Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Blaðsíða 23
Sértæk þjónusta 7. júní 2019 KYNNINGARBLAÐ
ALLIR MENNTAÐIR VÉLFRÆÐINGAR
Aflhlutir þjóna
sjávarútvegi, fiskeldi og fleiru
Starfsmenn og eigendur Aflhluta ehf. erum við Hrafn Sigurðsson, Björn Jóhann Björnsson og Helgi
Axel Svavarsson, sem allir erum mennt-
aðir vélfræðingar og höfum áratuga-
reynslu í sölu og tæknilegri þjónustu við
sjávarútveginn. Aflhlutir ehf. er umboðs-
aðili fyrir mörg af þekktustu vörumerkj-
um á markaði tengdum sjávarútvegi.
Þar má nefna bátavélar frá JOHN
DEERE, DEUTZ, MAN, hliðarskrúfur frá
ABT-TRAC, ljósavélar ZENORO og fiski-
dælur frá SEA-QUEST,“ segir Hrafn einn
af eigendum Aflhluta.
Sea-Quest sem er staðsett í Killibeks
í Írlandi, er leiðandi í dag í framleiðslu
á fiskidælum og tengdum búnaði fyrir
uppsjávarveiðiskip. Í dag eru nálægt
70% af uppsjávarskipum á Íslandi með
fiskidælur frá Sea-Quest. Aflhlutir ehf.
þjónustar sjávarútveginn, fiskeldið,
bændur og verktaka.
Nýlega tóku Afhlutir ehf. við umboði
fyrir hinar þekktu JCB rafstöðvar. „Fyrir
stuttu seldum við tvær JCB rafstöðvar
fyrir varaafl til ISAVIA á Reykjavíkur-
flugvelli, einnig höfum við selt töluvert af
JCB rafstöðvum til fiskeldisfyrirtækja,
þar sem þær hafa reynst mjög vel enda
þekktar fyrir gæði og áreiðanleika,“ segir
Hrafn.
Umboð fyrir bátasmiðjuna
Bredgaard Boats
Árið 2016 tóku Aflhlutir ehf. við umboði
fyrir Danska skipasmíðastöð sem heitir
Bredgaard Boats. Bredgaard Boats,
sem staðsett er í nýjum húsakynnum
í Rödby, hefur framleitt atvinnubáta
frá árinu 1967. Helstu viðskiptalönd
Bredgaard Boats eru Noregur, Svíþjóð,
Danmörk, Grænland, Þýskaland, Hol-
land og nú síðast Ísland. „Það eru mjög
spennandi tímar framundan hjá Aflhlut-
um ehf. varðandi bátasölu, þar sem nú
dregur að sjósetningu stærsta ver-
tíðarbáts sem smíðaður hefur verið úr
trefjaplasti fyrir íslenskan aðila. Bárður
SH-81, sem er í eigu útgerðarmannsins
Péturs Péturssonar á Arnarstapa, hefur
verið í smíðum hjá Bredgaard Boats
síðan í febrúar 2018. Bárður SH er smíð-
aður undir eftirliti og samkvæmt reglum
flokkunarfélagsins Bureau Veritas. Í
honum er allt það nýjasta nýtt sem er í
boði á markaði í dag.“
Endurnýjun á hefðbundnum
vertíðarbátum
Hrafn telur að þar sem mikil endurnýjun
hafi átt sér stað í togaraflotanum og
uppsjávarveiðiskipum sé nú komið að
þessum hefðbundnu vertíðarbátum
sem hafa setið eftir. „Við sjáum að þessir
bátar eru flestir komnir til ára sinna og
þarfnast endurnýjunar. Viðhaldskostn-
aður og óhagkvæmni í rekstri er þá
töluverður miðað við þann búnað sem
í boði er í dag. Þar má til dæmis nefna
að aðalvélin í Bárði SH, sem er frá MAN
í Þýskalandi, er með eldsneytisnotkun
sem gerist vart lægri í þessum vélaflokki,
ekki nema 195 g/kWh og uppfyllir allar
þær ströngu kröfur um mengun sem
gerðar eru í dag.“
Með mikið af búnaði í nýjan Bárð SH
„Bárður SH verður einn fullkomnasti
bátur af þessari stærð þegar hann
kemur til landsins síðar í sumar. Við
erum þeir aðilar sem erum með milli-
göngu um smíði og sölu á þessum báti
og seljum að auki mestallan búnað í
hann. Aðalvélin er frá MAN og er 900
hestöfl, niðurfærslugírinn er TWIN
DISC MGX, skrúfubúnaðurinn kemur frá
Teignbridge, tvær ljósavélar frá Zenoro í
Hollandi, hliðarskrúfurnar bæði framan
og aftan frá ABT Track í Bandaríkjunum.
Þetta eru hliðarskrúfur sem hafa reynst
alveg gríðarlega vel á þessum mark-
aði fyrir smærri gerð af bátum. Svo er
kraninn frá Guerra á Spáni. Við erum því
með puttana í mörgu í tæknibúnaðin-
um í þessum bát og erum líka að sinna
eftirliti með smíðinni.
Við fylgjum mjög vel eftir öllum okkar
verkefnum og erum vel tengdir í þau.
Við erum ekki bara að selja, heldur að
þjónusta og fylgja eftir öllum þáttum,
þannig að allt verði gert eins vel og völ
er á fyrir okkar viðskiptavini,“ segir Helgi,
vélfræðingur og rafiðnfræðingur.
27 metra langur og 7 metra breiður
Að mati Hrafns býður bátasmiðja
Bredgaard Boats upp á kosti sem
ekki hafi sést hér á Íslandi áður, þegar
litið er til styrkleika og gæða. „Hinn nýi
Bárður verður stærsti trefjaplastbátur
sem smíðaður hefur verið fyrir íslensk-
an útgerðarmann. Hann er tæplega
27 metra langur og 7 metra breiður.
Borghein Yact Design í Danmörku sem
er með áratuga reynslu í hönnun báta,
hannaði og teiknaði nýjan Bárð SH
í samvinnu við Pétur. Við höfum selt
vélbúnað um borð í íslenska plastbáta í
áratugi og höfum aldrei séð flottari og
vandaðri vinnubrögð á nokkrum bát eins
og hjá Dönunum.
Snurvoðaspil, netatromma og stjórn-
búnaðurinn fyrir snurðvoðina verður
með því fullkomnasta sem þekkist, og
verður öll stjórnun á voðinni tölvustýrð
með snertiskjá. Þessi búnaður kemur frá
AS-Scan í Danmörku. Allt vökvakerfið í
bátinn er einnig lagt af sérfræðingum
AS-Scan. Vökvadælur og lokar koma
frá Landvélum. Það er víða komið við í
þessu og þetta verður gríðarlega öflug-
ur bátur í alla staði og vandaður,“ bætir
hann við.
Eftir afhendingu bátsins í Rödby,
verður siglt til Boa Tech í Danmörku þar
sem allur dekkbúnaður verður settur í
hann, þ.e. þvottakör, fiskimóttakan og
annar búnaður á dekki.
Hafa trú á að fleiri fylgi í kjölfarið
„Þegar menn átta sig á öllum kostum
þessa báts og gæði búnaðarinns, erum
við bjartsýnir á að menn flykkist um borð
í hann til að skoða og sjái þá um leið hve
vandaður gripur þetta er og fari að leita
til Danmerkur eftir nýjum bátum. Ég
er viss um að með þessum nýja Bárði
hefjist nýr kafli í smíði plastbáta fyrir
íslenskar útgerðir. Vinnan er einstaklega
vönduð og verðið mjög gott og höfum
við mikla trú á því að fleiri fylgi í kjölfarið,“
segir Hrafn. n
Aflhlutir var stofnað 2006. „Við
vorum upphaflega sex sem stofn-
uðum fyrirtækið. Síðan skildu leiðir
eftir fyrsta árið en ég og Björn,
haéldum áfram með fyrirtækið.
Við Björn útskrifuðumst saman
úr Vélaskóla Íslands árið 1980 og
höfum allar götur síðan verið góðir
félagar. Við unnum þó á sitthvor-
um staðnum. Hann hjá Vélsölunni
og ég var í mörg ár hjá Merkúr, svo
við vorum keppinautar þá. Svo at-
vikaðist það þannig að við hættum
á sama tíma, hann hjá Vélasölunni
og ég hjá Marás, þar sem ég var
í eitt ár. Þá stofnuðum við Aflhluti
og höfum alla tíð síðan byggt þetta
fyrirtæki upp. Helgi Axel Svav-
arsson kemur svo inn í fyrirtækið
í byrjun 2017 og er nú orðinn einn
af hluthöfunum. Hann var fram-
kvæmdastjóri fyrir fyrirtæki sem
heitir Ásafl í nokkuð mörg ár. Við
erum því þrír starfsmenn sem allir
eru jafnframt hluthafar. Við erum
allir menntaðir vélfræðingar og
með réttindi sem slíkir. Helgi er auk
þess menntaður rafiðnfræðingur.
Starfsemin er byrjuð að sprengja
utan af sér, þannig að við erum
farnir að huga að ýmsum hlutum til
framtíðar,“ segir Hrafn.
Nýr Bárður SH.
Hrafn Sigurðsson, Björn Jóhann
Björnsson og Helgi Axel Svavarsson.