru með prógram sem byggir á lausnum, sem er hægt að nota bæði sér og samhliða öðrum úrræðum. Til að ná fram lausn þá verður að taka jafnt á húsnæðisvanda, að byggja fólk aftur upp og skapa fjárhags- legan stöðugleika. Fókusinn okk- ar er að laga og leysa hindranir en aðferðir sveitarfélaga eru að setja plástur á ástandið í stað þess að bera sína ábyrgð samkvæmt lög- um eins og þeim ber skylda til. Við erum bjartsýn og vitum hvernig á að leysa núverandi stöðu heim- ilislausra með því sem er til stað- ar, það er með húsnæði og fjár- magni.“ Undantekning að fatlaðir leiti til Gistiskýlisins Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða hefur um- sjón með Gistiskýlinu. Hrafnhild- ur Ólöf Ólafsdóttir deildarstjóri ræddi við DV. Hvernig samrýmist það lögum um réttindi fatlaðs fólks og NPA reglugerð að maður bundinn við hjólastól þurfi að leita til Gistiskýl- isins á hverjum degi og fái enga aðstoð? „Við getum ekki af persónu- verndarástæðum upplýst um samskipti og stuðning við við- komandi einstakling en í samb- ærilegum málum er leitast við að kynna einstaklingum rétt sinn og aðstoða á allan hátt við að fá þá þjónustu sem viðkomandi þarfn- ast. Einstaklingar eru aðstoðað- ir við að fá inni á gistiheimili og er boðinn stuðningur en viðkom- andi einstaklingur verður að vilja þiggja þá aðstoð sem við bjóðum. Það heyrir til algjörra undantekn- inga að fatlaðir einstaklingar leiti til Gistiskýlisins.“ Teljið þið að frelsi einstaklinga sé nægt í Gistiskýlinu? „Gestir Gistiskýlisins eru beðn- ir um að sýna öðrum gestum til- litssemi og halda næturró“ seg- ir Hrafnhildur Ólöf. „Vegna opnunartíma Gistiskýlisins verð- um við að biðja gesti um að yfir- gefa skýlið klukkan 10 á morgn- anna. Hægt er að koma með mat með sér og borða í matsal á þeim tímum sem matsalurinn er opinn.“ Við DV sögðu bæði Stefán og Örn hins vegar að ekki mætti taka mat með sér inn. Er öryggi eigna fólks tryggt á staðnum? Hrafnhildur segir: „Við reyn- um að tryggja öryggi eigna fólks með því að bjóða gestum upp á læsta skápa, en það eru ekki all- ir gestir tilbúnir að nýta sér þann möguleika.“ Hvað varðar plássleysi og skort á einkalífi segir hún: „Aðsóknin á gistingu í Gisti- skýlinu er mjög mikil en skýlið er það eina sinnar tegundar á Ís- landi og ekkert annað sveitarfélag rekur slíka starfsemi. Vegna að- sóknarinnar var fleiri dýnum bætt við tímabundið en unnið er að standsetningu á öðru neyðarskýli og verður það vonandi tilbúið til notkunar í haust.“ nSmiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt Sigurlaug Dröfn Ingólfsdóttir hjá Kærleikssamtökunum. Örn Sigfússon Öllum persónuleg- um skrifum stolið. Stefán Stefánsson Greindist með MS fyrir tíu mánuðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.