Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Blaðsíða 36
36 SPORT 7. júní 2019
K
olbeinn Sigþórsson er 29 ára gamall lands-
liðsmaður Íslands í knattspyrnu. Hann hefur
upplifað allar hliðar fótboltans og hefur náð
ótrúlegum árangri bæði með félagsliði og
landsliði. Hann hefur einnig upplifað ótrúlega erf-
iða tíma, hann óttaðist að þurfa að hætta í fótbolta
eftir meiðsli sem hrjáðu hann í tæp þrjú ár. Hann
er hins vegar að komast á fullt aftur og er mættur til
AIK í Svíþjóð og er með íslenska landsliðinu í næsta
verkefni, gegn Albaníu og Tyrklandi, í undankeppni
Evrópumótsins.
Barnastjarnan
Kolbeinn var algjör barnastjarna, það sást strax að
hann hefði hæfileika til að komast í fremstu röð.
„Þetta var alveg þannig. Það voru miklar væntingar
gerðar til manns eftir því sem maður vann fleiri
mót og skoraði fleiri mörk í yngri flokkunum. Mað-
ur fann það alveg að það var komin auka pressa að
skora tíu mörk í leik, það voru settir þrír leikmenn
á mig í hverjum leik. Foreldrar að öskra inn á völl-
inn, „tæklið hann, út með hann“ og eitthvað svona.
Maður fann það alveg. Þetta eru mínar bestu minn-
ingar, Shellmótið, Essómótið og öll þessi fótbolta-
mót þegar maður var yngri. Þegar maður lítur til
baka þá er geggjað að upplifa svona góða æsku, þar
sem maður var í sviðsljósinu líka. Það er gaman að
því. Það hefur alltaf verið smá auka pressa á mér,“
sagði Kolbeinn í hlaðvarpsþætti okkar 90 mínútum,
sem nálgast má á vefnum.
Van Gaal öskraði á hann
Kolbeinn var mjög eftirsóttur þegar hann var 16 ára
gamall, stórlið á borð við Arsenal, Inter og Celtic
vildu fá hann. Það var hins vegar fundur með Louis
van Gaal, hjá AZ Alkmaar sem sannfærði hann um
að fara til Hollands. „Það er þvílíkur agi í honum.
Ef þú gerir mistök á æfingum þá stoppar hann æf-
inguna og öskrar á þig. Menn þurfa að vera á tánum.
Sérstaklega þegar ég kom þangað frá því að æfa með
HK, með fullri virðingu fyrir þeim, og fara svo á æf-
ingu hjá Louis van Gaal, í þvílíkan hraða í Meistara-
deild. Það tók mig tíma að venjast því. Ég fékk hell-
ing af drulli yfir mig frá honum. Það var bara gott
spark í rassgatið, það tók mig tíma að venjast bolt-
anum í Hollandi. Eftir 3-4 mánuði var ég að æfa á
miklu hærra stigi en áður og farinn að fá svona lítil
meiðsli, sem verða svo stór á endanum. Ég held að
ég hafi farið í pínu ofþjálfun. Ég var ekki klár að taka
þetta skref, æfingalega séð.“
Gat ekki horft á spyrnuna
Árið 2011 var Kolbeinn keyptur til stórliðs Ajax,
hann fékk treyju númer 9, það er ábyrgð sem fylgir
þeirri treyju. Kolbeinn lék í fjögur ár með félaginu,
varð þrisvar sinnum meistari og spilaði í Meistara-
deildinni. Það er vítaspyrna frá 2013 sem situr í hon-
um enn í dag, hann klikkaði gegn Barcelona á Nou
Camp. „Hún situr enn í kollinum. Ég held að ég hafi
ekki horft á þetta víti fyrr en bara einhverju hálfu
ári seinna, Þá var ég fyrst kominn yfir það. Þetta er
hluti af þessu en það var hrikalega svekkjandi að fá
þetta tækifæri, víti á Nou Camp. Við áttum ekki séns
í þessum leik en að eiga það á ferilskránni að skora í
Meistaradeildinni… þetta er svekkjandi. Það er enn
tími til að skora í Meistaradeildinni.“
Toppurinn á ferlinum í Nice
Kolbeinn var einn besti leikmaður Íslands á
Evrópumótinu í Frakklandi árið 2016. Hann skor-
aði meðal annars í mögnuðum sigri á Englandi.
„Það mark stendur klárlega upp úr á ferlinum. Við
fengum mark á okkur eftir 8 mínútur eða eitthvað
og þá hugsaði maður með sér: „shit, týpískt eitt-
hvað“. Svo kviknar eitthvað hjá okkur, við komum til
baka á hárréttu augnabliki, strax í grímuna á þeim,
1-1. Þá finnur maður það bara að við erum komn-
ir með augnablikið og þegar þú ert inni á vellinum
þá finnur þú það. Þú horfir í augun á leikmönnum
og sérð að þessir gæjar ætla ekkert að tapa þessum
leik. Þannig hugsuðu Englendingar, held ég, þegar
þeir fundu fyrir orkunni í okkur. Það er erfitt að spila
gegn svona liði. Að ná þessum úrslitum þarna og
skora sigurmarkið, það er algjörlega toppurinn á
ferlinum hjá mér.“
Heppinn að sleppa ómeiddur frá árekstri í Frakk-
landi
Kolbeinn gekk í raðir Nantes í Frakklandi árið
2015. Þann tíma vill hann sem minnst ræða. Það
gekk ekkert upp, hann meiddist illa og forseti fé-
lagsins fór fram af mikilli hörku í samskipt-
um við Kolbein. Hann yfirgaf félagið loks í
mars, eftir erfiða tíma. Fáir vita að þegar
Kolbeinn var að ganga í raðir félagsins
lenti hann í hörðum árekstri. Hann var
farþegi í bíl á leið frá flugvellinum. „Ég
vil helst tala sem minnst um þenn-
an tíma, en jú þegar ég kem þarna
þá lendi ég í árekstri á leið í læknis-
skoðun. Það er ekkert besta byrjun-
in. Það var alveg bara mikill árekstur
og ég er heppinn að það hafi ekki
farið verr. Það kannski segir svolítið
um tímann hjá Nantes. Ég byrjaði á
árekstri.“
Sumarið 2018 breyttist allt hjá
Nantes. Kolbeinn var að komast
í gott form og fyrir sumarfrí virt-
ist allt vera í blóma. Þegar hann
kom til baka úr fríi, var allt breytt.
„Þeir eru mjög ánægðir með mig.
Ég fer á fundi með syni forsetans
og Claudio Ranieri talar við fjöl-
miðla, segir að hann sé ánægð-
ur með mig og að allt sé í topp-
standi. Svo kem ég til baka úr fríi
og þá er ég settur út úr liðinu.
Það var kominn nýr þjálfari og
þar snýst þetta. Það er þannig
í nokkra mánuði. Ég skil ekki
ástæðuna, af hverju þetta varð
svona. Það var engin ástæða.“
Kolbeinn gekk í raðir AIK í
Svíþjóð fyrir tveimur mánuðum,
hann elskar lífið á nýjum stað.
„Allt við klúbbinn er frábært. Þeir
eru fyrst og fremst á grasi, þeir æfa
og spila á grasi. Fyrir minn líkama
er það mun betra. Þeir eru í Meistara-
deild, eru meistarar og spila á flottum
velli. Umhverfið í kringum liðið er frábært.
Maður fann það þegar maður mætti þarna
að þetta er stórlið í Skandinavíu. „Það er
æðislegt að búa í Stokkhólmi. Þetta er geggjuð
borg og fólkið er næs. Þetta er pínu eins og maður
sé heima á Íslandi.“ n
Barnastjarnan sem lenti í árekstri í Frakklandi
n Kolbeinn Sigþórsson segir sögu sína n Besta stundin á ferlinum í Nice
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
MYND: HANNA/DV